Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. apríl 2026 07:21 Þingforsetinn Mohammad Bagher Ghalibaf og varaforsetinn JD Vance leiða samningateyminn. Enn er óvíst hvort þeir funda í Pakistan í vikunni. Getty Ráðamenn í Íran virðast ekki enn hafa tekið ákvörðun um það hvort þeir senda fulltrúa til viðræðna við Bandaríkjamenn í Pakistan. Undirbúningur viðræðna er sagður standa yfir í Islamabad en JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, sem mun sækja viðræðurnar fyrir hönd stjórnvalda þar í landi, ku ekki vera lagður af stað.
Vopnahléð sem hefur verið í gildi í tvær vikur rennur að óbreyttu út á morgun. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að samkomulag ætti að nást tiltölulega fljótt en þess ber að geta að forsetinn hefur ítrekað haldið þessu fram á síðustu vikum og verið ásakaður af Írönum um að fara með fleipur. Mohammad Bagher Ghalibaf, aðalsamningamaður Íran, hefur einnig sakað Trump um að setja aukinn þrýsting á Íran með herkví á Hormuz-sundi og brotum á vopnahléssamkomulaginu. Hann sagi í gærkvöldi að Íranir myndu ekki ganga að samningaborðinu undir hótunum og að þeir væru tilbúnir til að afhjúpa „ný spil“ á vígvellinum. Birgðir Írana af auðguðu úrani og möguleikar þeirra á að geta auðgað úran í framtíðinni virðist vera meðal helstu ásteytingarsteina í viðræðunum en á sama tíma og Trump hefur haldið því fram að Íran hafi þegar samþykkt að láta úranið af hendi segja þarlendir ráðamenn það ekki koma til greina. Trump er í afar þröngri stöðu en auk þess að hafa valdið alþjóðlegri orku- og yfirvofandi matvælakrísu með árásunum gegn Íran, stendur hann frammi fyrir þeim raunverulega möguleika að það samkomulag sem hann gerir við Írani nú verði óhagfelldara en það sem Barack Obama gerði árið 2015 en Trump dró Bandaríkin úr árið 2018.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Pakistan Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira