Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Kjartan Kjartansson skrifar 21. apríl 2026 08:28 Tæknimenn lögreglu bera niður lík kanadísks ferðamanns af einum Teotihuacán-pýramídanna í Mexíkó í gær. AP/Eduardo Verdugo Vopnaður maður skaut kanadískan ferðamann til bana og særði að minnsta kosti þrettán til viðbótar við Teotihuacán-pýramídann í Mexíkó í gær. Hann svipti sig lífi áður en lögreglu tókst að hafa hendur í hári hans.
Maðurinn hóf skothríð af toppi Tunglpýramídans, einum af Teotihuacán-pýramídunum norðan við Mexíkóborg um klukkan hálf tólf að staðartíma í gær. Pýramídarnir eru einn fjölsóttasti ferðamannastaður landsins og eru á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Sjö ferðamenn urðu fyrir byssukúlum en AP-fréttastofan segir yfirvöld ekki hafa skýrt hvernig hinir sex særðust. Margir ferðamenn féllu við eða köstuðu sér niður þegar skothríðin hófst. Sex Bandaríkjamenn, þrír Kólumbíumenn, tveir Brasilíumenn og Rússi voru fluttir á sjúkrahús. Sá yngsti þeirra var sex ára gamall en sá elsti 61 árs. Árásarmaðurinn er sagður hafa verið einn að verki. Hann var 27 ára gamall heimamaður. Byssa, hnífur og skotfæri fundust á líki hans. Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, segir að skotárásin verði rannnsökuð og að hún hefði verið í sambandi við kanadíska sendiráðið í landinu. Bandaríski sendiherrann í Mexíkó bauð fram aðstoð við rannsóknina.
Mexíkó Erlend sakamál Kanada Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Sjá meira