Skrefin við lok grunnskóla Arnar Þorsteinsson, Guðrún Helga Ástríðardóttir og Svanhildur Svavarsdóttir skrifa 24. apríl 2026 09:04 Það eru stór tímamót að ljúka grunnskóla. Nemendur standa frammi fyrir nýjum tækifærum, auknu sjálfstæði og í mörgum tilfellum ýmsum valmöguleikum varðandi námsbrautir og skóla. Ákvörðun um næstu skref getur því verið snúin þó að mörg hafi á það skýra sýn. Samtalið og mýtan um hið eina rétta val Samtal um það að fara úr grunnskóla yfir í framhaldsskóla er skynsamlegt að hefja snemma og á jákvæðum nótum. Gott er að spyrja opinna spurninga um hvað nemandanum sjálfum finnst mikilvægt og þó að það geti verið gagnlegt að deila eigin reynslu er rétt að hafa í huga að skólakerfið og atvinnulífið kann að vera öðruvísi en var. Það er lífsseig mýta að best sé að gera eitt eða annað til að halda öllum möguleikum opnum, loka ekki dyrum og þar fram eftir götunum. Staðreyndin er hins vegar sú að framhaldsskólanám á Íslandi er mjög sveigjanlegt þó alltaf sé skynsamlegt að hafa í huga hvert stefnan er sett að námi loknu, en slíkt getur breyst frá önn til annar. Í dag hafa nemendur sjaldnar en áður tiltekinn starfsferil í huga við val á námi og vita sem er að í framtíðinni muni þau standa frammi fyrir margs konar möguleikum, óháð valinu núna. Innritunin og úthlutun plássa Síðasta haust hóf stærsti árgangur sögunnar nám í framhaldsskóla en af þeim sem luku grunnskóla sóttu 97% um í framhaldsskólum landsins. Að innritun lokinni kom í ljós að 81% höfðu fengið inni í sínu fyrsta vali og tæp 13% í öðru vali. Það sama má segja um undanfarin ár en langflestir nemendur hafa fengið inni í öðrum hvorum þeirra skóla sem óskað var eftir. Nú er einnig hægt að velja þriðja skólann til að auka líkur á að komast í skóla að eigin vali. Almennt þarf þó að gæta þess að val á námsbraut sé í sem bestu samræmi við lokaeinkunnir úr grunnskóla því inn á vinsælustu námsbrautirnar þarf oft mun hærri einkunn en lágmarksskilyrðin segja til um. Málið vandast nefnilega þegar umsóknir á einstaka námsbrautir eru fleiri en hægt er að verða við. Þá þarf að velja á milli og eru það fyrst og fremst einkunnir úr 10. bekk sem ráða ferðinni, þó framhaldsskólunum sé heimilt að horfa til fleiri þátta. Í þeim tilvikum sem nemendur komast ekki inn á þær námsbrautir sem óskað er eftir, hefur Miðstöð menntunar og skólaþjónustu það hlutverk að finna nemandanum skólapláss. Möguleikarnir eru þá oft færri en við myndum gjarna vilja en raunin er samt sú að úthlutuð skólapláss í slíkum tilfellum reynast oftar en ekki þannig að eftir fyrstu önnina vilja nemendur hvergi annars staðar vera. Það er að okkar mati fjöður í hatt framhaldsskóla á Íslandi og merki um gæði þeirra og gott starf. Upplýsingar og stuðningur við valið Til að fækka umsóknum sem ekki er hægt að verða við er mikilvægt að vanda valið og reyna að horfa raunsætt á stöðu mála. Leita aðstoðar náms- og starfsráðgjafa skólanna og kennara og nýta aðgengilegar upplýsingar á Innritun.is og Næstaskref.is þar sem meðal annars má finna á einum stað almenna umfjöllun um nám á framhaldsskólastigi, vefsíður og innritunarskilyrði skóla, yfirlit opinna húsa og almennar lýsingar á svo til öllu námsframboði framhaldsskólanna. Á komandi vikum eru spennandi tímar framundan hjá nemendum sem eru að ljúka grunnskóla. Það eru fjölbreyttir möguleikar í boði og mikilvægt að nálgast samtalið með jákvæðni og stuðningi. Vonandi eiga nemendur farsælt og gefandi næsta skref framundan. Höfundar eru náms- og starfsráðgjafar hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Framhaldsskólar Mest lesið Halldór 5.9.2026 Agnar Már Másson Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar