Breyttur bær Erna Kristín Stefánsdóttir skrifar 25. apríl 2026 09:30 Að finna aftur heim og upplifa muninn Við fjölskyldan höfum kallað Hveragerði, blómabæinn, ,,heim” í rúmlega átta ár. Á þeim tíma höfum við séð bæinn vaxa og þróast, en líka upplifað hann á mismunandi tímum í okkar eigin lífi. Áður en við fluttum tímabundið til Danmerkur vorum við á ákveðnum tímamótum. Okkur fannst vanta upp á að við næðum þeirri tengingu við samfélagið sem við þurftum og það var hluti af ástæðunni fyrir því að við ákváðum að prófa eitthvað nýtt. Að stíga aðeins út fyrir þægindarammann og sjá hlutina í nýju ljósi. Það var góð reynsla en þegar við fórum að velta fyrir okkur að flytja aftur heim árið 2023 fylgdi því ákveðin óvissa. Myndi þetta enn vera okkar staður? Myndum við finna okkur aftur hér eftir allt? Svarið kom fljótt og það kom hlýlega á óvart. Það sem tók á móti okkur var ekki bara kunnuglegt umhverfi heldur breyttur bær - einhvers konar ró og festing sem ég hafði ekki fundið áður. Það var eins og blómabærinn hefði þroskast á meðan við vorum í burtu. Við lentum mjúklega. Virkilega mjúklega. Og það var ekki tilviljun. Í daglegu lífi birtist það í hlutum sem kannski virðast smáir á yfirborðinu, en skipta öllu máli þegar upp er staðið. Áhersla á barnafjölskyldur var ekki bara eitthvað sem var talað um, hún var raunveruleg og áþreifanleg. Lækkun leikskólagjalda hafði strax áhrif á okkur. Aukinn frístundastyrkur létti undir. Þetta eru ekki háværar breytingar. Það eru ekki endilega þær sem rata í stærstu fyrirsagnirnar. En þær eru einmitt þess eðlis að gera lífið einfaldara, öruggara og betra, dag frá degi. Eftir því sem tíminn leið fór ég að átta mig á því að þessi tilfinning var hluti af einhverju stærra. Það var eins og ákveðin heildarsýn hefði náð fótfestu í bænum. Meiri ró í uppbyggingu. Skýrari stefna. Og sterkari tilfinning fyrir samhengi. Uppbygging í leik- og grunnskólum, bætt aðstaða og áframhaldandi fjárfesting í íþrótta- og frístunda aðstöðu sýnir að verið er að hugsa til framtíðar. Á sama tíma hefur þjónustan orðið markvissari, hvort sem það snýr að börnum, ungmennum eða eldri íbúum. Það sem situr þó mest eftir hjá mér er hvernig betur virðist vera haldið utan um heildina. Að þjónustan sé ekki bara til staðar heldur samofin. Að kerfin tali betur saman og að horft sé til fjölskyldunnar í heild. Í þessu skiptir miklu máli að Hveragerðisbær hefur tekið markvisst, skipulega og faglega utan um innleiðingu farsældar á kjörtímabilinu með samþættingu þjónustu í málefnum barna og fjölskyldna í takt við grundvallandi lagabreytingar í málaflokknum. Í stað þess að draga fæturna í mikilvægum breytingum hefur þjónustan verið þróuð áfram af festu og markmiði með það að markmiði að efla gæði lífsnauðsynlegrar þjónustu fyrir börn og fjölskyldur. Þetta kjörtímabilið hefur það verið sett á oddinn. Og við fjölskyldan finnum fyrir þeim breytingum. Þar endurspeglast sú nálgun sem hefur verið að ryðja sér til rúms í málefnum barna að styðja fyrr við, hlusta betur og tryggja að enginn falli á milli. Hér í Hveragerði er þessi hugsun farin að lifa í verki. Það eru miklar breytingar frá því sem áður var. Sem íbúi finn ég líka fyrir breytingum í andrúmsloftinu sjálfu. Meiri samheldni. Meiri yfirvegun. Og kannski það sem skiptir mestu, meiri tilfinning fyrir að verið sé að vinna með samfélaginu, ekki bara fyrir það. Kannski er það líka hluti af því sem skýrir þessa tilfinningu að hér virðist hafa tekist að skapa vettvang þar sem ólíkar raddir fá að njóta sín og vinna saman. Af minni upplifun hefur Okkar Hveragerði lagt áherslu á slíka nálgun, þar sem ólíkar raddir fá að njóta sín og horft er frekar til lausna en línudans milli flokka. Sú nálgun virðist hafa einkennt þá forystu sem tók við eftir kosningarnar 2022. Í samstarfi við aðra, og með bæjarstjóranum Pétri Markan í fararbroddi, hefur verið lögð áhersla á stöðugleika, samráð og markvissa uppbyggingu. Það er ekki eitt stórt mál sem útskýrir þessa tilfinningu. Heldur frekar heild sem hefur smám saman byggst upp. Við fórum á sínum tíma með spurningar um hvort þetta væri enn okkar staður, en þegar við komum aftur fengum við svarið. Ekki í einu stóru augnabliki, heldur í litlum, daglegum upplifunum sem smám saman byggðu upp þá tilfinningu sem ég finn í dag, líklega sterkari en nokkru sinni áður, að Hveragerði er okkar heimili. Ekki bara vegna þess að við búum hér, heldur vegna þess hvernig samfélagið hefur þróast og hvernig það tók á móti okkur aftur. Það er ekki sjálfgefið. Og einmitt þess vegna skiptir það máli að halda áfram á þeirri braut sem hefur verið mörkuð - að byggja á gæðum, samheldni og yfirvegaðri uppbyggingu. Það er vegferð sem ég vil sjá Okkar Hveragerði halda áfram að leiða, fyrir blómabæinn okkar og fyrir þau sem hér búa, nú og í framtíðinni. Höfundur er íbúi í Hveragerði, guðfræðingur, rithöfundur og starfandi markaðsstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hveragerði Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar