„Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Jakob Bjarnar skrifar 20. apríl 2026 15:54 Kristrún er augljóslega orðin afar þreytt á þráspurningum stjórnarandstöðunnar um 29. ágúst 2026; hvort halda skuli áfram aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið (ESB). vísir/vilhelm Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er augljóslega að verða pirruð á því að vera þráspurð af stjórnarandstöðunni um komandi aðildarviðræður. Hún sagði einsýnt að stjórnarandstaðan ætlaði að keyra á stagli og þvælu í andstöðu við málið og hræðsluáróðri.
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins spurði Kristrúnu út í aðildarviðræðurnar og sagði að ríkisstjórnin vildi kíkja í pakkann, sem væri auðvitað þægileg framsetning fyrir hana, en vandinn væri að sú framsetning væri kolröng og til þess fallin að slá ryki í augu fólks. Óheiðarleg framsetning gagnvart almenningi „Í opinberum gögnum frá Evrópusambandinu frá fyrri samningalotu kemur skýrt fram að Ísland þurfi að halda áfram að ná árangri í að samræma löggjöf sína að regluverki sambandsins, innleiða það og tryggja stjórnsýslulega getu til að fylgja því eftir.“ Guðrún sagði að stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar hefðu reynt að slá þessu öllu upp sem misskilningi og vísað til skýrslu frá 2013 – sem hún sagði reyndar einhliða frásögn Össurar Skarphéðinssonar, þá utanríkisráðherra, og dregið af henni þá ályktun að engar breytingar á lögum og enginn undirbúningur í stofnunum kæmu til álita fyrr en að lokinni annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. Guðrún vildi meina að ríkisstjórnin væri að kasta ryki í augu almennings með framsetningu sinni um kosningar um áframhald viðræðna við Evrópusambandið. Kristrún hélt ekki.vísir/anton brink „Telur forsætisráðherra að það sé heiðarleg framsetning gagnvart almenningi að halda því fram að hér sé einungis verið að kjósa um framhald viðræðna, þegar fyrir liggur, samkvæmt eðli aðildarviðræðna sjálfra, samkvæmt greinargerð ríkisstjórnarinnar og samkvæmt gögnum beint frá Evrópusambandinu, að slíkt ferli gengi út á aðlögun að regluverki sambandsins, samræmingu laga og undirbúning stjórnsýslu? Hvaða aðlögun hrökk í gang við síðustu viðræður? Kristrún ítrekaði í svörum sínum enn og aftur að vitaskuld væri framsetning ríkisstjórnarinnar um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu heiðarleg og hvernig hún færi í þetta ferli og það gæti enginn í þessum sal fullyrt annað. „Það hefur komið á daginn að það eina sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á í tengslum við þessa þjóðaratkvæðagreiðslu er hræðsluáróður, þetta er endalaust stagl um það hvort það sé um eitthvað að semja eða ekki. Kistrún spurði á móti hvaða aðlögun hafi hrokkið í gang þegar síðustu viðræður voru og við sitjum í svo hræðilegri stöðu út af?visir/vilhelm Og síðan þessi þvæla, já, forseti – ég kalla þetta þvælu, um að ef þjóðin segi já þá fari sjálfkrafa af stað eitthvað ferli þar sem mál sem hrannast hér inn á þingið sem sjálfkrafa afgreiðast sem gera það að verkum að Ísland verður annað land eftir lok næsta kjörtímabils. Það er auðvitað ekki þannig. Hvaða aðlögun hrökk í gang þegar síðustu viðræður voru og við sitjum í svo hræðilegri stöðu út af? Getur einhver nefnt mér einn hlut?“ Kristrún sagði að ekkert samkomulag færi af stað fyrr en að loknum viðræðum og við Íslendingar ættum stjórnarskrá, hér væri þingræði og lögum verði ekki breytt án aðkomu þingsins. Guðrún taldi þessi svör rýr í roðinu.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Tengdar fréttir „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Uppnám var á þinginu nú áðan og kvartaði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra undan því að vera sökuð um ósannindi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins var heitur í umræðunni og mátti sæta ákúrum Þórunnar Sveinbjarnardóttur forseta Alþingis fyrir frammíköll. Sigmundur Davíð var ósáttur við þetta og taldi Þórunni misbeita valdi sínu í þágu forsætisráðherra. 16. apríl 2026 12:31 Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira
„Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Uppnám var á þinginu nú áðan og kvartaði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra undan því að vera sökuð um ósannindi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins var heitur í umræðunni og mátti sæta ákúrum Þórunnar Sveinbjarnardóttur forseta Alþingis fyrir frammíköll. Sigmundur Davíð var ósáttur við þetta og taldi Þórunni misbeita valdi sínu í þágu forsætisráðherra. 16. apríl 2026 12:31