Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir og Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifa 13. apríl 2026 14:46 Í dag mælir innviðaráðherra, Eyjólfur Ármannsson, fyrir frumvarpi sem á að tryggja 48 daga á strandveiðum. Í frumvarpinu er lagt til að fella niður línuívilnun og skel- og rækjubætur og nýta þær aflaheimildir til að auka strandveiðar. Markmið laga um stjórn fiskveiða er, eins og allir þekkja: „…að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu nytjastofna og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu.“ Helsta ráðstöfun stjórnvalda til þess að efla byggð í landinu er að draga 5,3% af úthlutuðu aflamarki og endurráðstafa því til byggðarlaga í alvarlegum vanda í sjávarútvegi með svokölluðum byggðaaðgerðum. Þessar byggðaaðgerðir eru: almennur og sértækur byggðakvóti, línuívilnun, skel- og rækjubætur, frístundaveiðar og strandveiðar. Tekið af þeim sem viðkvæmastir eru Með breytingunum sem lagðar eru til í frumvarpi ráðherrans er verið að fækka byggðaaðgerðum úr sex í fjórar. Margar smærri útgerðir og fiskvinnslur um allt land treysta á eina eða fleiri byggðaaðgerð til þess að stunda heilsársstarfsemi. Heilsársútgerð og fiskvinnsla eru hryggjarstykki byggðafestu í þessum brothættu sjávarbyggðum. Það liggur í augum uppi að fólk flytur sig og sínar fjölskyldur burt ef atvinna er einungis í boði hluta árs. Því er mikilvægt að byggðaaðgerðirnar séu fjölbreyttar og stuðli að heilsárs atvinnu. Á Drangsnesi í Kaldrananeshreppi og á Hólmavík í Strandabyggð hafa byggst upp fiskvinnslur og útgerðir á grunni þessara byggðaaðgerða. Á Drangsnesi búa um 70 manns og standa sjávarútvegsfyrirtæki sem reiða sig á þessar aðgerðir undir vel yfir helmingi starfa í byggðarlaginu. Sama er uppi á teningnum á Hólmavík, þar sem slík fyrirtæki standa undir rúmlega fjórðungi starfa í byggðarlaginu. Við niðurfellingu línuívilnunar og skel- og rækjubóta er stór hluti þessara starfa settur í mikla hættu og heilsársbúseta á svæðinu sett í mikla óvissu. Á svæðinu starfa 15 manns við beitningu í landi og standa þau störf og falla með línuívilnun, líkt og störf sjö áhafnarmeðlima á þremur bátum sem einnig reiða sig á línuívilnun. Tvær útgerðir í sitthvoru bæjarfélaginu reiða sig einnig á skel- og rækjubætur til heilsársútgerðar og eru þær í samstarfi við fiskvinnslurnar í byggðarlögunum. Þess ber að geta að bæði Strandabyggð og Kaldrananeshreppur eru brothættar byggðir og eru bæði sveitarfélög þátttakendur í samnefndu verkefni á vegum Byggðastofnunar, en markmið verkefnisins er að sporna við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum. Með því að fella niður línuívilnun og skel- og rækjubætur er tekið af viðkvæmustu aðilunum í sjávarútvegi, sem iðulega eru hryggjarstykki hinna dreifðu sjávarbyggða, til þess að auka strandveiðar um 1–2 daga á landsvísu. Aukin samþjöppun á kostnað minni byggðarlaga Nú þegar hafa sjávarútvegsfyrirtæki fengið að finna fyrir ólgusjó stjórnmálanna og hafa mátt þola: Hækkað veiðigjald Hækkað kolefnisgjald Hækkaðan flutningskostnað vegna kílómetragjalds Niðurfellingu laga um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs til fiskvinnslufólks Samdrátt í línuívilnun, skel- og rækjubótum, almennum og sértækum byggðakvóta, ofan á samdrátt í leyfilegum heildarafla þorsks Mikinn samdrátt í leyfilegum heildarafla grásleppu Auk þess sem breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu eru sífellt í deiglu stjórnmálamanna, með tilheyrandi óvissu fyrir þá sem starfa í greininni. Sífelldar skerðingar, ágjöf og mótvindur frá stjórnvöldum eru smærri heilsársútgerðum alls ekki til uppdráttar. Einhvers staðar liggja þolmörk þessara fyrirtækja gagnvart hækkuðum gjöldum og skertum aflaheimildum. Þegar smærri útgerðir leggja loks upp laupana eru það einungis stærri útgerðirnar sem hafa bolmagn til að kaupa þá minni út í krafti stærðarhagkvæmninnar. Sú þróun leiðir til aukinnar samþjöppunar í sjávarútvegi og fækkunar sjávarbyggða. Í umræðunni um greinina virðist sjávarútvegur oft vera aðeins örfáar stórútgerðir og fjöldi strandveiðibáta á sumrin en litlar og meðalstórar útgerðir og fiskvinnslur gleymast. Verði frumvarp þetta að lögum stuðlar ríkisstjórnin að þeim raunveruleika. Yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að styðja og efla hinar dreifðu sjávarbyggðir virðast vera í orði en ekki á borði. Björk Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri Vilja Fiskverkunar ehf. og Vissu Útgerðar ehf. á Hólmavík Mikael Rafn L. Steingrímsson, framkvæmdastjóri Fiskvinnslunar Drangs ehf. og Útgerðarfélagsins Skúla ehf. á Drangsnesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Strandabyggð Kaldrananeshreppur Alþingi Strandveiðar Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Sjá meira