Handbolti

Elín Klara og fé­lagar sópuðu Skuru í sumar­frí

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elín Klara Þorkelsdóttir og félagar í Sävehof eru komnar í undanúrslitaeinvígið.
Elín Klara Þorkelsdóttir og félagar í Sävehof eru komnar í undanúrslitaeinvígið. Getty/Alex Gottschalk

Sävehof tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum sænsku kvennadeildarinnar í handbolta.

Sävehof vann sex marka heimasigur á Skuru og vann því einvígið samanlagt 3-0.

Sävehof er deildarmeistari og var því mun sigurstranglegra í einvíginu sem svo kom á daginn.

Íslenska landsliðskonan Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði sex mörk í leiknum þar af nýtti hún öll fimm vítin sín. Hún gaf einnig þrjár stoðsendingar og kom því að níu mörkum í leiknum.

Hún var markahæst ásamt Emmu Mihailovic sem skoraði öll sex mörkin sín utan af velli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×