Strangar reglur í kringum græna Masters-jakkann Aron Guðmundsson skrifar 13. apríl 2026 11:30 Rory þurfti að bíða í sautján ár eftir sigri á Masters mótinu. Nú hefur hann unnið mótið tvö ár í röð og skartar hér græna jakkanum víðfræga. Vísir/Getty Græni jakkinn sem Masters meistarar í golfi klæðast er frægasti jakkinn í íþróttaheiminum. Rory McIlroy klæddist einum annað árið í röð eftir sigur á þessu fyrsta risamóti ársins í gær. Jakkanum fylgja hins vegar strangar reglur og er hefðin einnig rík í kringum hann.
Með sigri á Masters hlýtur sigurvegarinn eilífðar þátttökurétt á Masters mótinu sem og fulla aðild að Augusta National golfklúbbnum. Græni jakkinn eftirsótti og margfrægi fylgir sömuleiðis. Einn af stofnendum Augusta National golfklúbbsins, Clifford Roberts, kom með hugmyndina að græna jakkanum. Reglurnar í kringum græna jakkann eru skýrar en jakkinn var fyrst klæddur Masters meistaranum Sam Snead árið 1949. Meistarar fyrri ára fengu síðan jakka í sinn hlut. Allir Masters meistarar í sögunni verða að klæðast græna jakkanum á svæðinu í kringum klúbbhús Augusta National golfklúbbsins á Masters helginni. Þar eru jakkarnir geymdir. En meðlimir í Augusta National golfklúbbnum fá einnig græna jakkann. Aðeins ríkjandi meistari Masters mótsins má fara með græna jakkann sinn af svæði Augusta National golfklúbbsins á því ári sem hann er ríkjandi meistari. Jakkanum verður að skila fyrir Masters mótið ári síðar. Gary Player, þrefaldur Masters meistari frá Suður-Afríku, tók óvart græna jakkann með sér aftur heim eftir að meistaratíð hans í kjölfar fyrsta sigursins hafði lokið. Þáverandi formaður Augusta National golfklúbbsins setti sig í samband við Player og bað hann um að skila jakkanum. Player grínaðist í honum að formaðurinn yrði bara að sækja jakkann. Hefðin felur það í sér að Masters meistari fyrra ársins klæðir nýjan Masters meistara í græna jakkann. En nú hefur það gerst fjórum sinnum í sögu mótsins að Masters meistari hefur varið sinn titil, nú síðast í gær með sigri Rory McIlroy. Þá er það formaður Augusta National golfklúbbsins sem klæðir meistarann í jakkann.
Masters-mótið Golf Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Fleiri fréttir Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Sigurinn sögulegi breytt miklu fyrir Óliver: „Mjög mikill heiður“ Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn McIlroy áhyggjufullur eftir erfiða reynslu Óliver var með funheitan pútter Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Óliver Elí vann Opna breska áhugamannamót pilta Óliver Elí vann Evrópumeistarann og komst í úrslit Aflýsa síðustu keppninni og framtíð mótaraðarinnar í uppnámi Óliver kominn í undanúrslit á sterku móti Efnilegur ástralskur kylfingur lést aðeins átján ára Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Hlynur byrjaði betur en Íslandsmeistarinn Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti „Þegar ég var yngri var bara gert grín að mér að ég væri í golfi“ Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Amateur Vann LIV-mótaröðina annað árið í röð Íslandsmeistari annað árið í röð eftir algjöra yfirburði Guðrún Brá Íslandsmeistari og föðurbetrungur Gífurleg spenna á Íslandsmótinu í golfi 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Dagbjartur eykur forystuna Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Guðrún Brá lék best alla og er komin í efsta sætið Dagbjartur áfram í frábærum gír í titilvörninni „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Íslandsmeistarinn byrjar best allra á Íslandsmótinu í golfi Sjá meira