Fótbolti

Hákon á sínum stað er Lille vann mikil­vægan sigur

Aron Guðmundsson skrifar
Hákon Arnar Haraldsson er lykilmaður í liði Lille sem er eitt það besta í frönsku deildinni.
Hákon Arnar Haraldsson er lykilmaður í liði Lille sem er eitt það besta í frönsku deildinni. Getty/Catherine Ivill

Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Hákon Arnar Haraldsson, var í byrjunarliði Lille sem vann mikilvægan sigur á Paris í frönsku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur 1-0 sigur Lille, liðið er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti. 

Hákon spilaði 78 mínútur í leik dagsins þar sem Matías Fernández skoraði eina mark leiksins á 26.mínútu úr vítaspyrnu. 

Lille tekur stigin þrjú og er því alls komið með 57 stig og lyftir sér upp í þriðja sæti frönsku úrvalsdeildarinnar. Þar er liðið með sama stigafjölda og Lyon í fjórða sætinu en betri markatölu. 

Þá eru sex stig upp í Lens í öðru sætinu og tólf stig upp í topplið Paris Saint-Germain sem er komið langt með að tryggja sér franska meistaratitilinn. Lens og PSG eiga bæði leik til góða á Lille og Lyon. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×