Þröngt mega sáttir? Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar 14. apríl 2026 14:17 Áform um þrengingu gatna innan borgarinnar hafa nú farið óbærilega fram úr sér. Við sjáum fagrar grevigreindarmyndir með fallegum torgum og börnum í leik. Raunin er hins vegar önnur og skynja ég á borgarbúum að þetta sé ekki sú leið og sú ásýnd sem þau vilja sjá. Fyrir utan þær augljósu neikvæð afleiðingar sem þrengingin hefur á umferðarflæðið eru nokkur ekki eins augljós atriði sem skaða samfélagið okkar. Í fyrsta lagi skerðir þrenging sjónsvið vegfarenda verulega. Þetta skapar sérstaka hættu fyrir börn. Þau hverfa á bak við bíla og gróður sem þrengt er inn í götuna. Ökumenn sjá þau ekki fyrr en of seint. Það vekur furðu að þeir sem hanna slíkar breytingar virðast ekki gera ráð fyrir okkar smæsta fólki. Í öðru lagi hafa þrengingar mikil áhrif á snjómokstur. Þrengdar götur og bílar á báðum hliðum þýða einfaldlega að snjór finnur hvergi góðan farveg. Ruðningar safnast upp, aðgengi versnar og hættur aukast. Þetta þekkja til dæmis foreldrar með barnavagna mætavel. Fólk finnur ómaklega fyrir fækkun bílastæða sem fylgir þrengingunni. Færri stæði þýða meiri leit að stæðum. Það þýðir meiri umferð innan hverfa, meiri mengun og meira álag á íbúa. Fólk hreinlega setur þetta fyrir sig og hættir að sækja ákveðin hverfi og ákveðna þjónustu sökum bílastæðaskorts. Sorphirða verður einnig fyrir barðinu á þessum breytingum. Þrengri götur og verri aðkoma gera starf þeirra sem sinna henni erfiðara og tímafrekara. Kostnaður eykst og þjónustan versnar. Þetta er kjarni málsins. Hér er verið að innleiða breytingar sem líta vel út á teikniborði en standast ekki raunveruleikann. Í stað þess að bæta borgarumhverfið er verið að grafa undan öryggi, aðgengi og daglegum þægindum fólks. Það er ekki of seint að stíga á bremsuna. En það krefst þess að viðurkenna augljósa galla þessarar stefnu og hætta að selja íbúum hana sem framfaraskref. Miðflokkurinn hefur ávallt verið skýr í afstöðu sinni gagnvart þrengingu og ætlar að vernda borgarbúa frá óraunhæfri draumsýn og forræðishyggju núverandi meirihluta. Höfundur er í 2. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 5.9.2026 Agnar Már Másson Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Áform um þrengingu gatna innan borgarinnar hafa nú farið óbærilega fram úr sér. Við sjáum fagrar grevigreindarmyndir með fallegum torgum og börnum í leik. Raunin er hins vegar önnur og skynja ég á borgarbúum að þetta sé ekki sú leið og sú ásýnd sem þau vilja sjá. Fyrir utan þær augljósu neikvæð afleiðingar sem þrengingin hefur á umferðarflæðið eru nokkur ekki eins augljós atriði sem skaða samfélagið okkar. Í fyrsta lagi skerðir þrenging sjónsvið vegfarenda verulega. Þetta skapar sérstaka hættu fyrir börn. Þau hverfa á bak við bíla og gróður sem þrengt er inn í götuna. Ökumenn sjá þau ekki fyrr en of seint. Það vekur furðu að þeir sem hanna slíkar breytingar virðast ekki gera ráð fyrir okkar smæsta fólki. Í öðru lagi hafa þrengingar mikil áhrif á snjómokstur. Þrengdar götur og bílar á báðum hliðum þýða einfaldlega að snjór finnur hvergi góðan farveg. Ruðningar safnast upp, aðgengi versnar og hættur aukast. Þetta þekkja til dæmis foreldrar með barnavagna mætavel. Fólk finnur ómaklega fyrir fækkun bílastæða sem fylgir þrengingunni. Færri stæði þýða meiri leit að stæðum. Það þýðir meiri umferð innan hverfa, meiri mengun og meira álag á íbúa. Fólk hreinlega setur þetta fyrir sig og hættir að sækja ákveðin hverfi og ákveðna þjónustu sökum bílastæðaskorts. Sorphirða verður einnig fyrir barðinu á þessum breytingum. Þrengri götur og verri aðkoma gera starf þeirra sem sinna henni erfiðara og tímafrekara. Kostnaður eykst og þjónustan versnar. Þetta er kjarni málsins. Hér er verið að innleiða breytingar sem líta vel út á teikniborði en standast ekki raunveruleikann. Í stað þess að bæta borgarumhverfið er verið að grafa undan öryggi, aðgengi og daglegum þægindum fólks. Það er ekki of seint að stíga á bremsuna. En það krefst þess að viðurkenna augljósa galla þessarar stefnu og hætta að selja íbúum hana sem framfaraskref. Miðflokkurinn hefur ávallt verið skýr í afstöðu sinni gagnvart þrengingu og ætlar að vernda borgarbúa frá óraunhæfri draumsýn og forræðishyggju núverandi meirihluta. Höfundur er í 2. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík.
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar