Leik lokið: Haukar-ÍBV 28-29 | Birna Berg mögnuð og Eyjakonur jöfnuðu

Ísak Orri Schjetne skrifar
Birna Berg Haraldsdóttir var langatkvæðamest í Eyjaliðinu í kvöld og leiddi endurkomuna í seinni hálfleik.
Birna Berg Haraldsdóttir var langatkvæðamest í Eyjaliðinu í kvöld og leiddi endurkomuna í seinni hálfleik. Vísir/Diego

Eyjakonur jöfnuðu metin í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Haukum í Olísdeild kvenna í handbolta eftir sigur á Ásvöllum í kvöld.

Kristrún Ósk Hlynsdóttir skoraði sigurmark ÍBV eftir stoðsendingu frá Birnu Berg Haraldsdóttur sem átti rosalegan leik.

Birna Berg skoraði fimmtán mörk úr nítján skotum og ekkert þeirra úr víti.

Haukakonur voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 16-13, og náðu mest sex marka forskoti í seinni hálfleiknum.

Haukaliðið sótti sigur út í Eyjar í fyrsta leik en nú er allt orðið jafnt.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira