Fékk sex leikja bann fyrir hómófóbíu en ekki rasisma Sindri Sverrisson skrifar 24. apríl 2026 14:03 Gianluca Prestianni hélt fyrir munninn þegar hann lét niðrandi orð falla í garð Vinicius Junior. Getty/Eric Verhoeven Argentínumaðurinn Gianluca Prestianni, sem settur var í bann fyrir seinni leik Benfica við Real Madrid í umspili í Meistaradeild Evrópu í febrúar, hefur nú verið úrskurðaður í sex leikja bann.
Prestianni var strax settur í eins leiks bráðabirgðabann eftir að hann sást hylja munn sinn til að segja eitthvað ósæmilegt við Vinicius Junior, leikmann Real, í heimaleik Benfica í febrúar. Vinicius ásakaði Argentíumanninn um rasisma og sagði Prestianni hafa kallað sig „apa“. Prestianni sór þær ásakanir af sér og sagði að Vinicius hefði misheyrst. Aurelien Tchouameni, liðsfélagi Viniciusar, sagði að í raun hefði verið um hómófóbísk ummæli að ræða. Eftir rannsókn hefur aganefnd UEFA nú komist að þeirri niðurstöðu að dæma Prestianni í sex leikja bann. Í niðurstöðu nefndarinnar segir að það sé vegna niðrandi, sér í lagi hómófóbískrar, framkomu leikmannsins. Þrís þessara leikja eru skilorðsbundnir til tveggja ára og Prestianni hefur þegar setið af sér einn leik í banni. Hann þarf því að minnsta kosti að sitja af sér tvo leiki í viðbót og tekur bannið til leikja í keppnum á vegum UEFA en einnig mótsleikja með landsliði.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Fótbolti Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira