Kerfislægt rán um hábjartan dag: Þegar silkihúfurnar brenna framtíðina Sigurður Sigurðsson skrifar 24. apríl 2026 08:18 Það ríkir hrollvekjandi þögn á Íslandi um það sem kalla mætti stærsta rán sögunnar. Þetta er ekki vopnað rán framkvæmt af mönnum með grímur, heldur kerfisbundið rán á almannafé sem á sér stað um hábjartan dag í boði íslenskrar stjórnsýslu. Hér er ekki um að ræða eitt eða tvö óheppileg tilvik, heldur rótgróna menningu barnaskapar, ábyrgðarleysis og brenglaðra hvata sem hefur gert ríkið að óútfylltu ávísanahefti fyrir ráðgjafa og vildarvini kerfisins. Við erum að tala um hundruð milljarða króna. Peninga sem gætu byggt skóla, styrkt heilbrigðiskerfið eða lækkað álögur á borgarana, en hverfa þess í stað í svartan hyl óstjórnar. Þetta er sagan af því hvernig ríkið hætti að vera faglegur verkkaupi og varð að bjargarlausum styrktaraðila klúðursins. Lögreglustjóri sem verkfræðingur? Íslenska stjórnsýslan hefur þróað með sér hættulega fíkn í „neyðarástand“ sem frímiða frá allri skynsemi. Nýjasta dæmið um þetta barnalega verklag birtist í Grindavík. Þar var valdið yfir risavöxnum tæknilegum framkvæmdum, hönnun og gerð varnargarða, fært í hendur lögreglu. Með fullri virðingu fyrir lögregluembættinu, þá er það hvorki hlutverk né sérþekking lögreglustjóra að stýra milljarða framkvæmdum þar sem hönnun og kostnaðarmat þurfa að standast ströngustu kröfur, lög og reglur um opinberar framkvæmdir. Þegar orðið „neyð“ er nefnt, er faglegri forhönnun kastað út um gluggann og eftirlitsaðilar settir á hliðarlínuna. Þegar lögregla stýrir vinnuvélum og verkfræðingum án þess að fyrir liggi fastmótuð kostnaðaráætlun, er verið að bjóða spillingu og sóun heim. Þetta er ekki „viðbragð við vá“, þetta er stjórnlaust kæruleysi klætt í búning björgunarstarfa, þar sem enginn hefur tæknilega burði til að segja „stopp“ við rándýrum reikningum ráðgjafa. Pólitísk umbun á kostnað almennings Enn meira hrollvekjandi er staðan við nýjan Landspítala (NLSH). Þar sjáum við kerfið í sinni tærustu mynd: Fyrrverandi þingmaður og formaður fjárlaganefndar er settur í forystu yfir flóknasta byggingarverkefni Íslandssögunnar. Þetta er ekki ráðning byggð á tæknilegri sérþekkingu eða reynslu af alþjóðlegri verkefnastýringu. Þetta er klassísk Íslensk pólitísk umbun þar sem allt verkefnið hefur liðið fyrir með ónýtum verkáætlunum, nær áratug í seinkun og risavaxin peningaleg framúrkeyrsla. Allt tjónið fært orðalaust á almenning. Það er hrópandi kaldhæðni að maðurinn sem átti að gæta fjárhirslu ríkisins á Alþingi, skuli nú leiða verkefni sem er orðið að botnlausri hít skattpeninga. Þetta er „silkihúfu-menningin“ í hnotskurn: Hópur fólks sem telur sig hafa einkarétt á sannleikanum og telur að stjórnmálatengsl trompi faglega rýni. Þessi hópur starfar í lokuðum bergmálshellum þar sem virðing fyrir titlum og flokksskírteinum er meiri en virðing fyrir raunverulegri sérþekkingu. Veiki verkkaupinn og „heilaþvotturinn“ Þessi barnalega stjórnun birtist í því að ríkið kemur að samningaborðinu sem veikasti aðilinn. Í stað þess að ríkið skilgreini verkefnið og setji ströng fjárhagsleg mörk, er ráðgjafafyrirtækjum úti í bæ afhentir stjórnartaumarnir. Ráðgjafinn hefur alla hvata til að gera verkefnið dýrara og flóknara, eins og raungerst hefur með Nýjan Landspítala, því ráðgjafarnir og verktakarnir græða á hverri unninni klukkustund. Ríkið, undir forystu pólitískra vildarvina, skrifar uppá alla reikninga án þess að blikka auga. Þetta er sturluð hringrás sem má kalla heilaþvott stjórnkerfisins. Embættismennirnir trúa því í raun og veru að þeir séu að gera gott, jafnvel þegar milljarðarnir brenna. Þeir mæta gagnrýni með tæknilegum hroka: „Þetta er of flókið fyrir leikmenn að skilja,“ segja þeir, á meðan raunverulegir fagaðilar horfa skelfingu lostnir á verklagið. Ábyrgðarleysi án afleiðinga Spilling á Íslandi er fágaðri en í öðrum löndum. Hún felst í því að sömu aðilar hanna verkið, áætla kostnaðinn og hefur svo eftirlit með sjálfum sér – allt undir verndarvæng pólitískra stjórnenda. Þetta er andstætt öllum alþjóðlegum viðmiðum um góða stjórnsýsluhætti. En á Íslandi er svona gjörspillt stjórnmálamenning rótgróin í stjórnkerfinu enda engin krafa um faglega eða kröfuharða stjórnun af hálfu stjórnmálamanna. Allt slíkt mundi eyðileggja tækifæri þeirra til að umbuna sínum mönnum. Það sem svíður mest er algjör skortur á persónulegri ábyrgð. Ef forstjóri í einkageiranum færi hundruð prósenta fram úr áætlun og klúðraði hönnun grunnvirkja, yrði hann rekinn og dreginn til ábyrgðar. Í íslensku stjórnsýslunni er slíkt klúður verðlaunað. Silkihúfan fær nýtt verkefni eða er færð til í starfi innan kerfisins. Ríkisendurskoðun kemur svo mörgum árum of seint og staðfestir vandann, en skýrslan endar í skúffu á meðan tapið heldur áfram að safnast upp. Þetta minnir helst á einhverskonar Útfararstofnun opinberra fjármuna sem skrifar skýrslu í formi minningargreinar um tapaða fjármuni ríkisins. Niðurstaðan Við getum ekki haldið áfram að láta blekkja okkur. Þessi „barnalega“ stjórnun er orðin kerfisbundin svik og lögbrot sem eru í raun rándýr munaður á kostnað almennings. Þetta er rán um hábjartan dag þar sem vopnið er óskýr stjórnsýsla og fórnarlambið er íslenskur almenningur. Afleiðingarnar eru aukin verðbólga og hækkaðir stýrivextir sem drepa heimilin í landinu. Raunverulegar breytingar krefjast þess að við rjúfum þessa pólitísku vinagreiðslu-keðju. Við þurfum lögbundna ábyrgð embættismanna, raunverulegan aðskilnað hlutverka og framar öllu: Stjórnendur sem eru valdir vegna þekkingar, en ekki tengsla. Það er kominn tími til að rífa silkihúfurnar ofan í augun á þeim sem stýra þessari eyðsluhringiðu og krefjast þess að ráninu linni. Við eigum ekki að sætta okkur við að vera fórnarlömb í kerfi sem er hannað til að mistakast á okkar kostnað og streyma fjármunum ríkisins í vasa útvalinna. Höfundur er byggingaverkfræðingur og áhugamaður um bætt samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Sigurðsson Mest lesið Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir skrifar Skoðun Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar