Golf

LIV heldur sínu striki í miðjum stormi

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Spánverjarnir Jon Rahm og Sergio Garcia þéna vel á LIV mótaröðinni.
Spánverjarnir Jon Rahm og Sergio Garcia þéna vel á LIV mótaröðinni. Angel Martinez/Getty Images

Óvissa er uppi um framtíð LIV mótaraðarinnar í golfi. Sagt er að ríkissjóður Sádi-Arabíu muni draga úr eða jafnvel hætta öllum fjárframlögum en stjórnarmenn LIV blása á allar sögusagnir. Mótaröðin heldur áfram með móti í Mexíkó í dag.

Frá því að hin mjög svo umdeilda LIV mótaröð var sett á laggirnar árið 2021 hefur hún tapað rúmlega milljarði Bandaríkjadala. Aðeins tæpar þrjár milljónir dollara hafa fengist til baka með sölu á sjónvarpsréttindum en bilið hefur verið brúað af ríkissjóði Sádi-Arabíu.

Áhugi almennings hefur verið undir væntingum og samningar hafa ekki náðst um samstarf við PGA mótaröðina, eins og hefur staðið til síðan árið 2023. LIV mótaröðin hefur svo nýlega þurft að horfa á eftir stórum nöfnum á borð Brooks Koepka og Patrick Reed snúa aftur til PGA.

Financial Times, Wall Street Journal, The Athletic, Sky Sports og fleiri stórir erlendir miðlar greindu frá því í gær að stefnubreyting væri mögulega í vændum hjá ríkissjóði Sádi-Arabíu.

Þar segir að ríkissjóðurinn íhugi nú að hætta alfarið að fjármagna LIV mótaröðina í golfi. Einnig veki athygli að í nýjustu fjárhagsáætlun ríkissjóðsins eru íþróttir ekki meðal áherslumála.

Heimildir BBC herma að ríkissjóðurinn ætli að einbeita sér að öðrum, sjálfbærri verkefnum.

„Þeir hafa fengið nýja styrktaraðila eins og Rolex og HSBC, en það er ekki nærri því nóg miðað við laun kylfinganna,“ sagði heimildarmaður BBC.

Við það má bæta að íslenski drykkjarframleiðandinn Icelandic Glacial er líka meðal nýjustu styrktaraðila. Laun kylfinganna eru hins vegar himinhá, eins og Jon Rahm veit manna best:

Forstjóri LIV blés á sögusagnir um að LIV muni láta niður laupana og sagði mótaröðina ætla að halda sínu striki.

„Ég vil hafa það alveg á kristaltæru, tímabilið hjá okkur heldur áfram af krafti og án truflana. Fjölmiðlaumhverfið er þannig að oft vakna vangaveltur en við lifum í raunveruleikanum og skilgreinum okkur út frá vinnunni sem við skilum af okkur úti á grasi. Við förum inn í hátind tímabilsins 2026 stærri, háværri og áhrifameiri en nokkru sinni fyrr,“ sagði forstjórinn Scott O‘Neil.

Einn frægasti kylfingur LIV mótaraðarinnar, Spánverjinn Sergio Garcia, segir þessar sögusagnir stangast á við allt sem hann hefur heyrt.

„Þetta er ekki það sem Yasir [Al-Rumayyan, framkvæmdastjóri ríkissjóðsins] sagði okkur í byrjun árs. Hann sagðist styðja okkur fullum fetum, að við værum með verkefni til næstu ára. Það eru alltaf einhverjar sögusagnir á sveimi en ég get ekki tjáð mig um annað en það sem mér er sagt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×