Leik lokið: Haukar-ÍBV 28-29 | Birna Berg mögnuð og Eyjakonur jöfnuðu Ísak Orri Schjetne skrifar 18. apríl 2026 17:35 Birna Berg Haraldsdóttir var langatkvæðamest í Eyjaliðinu í kvöld og leiddi endurkomuna í seinni hálfleik. Vísir/Diego Eyjakonur jöfnuðu metin í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Haukum í Olísdeild kvenna í handbolta eftir sigur á Ásvöllum í kvöld. Kristrún Ósk Hlynsdóttir skoraði sigurmark ÍBV eftir stoðsendingu frá Birnu Berg Haraldsdóttur sem átti rosalegan leik. Birna Berg skoraði fimmtán mörk úr nítján skotum og ekkert þeirra úr víti. Haukakonur voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 16-13, og náðu mest sex marka forskoti í seinni hálfleiknum. Haukaliðið sótti sigur út í Eyjar í fyrsta leik en nú er allt orðið jafnt. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Olís-deild kvenna Haukar ÍBV