„Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. apríl 2026 14:29 Donald Trump er mikið fyrir að tjá sig með færslum á samfélagsmiðlinum Truth Social. EPA Bandaríkjaforseti sakar Írani um brot á vopnahléssamkomulaginu eftir að Íranir skutu flutningaskip skömmu eftir að Hormússundi var lokað í gær. Fulltrúar Bandaríkjanna eru á leið til Pakistan til að halda áfram friðarsamkomulagi en vopnahléið rennur út eftir örfáa daga.
Íranir ákváðu í gærmorgun að loka Hormússundinu á ný í kjölfar þess að Bandaríkjamenn komu á herkví við strendur Írans. Í kjölfarið skutu bátsverjar í tveimur bátum Íranska byltingarvarðarins á olíuflutningaskip á Hormússundi. Atvikið átti sér stað um tuttugu sjómílur norðaustan Óman. Donald Trump Bandaríkjaforseti segir árásina algjört brot á vopnahléssamkomulagi sem er nú í gildi þar til 22. apríl. „Mörgum þeirra var beint að frönsku skipi og flutningaskipi frá Bretlandi. Það var ekki fallega gert, var það?“ spyr Trump í færslu á Truth Social. „Íranir tilkynntu nýlega að þeir væru að loka sundinu, sem er undarlegt, því HERKVÍ okkar hefur þegar lokað því. Þeir eru að hjálpa okkur án þess að vita af því og það eru þeir sem tapa á lokaðri siglingaleið, 500 milljónum dollara á dag! Bandaríkin tapa engu.“ Trump segir að fjöldi skipa sé á leið til Bandaríkjanna til að fá olíu þaðan í stað þess að fara um Hormússundið. Segist bjóða sanngjarnan og skynsamlegan samning Líkt og kom fram er vopnahlé í gildi milli Bandaríkjanna, Ísrael og Íran sem gildir fram á miðvikudag. Trump tilkynnti í gær að ríkin væru afar nálægt því að ná friðarsamkomulagi sem fælist í því að Íranir myndu gefa upp öll verkfæri til úranauðgunar. Meðlimur í írönsku samninganefndinni sagði hins vegar að Trump hefði logið ítrekað um stöðu mála og ekkert slíkt væri í kortunum. Í færslu Trump kemur fram að fulltrúar Bandaríkjanna séu á leið til Íslamabad í Pakistan til að taka þátt í samningaviðræðum á morgun. „Við erum að bjóða mjög sanngjarnan og skynsamlegan SAMNING og ég vona að þeir taki honum því ef þeir gera það ekki munu Bandaríkin slá út hverja einustu orkuverksmiðju og hverja einustu brú í Íran. EKKERT KJAFTÆÐI LENGUR!“ skrifar forsetinn í færslunni. Hann telur að Íranir muni gefa sig fljótt og auðveldlega. „Það verður mér heiður að gera það sem þarf að gera, sem aðrir forsetar hefðu átt að gera við Íran síðastliðin 47 ár. ÞAÐ ER KOMINN TÍMI TIL AÐ BINDA ENDI Á DRÁPSVÉL ÍRANS!“
Donald Trump Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira