Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Kjartan Kjartansson skrifar 24. apríl 2026 07:56 Hægt er að veðja á allt milli himins og jarðar á veðmálasíðum eins og Polymarket. Bandarískur hermaður veðjaði á að Maduro yrði handsamaður daginn áður en Bandaríkjaher rændi honum. AP/Wyatte Grantham-Philips Bandarískur hermaður sem er grunaður um að hafa nýtt sér innherjaupplýsingar til þess að veðja á að forseti Venesúela yrði handsamaður var handtekinn í gær. Grunur um innherjasvik hefur ítrekað komið upp í tengslum við aðgerðir Bandaríkjastjórnar.
Gannon Ken Van Dyke, 38 ára gamall liðþjálfi af æðstu tign, tók þátt í að skipuleggja aðgerð Bandaríkjahers þar sem Nicolás Maduro, forseta Venesúela, var rænt í janúar. Bandaríska dómsmálaráðuneytið segir að hann hafi veðjað á hluti sem tengdust aðgerðinni á veðmálasíðunni Polymarket í á annan tug skipta. Alls lagði hermaðurinn rúma 33 þúsund dollara undir, jafnvirði rúmra fjögurra milljóna króna, og uppskar rúmlega 400 þúsund dollara, jafnvirði rúmra 49 milljóna króna, að því er segir í frétt Politico. Veðmálin fóru fram í gegnum alþjóðlega vefsíðu Polymarket sem bandarískir notendur eiga ekki að hafa aðgang að. Hún byggist á rafmyntartækni. Van Dyke notaði hins vegar svonefnda sýndartengingu (VPN) til þess að fela staðsetningu sína. Forstjóri Polymarket heldur því fram að segir að fyrirtækið hafi borið kennsl á innherjasvikarann og vísað málinu til dómsmálaráðuneytisins. Donald Trump yngri, sonur Bandaríkjaforseta, er hluthafi í Polymarket og situr í ráðgjafaráði fyrirtækisins. Ítrekað veðjað og braskað rétt fyrir tilkynningar Trump Athygli vakti strax í janúar hversu mikið var veðjað á að Maduro yrði tekinn höndum rétt áður en Bandaríkjaher lét til skarar skríða. Saksóknarar byrjuðu þá að rannsaka möguleg innherjasvik. Þetta er hins vegar fjarri því eina dæmið um umfangsmikið brask örskömmu áður en Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnir um meiriháttar aðgerðir eða áform. Rannsókn breska ríkisútvarpsins á fjármálamörkuðum leiddi í ljós skýrt mynstur þar sem ákveðin viðskipti tóku kipp örfáum klukkustundum eða jafnvel mínútum áður en Trump birti samfélagsmiðlafærslur eða fjölmiðlaviðtöl við hann birtust opniberlega. Slíkt vekur óhjákvæmilega upp spurningar um hvort viðskiptin hafi byggst á innherjaupplýsingum. Á meðal dæma sem BBC fann um þetta voru viðskipti með olíu rétt áður en Trump tilkynnti í tvígang í mars að hernaði Bandaríkin og Ísrael í Íran væri að ljúka. Einnig græddu einstaklingar sem stofnuðu sex nýja Polymarket-reikninga í febrúar og veðjuðu á að Bandaríkin réðust á Íran fyrir lok mánaðar hátt í 150 milljónir króna þegar Trump tilkynnti um árásirnar að morgni síðasta dags mánaðarins. Eftir hrinu veðmála og viðskipta eftir að Trump tilkynnti um hlé á hernaði í Íran 24. mars sendi Hvíta húsið starfsmönnum tölvupóst þar sem þeir voru varaðir við því að nýta sér innherjaupplýsingar til þess að veðja á veðmálasíðum.
Bandaríkin Fjárhættuspil Donald Trump Hernaður Venesúela Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira