Viltu fleiri bílastæði í miðbæinn? Eyþór Máni Steinarsson skrifar 13. apríl 2026 07:45 Það eru um 7000 bílastæði í miðbæ Reykjavíkur. Þar af eru 5900 bílastæði í umsjá Reykjavíkurborgar og af þeim eru um 2000 stæði í bílastæðahúsum og restin beint í borgarlandinu. Þrátt fyrir þennan fjölda bílastæða heyrist ítrekað gagnrýni um að ekki séu nægilega mörg stæði í miðbænum. Þeirri gagnrýni er gjarnan svarað af borginni með frösum á borð við „Það hafa aldrei verið fleiri bílastæði í 101 en í dag.“ Ég þekki slíka frasa vel enda hef ég sjálfur beitt þeim. Ég fer heldur ekki leynt með skoðanir mínar á þeirri ofuráherslu sem Íslendingar setja á einkabílinn. Engu að síður má ekki gera lítið úr þeirri upplifun fólks að það sé erfitt að finna bílastæði í miðbænum. Sú tilfinning er ekki byggð á sandi. Hinn raunverulegi bílastæðavandi Það er alveg rétt að bílastæðum hefur fjölgað. En það hefur aðsóknin líka. Það eru einfaldlega fleiri sem vilja komast í miðbæinn, bæði heimamenn og ferðamenn, og því mikil samkeppni um hvert stæði. Á sama tíma hefur upplifun fólks af aðgengi versnað. Það sem áður var einfalt, að leggja einhvers staðar frítt, er nú orðið að leit að lausu stæði í bílastæðahúsum, flóknu greiðsluferli og þröngum aðstæðum. Fólki getur líka fundist bílastæðahúsin erfiðari en „gömlu góðu stæðin“ og það kannast margir við að labba hring eftir hring og reyna að muna hvar maður lagði bílnum. Að ræða bara aukið framboð án þess að nefna aukna eftirspurn með því að segja: „Það hafa aldrei verið fleiri bílastæði í miðbænum,“ er móðgandi við upplifun viðmælandans. Tilþrifapólitik bílastæða í borgarlandinu Í umræðunni um bílastæðavandann hafi sumir kosið að benda á litlar eða sjónrænar aðgerðir, eins og „kleinuhringi“ eða myndir af sundlaugum sem taka upp verðmætt bílastæðapláss í Austurstræti. Það eru 18 bílastæði þarna. Ég taldi. Ef tilvonandi borgarfulltrúar ætla að leysa umtalaðan bílastæðavanda miðbæjarins með því að endurheimta 18 stæði, þá er ég ekki bjartsýnn á þeirra lausnir við stærri verkefnum borgarinnar. Að mínu mati er það einnig röng forgangsröðun að fórna aðgengi, öryggi og þægindum gangandi vegfarenda fyrir örfá bílastæði. Sem íbúi og vegfarandi í miðbænum yrði ég alls ekki ánægður ef þetta verðmæta borgarland yrði nýtt í bílastæði. Fyrir utan allt þetta er Austurstrætið líka göngugata. Þarna er upplifun viðmælandans allavega viðurkennd, en þess í stað er greind hans móðguð með því að slá ryki í augu hans með einföldum og ódýrum gervilausnum. Hvað er þá hægt að gera? Bjóðum út uppbyggingu bílastæðahúss á góðum og aðgengilegum stað í miðbænum á viðráðanlegu verði sem við höfum opin allan sólarhringinn. Þessi grein gæti endað hérna, því í mínum augum er svarið svona einfalt, en skoðum aðeins valkostina. Í fljótu bragði dettur mér í hug land Faxaflóahafna (sem Reykjavíkurborg á 75% hlut í) til móts við Kolaportið og Listasafn Reykjavíkur. Þar væri hægt að koma fyrir 2.7 Traðarkotum í ferningnum og 3.8 Traðarkotum í þríhyrningnum - eða um 1.540 bílastæðum. Það mætti líka skoða ríkulegt landsvæði ríkisins báðum megin Sölvhólsgötunnar. Á þessum reitum samanlögðum kæmust fyrir 9.6 Traðarkot - 2.688 bílastæði. Síðan er víst lögreglan að skoða nýjar staðsetningar, ef hún færir sig af Hlemmi myndast mikið svigrúm fyrir yfirborðsbílastæði - um 1.148 bílastæði. Á frímerkinu hjá Frímúrum má síðan koma fyrir um 1.2 Traðarkotum eða 336 bílastæðum. Bílar eiga heima í bílastæðahúsum, eða helst kjöllurum. Ef markaðurinn er tilbúinn að byggja fleiri bílastæði miðsvæðis og neytendur tilbúnir að greiða fyrir það markaðsverð ætti að vera ekkert því til fyrirstöðu að leysa umræddan bílastæðavanda án þess að yfirborð borgarlandsins þjáist fyrir það. Helst myndi ég vilja að aðrar leiðir en að fólk komi keyrandi í miðbæinn yrðu skoðaðar, að aðgengi að núverandi bílastæðum yrði aukið. En ef það á að byggja fleiri stæði skulum við í það minnsta ræða það af alvarleika. Viðreisn skoðar raunverulegar lausnir Ég býð mig fram fyrir Viðreisn því flokkurinn stundar ekki tilþrifapólitík sem ýmist viðurkennir ekki eða leysir ekki raunveruleg vandamál. Það eru til lausnir við þeim vandamálum sem borgin stendur frammi fyrir. Í mörgum þessum vandamálum leynast meira að segja tækifæri. Það er hægt að gera bara hluti. Höfundur er í framboði fyrir Viðreisn í Reykjavík, fyrrverandi formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl og leigubílstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Eyþór Máni Steinarsson Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun