Fyrir enn betri Akureyrarbæ Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar 14. apríl 2026 09:00 Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri vill halda áfram að byggja upp enn betra samfélag til framtíðar, þar sem ábyrg fjármál, öflugt atvinnulíf og sterk þjónusta mynda grunn að góðum lífsgæðum fyrir alla. Á kjörtímabilinu hefur verið unnið mikið og hratt. Uppbygging hefur aukist, þjónusta verið styrkt og rekstur bæjarins er orðinn traustari. Fjármálin standa sterkari stoðum en áður og við það hefur skapast svigrúm til að taka skynsamlegar ákvarðanir til framtíðar. Það er ekki sjálfgefið. Það er árangur af ábyrgum rekstri og skýrri forgangsröðun. Við vitum þó að fyrir íbúa snýst þetta ekki bara um tölur eða kerfi. Þetta snýst einfaldlega um daglegt líf. Að hér séu leikskólapláss þegar fæðingarorlofi lýkur, að börn hljóti góða menntun, að hér sé öruggt húsnæði og atvinnutækifæri og að eldri borgarar og viðkvæmir hópar fái þjónustu sem styður við sjálfstæði og lífsgæði. Að snjórinn sé mokaður og ruslið sótt. Þetta snýst um að fjölskyldur nái endum saman og að fólk geti séð sér bjarta framtíð hér í Akureyrarbæ. Við getum öll verið sammála um ákveðin grundvallargildi. Hér er gott samfélag sem við viljum styrkja. En þó grunnurinn sé sterkur finnum við líka að það eru verkefni fram undan sem við þurfum að takast á við. Vexti fylgja áskoranir Atvinnutækifærum hefur ekki fjölgað í takt við möguleika bæjarins. Við þurfum að laða að fleiri fyrirtæki og fjölbreyttari störf, ekki síst vel launuð störf sem styrkja tekjugrunninn til lengri tíma. Húsnæðismarkaðurinn er undir þrýstingi og of margir, sérstaklega ungt fólk, eiga erfitt með að komast inn á markaðinn. Á sama tíma vantar fjölbreyttari búsetuúrræði fyrir eldri borgara. Þá er ljóst að skipulag og ferlar taka oft langan tíma, sem hefur bein áhrif á bæði húsnæðisverð og atvinnuuppbyggingu. Með vexti bæjarins eykst álag á mikilvægar stoðir eins og leik- og grunnskóla. Það kallar á skýr viðbrögð og góðan undirbúning. Þetta eru áskoranir sem við þurfum að takast á við af festu og skýrri framtíðarsýn. Munurinn liggur í því hvernig við nálgumst þær. Margir tala um svipuð markmið. En það sem skiptir máli er hverjir hafa getu og vilja til að framkvæma. Við höfum sýnt að við getum tekið á erfiðum málum, bætt rekstur og skapað grundvöll fyrir áframhaldandi kröftuga uppbyggingu og við ætlum að nýta þann sterka grunn. Fyrir stórhuga vöxt Við viljum fara þá leið sem skilar raunverulegum árangri. Við ætlum að bæta samkeppnishæfni atvinnulífsins með lægri álögum, auknu framboði atvinnulóða og hraðari afgreiðslu leyfa. Með því að standa með atvinnulífinu styrkjum við tekjugrunn bæjarins sem gefur okkur svigrúm til að lækka áfram álögur og bæta þjónustu. Við viljum að fleiri geti komist í eigið húsnæði og festi rætur hér. Við munum leita leiða til að hraða skipulagsferlum og tryggja að nægt framboð íbúðarhúsnæðis sé til staðar, fyrir fyrstu kaupendur, fjölskyldur og eldri borgara. Með því getum við náð betra jafnvægi á húsnæðismarkaði og lækkað þrýsting á verði. Við viljum einfalda þjónustuna svo fólk geti klárað sín mál hratt og án óþarfa flækjustigs. Þða þýðir að halda áfram að nýta stafrænar lausnir og einfalda ferla til að bæta þjónustu og draga úr kostnaði svo meira fari í það sem skiptir raunverulega máli fyrir íbúa. Að fólk geti sótt alla þjónustu við bæinn á einum stað. Við teljum mikilvægt að hugsa til framtíðar og efla tengsl við atvinnulíf og framhaldsmenntun, sérstaklega Háskólann á Akureyri, til að skapa fleiri tækifæri fyrir ungt fólk og styrkja nýsköpun í bænum. Sterkari rödd Akureyrarbæjar Uppbygging bæjarins snýst ekki bara um ákvarðanir innan sveitarfélagsins. Hún snýst líka um það hvernig við stöndum vörð um hagsmuni Akureyrarbæjar á landsvísu. Akureyrarbær gegnir lykilhlutverki sem þjónustu-, mennta- og atvinnumiðja fyrir allt Norðurland. Það kallar á skýra og öfluga hagsmunagæslu gagnvart ríkinu. Við ætlum að slá skjaldborg um innviði og stofnanir bæjarins, þrýsta á að opinber störf og þjónusta dreifist með sanngjörnum hætti um landið. Það þýðir að standa vörð um Sjúkrahúsið á Akureyri, efla framhaldsskólana og háskólann og sækja ný verkefni og störf til bæjarins. Samgöngur eru þar lykilatriði. Við þurfum öruggari og hraðari tengingar við höfuðborgarsvæðið og áreiðanlegar flugsamgöngur. Það skiptir máli fyrir bæði íbúa og atvinnulíf. Með markvissri hagsmunagæslu getum við styrkt stöðu Akureyrarbæjar, skapað fleiri tækifæri og tryggt að bærinn haldi áfram að vaxa sem öflug miðja mannlífs og atvinnu á Norðurlandi. Fyrir hlýtt samfélag En uppbygging snýst ekki bara um innviði og atvinnu, hún snýst fyrst og fremst um fólkið. Menntakerfið er þar í lykilhlutverki. Við viljum að hvert barn fái raunveruleg tækifæri til að ná árangri, bæði í námi og líðan. Þar gegnir fagfólk lykilhlutverki. Allt það frábæra fólk sem starfar í leik- og grunnskólunum okkar sinnir ómetanlegu starfi á hverjum degi og á skilið bæði traust og stuðning. Við ætlum að efla umgjörð skólastarfs, auka valfrelsi og tryggja að aðstæður séu í takt við þarfir barna og starfsfólks. Samhliða því ætlum við að halda áfram uppbyggingu nýrra skólamannvirkja til að mæta stækkandi samfélagi og tryggja að börn fái notið nútímalegrar og góðrar aðstöðu til náms og þroska. Velferðarþjónustan er ekki síður mikilvæg. Við viljum samfélag þar sem fólk fær stuðning þegar á þarf að halda, á einfaldan og aðgengilegan hátt. Við höfum nálgast málefni eldri borgara af krafti á kjörtímabilinu og viljum gera enn betur. Eldri kynslóðir eiga að geta lifað með reisn, öryggi og virkni, með fjölbreyttum búsetukostum og þjónustu sem tekur mið af þörfum þeirra. Við viljum líka standa vel við bakið á þeim sem standa höllum fæti. Tryggja að fatlað fólk og aðrir viðkvæmir hópar hafi raunveruleg tækifæri til sjálfstæðrar búsetu og virkrar þátttöku í samfélaginu. Fyrir okkur snýst þetta allt um jafnvægi. Að byggja upp öflugt samfélag þar sem framfarir, öflugt atvinnulíf og vöxtur fara saman við umhyggju og ábyrgð. Fyrir enn meiri lífsgæði Það verður líka að vera gaman að búa í Akureyrarbæ. Við ætlum halda áfram að byggja upp gott samfélag þar sem lífsgæði eru í forgrunni: öflugt skólastarf, gott aðgengi að íþróttum og tómstundum, blómlegt menningarlíf, sterk velferðarþjónusta og bæjarumhverfi sem er hreint, snyrtilegt og lifandi. Akureyrarbær hefur alla burði til að verða enn eftirsóknarverðari valkostur til búsetu og enn öflugri staður til að reka fyrirtæki. En það gerist ekki af sjálfu sér. Það krefst ábyrgðar, skýrra ákvarðana og þess að hlutirnir séu framkvæmdir, ekki bara ræddir. Það er þar sem við stöndum. Við viljum halda áfram að vinna í þágu ykkar, byggja upp og skila árangri. Fyrir enn betri Akureyrarbæ. Hægt er að lesa ítarlega um stefnumál Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir komandi kjörtímabil á íslendingur.is Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í bæjarstjórnarkosningum sem fara fram 16. maí næstkomandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hætta á ferðum í fjölmiðlun á Íslandi Stefán Jón Hafstein Skoðun Að byggja fyrir fólk eða… Magnús Jónsson Skoðun Lyftum arkitektúrnum upp Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Regnbogavottun – andleg valdbeiting? Sigfús Aðalsteinsson ,Ágústa Árnadóttir Skoðun Af hverju er verðbólga hjá okkur hærri en í nágrannalöndum? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun Eru heimgreiðslur verkfæri djöfulsins? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Að búa til vettvanga fyrir samveru Sigurrós Elddís Huldudóttir Skoðun Framtíðin er þeirra! Steinar Bragi Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Lyftum arkitektúrnum upp Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Hætta á ferðum í fjölmiðlun á Íslandi Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Að byggja fyrir fólk eða… Magnús Jónsson skrifar Skoðun Skynsemi, ábyrgð og fjölskylduvæn framtíð í Fjarðabyggð Baldur Marteinn Einarsson skrifar Skoðun Það er gott að eldast í Hveragerði og við ætlum að tryggja það Sæbjörg Lára Másdóttir,Berglind Rós Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Lesblindir og skóli án aðgreiningar Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Þátttakendur – ekki áhorfendur Dagbjört Höskuldsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna spyr RÚV ekki um loftslagsmálin? Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun „En það er ekkert að þessu barni“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Framtíðin er þeirra! Steinar Bragi Sigurjónsson skrifar Skoðun Að búa til vettvanga fyrir samveru Sigurrós Elddís Huldudóttir skrifar Skoðun Popúlískar staðreyndir eða hvað! Einar Gísli Gunnarsson skrifar Skoðun Frelsið til að eiga heimili Guðný María Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Regnbogavottun – andleg valdbeiting? Sigfús Aðalsteinsson ,Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Græna, græna byltingin Ómar H. Kristmundsson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í sókn Árni Rúnar Árnason skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB: Hvað erum við að kjósa um? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Það sem sveitastjórnir geta gert gegn kynbundnu ofbeldi Drífa Snædal skrifar Skoðun Af hverju er verðbólga hjá okkur hærri en í nágrannalöndum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Tímamót í uppbyggingarsögu Reykjavíkur Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Uppbygging íþróttamannvirkja á Akureyri - hugsum lengra Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Skoðun Skólinn á að rúma okkur öll Rakel Viggósdóttir ,Rósanna Andrésdóttir skrifar Skoðun Þurfum við nýtt kerfi í stað jafnlaunavottunar? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn stendur með Reykvíkingum - strax Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Eru heimgreiðslur verkfæri djöfulsins? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Byrjum á grunninum ekki þakinu Sigurlaug Vigdís Einarsdóttir skrifar Skoðun Brottflutningur bandarísks herliðs frá Evrópu Arnór Sigurjónsson skrifar Sjá meira
Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun
Skoðun Það er gott að eldast í Hveragerði og við ætlum að tryggja það Sæbjörg Lára Másdóttir,Berglind Rós Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Skoðun Allir æfa – Reykjavík á hreyfingu Rúnar Freyr Gíslason,Hafrún Kristjánsdóttir,Bjarni Fritzson skrifar
Skoðun Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir,Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Gæði kennslu: Vandaðir kennsluhættir lykillinn að gæðum menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir Skoðun