„Akkúrat núna þá gæti mér ekki verið meira sama“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 17. apríl 2026 21:11 Sigursteinn Arndal var sáttur með liðið í kvöld. Vísir/Anton Brink FH sigraði Hauka 35-36 í æsispennandi leik á Ásvöllum í kvöld. Daníel Freyr Andrésson varði í tvígang á lokasekúndunum og tryggði FH sæti í úrslitunum.
Var þetta ekki óþarflega spennandi hérna í lokinn? „Jú mér fannst það, en þetta er FH-Haukar og litast alltaf í þessa átt einhvernveginn,“ sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, eftir að FH tryggði sér sæti í úrslitum. FH-ingar leiddu nánast allan leikinn en komu sér í erfiða stöðu á lokamínútunum þar sem munaði einu marki á liðunum. „Ég er bara mjög ánægður með liðið mitt að sýna andlegan styrk. Bæði það að vera algjörlega klárir hérna í byrjun leiks en svo líka halda áfram þrátt fyrir að við værum búnir að koma okkur í verulega erfiða stöðu.“ „Ég er mjög ánægður með framlag leikmanna í dag. Að sjálfsögðu ef maður klippir leikinn þá getum við fundið einhvað en akkúrat núna þá gæti mér ekki verið meira sama.“ FH mætir Val í úrslitunum og býst Steini við alvöru baráttu í þeim leikjum. „Við notum helgina til þess að hlaða batteríin. Við þurfum svo að undirbúa okkur hrikalega vel, við erum að fara mæta virkilega öflugu liði Vals sem unnu deildina og voru stigi á undan okkur.“ Steini var einnig gríðarlega ánægður með stuðninginn úr stúkunni. „Ég býst við svaka rimmu en ég er líka mjög bjartsýnn, þú sérð stuðningsmennina sem voru hér í kvöld, það er ekki hægt annað en að spila vel og matcha orkuna þegar þessir FH-ingar fylgja svona vel við bakið á okkur.“
FH Olís-deild karla Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Fleiri fréttir Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Dagur Árni aftur heim í KA Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik | Nýliðar með meistara í heimsókn Þór/KA - Víkingur | Enn í leit að fyrsta sigrinum Stjarnan - ÍBV | Hörkuleikur í Garðabæ Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Lætur hnefana tala HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar Þykja Alpine liðið vera of dýrt Dagskráin í dag: Landar Arsenal þeim stóra? Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Sjá meira