Frá auðlindaforskoti til þekkingarforskots Sigurður Atli Jónsson skrifar 27. apríl 2026 07:21 Kerfisbreyting í alþjóðlegum orkumálum Við lifum á tímum mikilla breytinga. Alþjóðlegt viðskiptaumhverfi er óstöðugra en lengi áður. Aðfangakeðjur eru viðkvæmari. Orkuöryggi er orðið eitt af lykilatriðum í efnahagslegu sjálfstæði ríkja. Áhersla hefur færst frá einfaldri hagkvæmni yfir í öryggi, áfallaþol, sjálfbærni og tæknilegt sjálfstæði. Í þessu samhengi er orka ekki lengur aðeins framleiðsluþáttur. Hún er orðin strategísk auðlind. Við sjáum þessa þróun birtast alþjóðlega í aukinni áherslu á innlenda orkuframleiðslu, fjölbreyttari orkugjafa, aukinni fjárfestingu í innviðum, hraðari orkuskiptum og vaxandi áherslu á græna iðnvæðingu. Þetta er ekki tímabundin sveifla heldur varanleg kerfisbreyting. Ísland í einstakri stöðu Í þessum heimi hefur Ísland einstaka stöðu. Við búum yfir nánast 100% endurnýjanlegu orkukerfi í hitun og raforku, áratuga reynslu af uppbyggingu jarðhita og vatnsafls, traustum stofnunum, stöðugu rekstrarumhverfi, sterkum innviðum og öflugum mannauði. Í heimi þar sem lönd leitast sífellt meira við að tryggja sér sjálfbærar, öruggar og kolefnissnauðar orkulausnir, er íslensk þekking og reynsla eftirsótt. Þetta skapar tækifæri, en líka ábyrgð. Ísland hefur lengi byggt samkeppnisforskot sitt á hlutfallslegum yfirburðum í framleiðslu endurnýjanlegrar orku. Náttúruleg skilyrði, verkfræðileg þekking og innviðir gera það að verkum að raforka og varmi eru framleidd hér með lægri fórnarkostnaði en í flestum öðrum löndum. Þetta forskot hefur skapað mikilvægan grunn fyrir atvinnuuppbyggingu, m.a. í orkuvinnslu, orkufrekum iðnaði, gagnaverum, grænni matvælaframleiðslu og fjölmörgum öðrum greinum. Frá auðlind til þekkingar En heimurinn er að breytast. Alþjóðleg orkuskipti og aukin tæknivæðing hafa í för með sér að verðmætasköpun færist sífellt meira frá sjálfri orkuframleiðslunni yfir í þekkingu, tæknilausnir, stafræn orkukerfi, samþættingu orku og annarra atvinnugreina, ný viðskiptalíkön og útflutningshæfar lausnir sem vaxa upp úr íslensku orkukerfi en eiga erindi á alþjóðamarkaði. Rannsóknir sýna að í orkukerfum framtíðarinnar verður samkeppnisforskot sífellt meira byggt á nýsköpun, kerfishugsun og getu til að þróa og innleiða lausnir á mörkum orku, tækni og atvinnulífs. Sem dæmi um þetta, þá á Kína ekki sólina. Sólin er auðlind allra. En Kína stjórnar allri virðiskeðjunni og 80-90% af heimsframleiðslu sólarsella fer fram í Kína. Auðlindaforskot eitt og sér er því ekki lengur nægjanlegt. Til að halda áfram að vera samkeppnishæf þurfum við að byggja upp þekkingarforskot. Einkaleyfi sem mælikvarði á nýsköpun Þetta sést glögglega þegar einkaleyfi eru skoðuð sem mælikvarði á nýsköpun. Samkvæmt nýrri ársskýrslu Hugverkastofunnar eiga íslensk fyrirtæki nánast engar einkaleyfisumsóknir á sviði endurnýjanlegrar orku. Við erum þar miklir eftirbátar hinna Norðurlandaþjóðanna. Sú þekking og þær uppgötvanir sem hér hafa orðið til í jarðvarma og vatnsafli hafa að mestu leyti ekki verið varðar með hugverkavernd. Samanburðurinn við aðrar atvinnugreinar er sláandi: í sjávarútvegi og matvælatækni hefur iðnaðurinn, m.a. í gegnum JBT Marel og Kerecis, byggt upp öfluga einkaleyfisskrá sem myndar bæði tekjur og varanlegt samkeppnisforskot á alþjóðamarkaði. Þetta er áskorun, en um leið tækifæri til að gera betur. Samkeppnishæfni orkutengdrar starfsemi ræðst ekki eingöngu af því hversu margar megavattstundir við framleiðum, heldur af því hvernig við nýtum orkuna, hvaða virðiskeðjur byggjast í kringum hana, hversu hratt við þróum nýjar lausnir, hvernig við tengjum saman ólíkar atvinnugreinar og hversu aðlaðandi vistkerfið er fyrir frumkvöðla, fjárfesta og alþjóðlega samstarfsaðila. Samvinna er svarið Ísland þarf að styrkja sig sem leiðandi í endurnýjanlegri orku og orkuskiptum, ekki aðeins í framleiðslu, heldur í tækniþróun, nýsköpun og útflutningi lausna. Framtíð orkumála á Íslandi mótast ekki af einum aðila, einni atvinnugrein eða einni stofnun. Hún mótast af samvinnu og heilbrigðri samkeppni. Samvinnu milli atvinnulífs og stjórnvalda, milli rannsókna, menntunar og nýsköpunar, og milli hugmynda og fjármagns. Ein besta leiðin til þess er skipulögð klasastarfsemi. Hún er þekkt og árangursrík leið til að auka verðmætasköpun þar sem fyrir er landfræðileg samþjöppun tengdra fyrirtækja, birgja, rannsóknastofnana og sérþekkingar á ákveðnum sviðum, og til að umbreyta óverndaðri þekkingu í samkeppnisforskot. Starfsemi á sviði endurnýjanlegrar orku hér á landi er frábært dæmi um klasa. Nýleg sameining klasavettvanga á sviði endurnýjanlegrar orku í einn sameiginlegan vettvang, ORKIS, er skýrt dæmi um þessa hugsun í verki, og merki um að atvinnulífið sjálft sjái gildið í sameiginlegri nálgun. Vettvangur sem þessi nýtist líka vel í samstarfi við stjórnvöld, sem nú hafa kynnt atvinnustefnu þar sem áhersla er einmitt lögð á samvinnu háskóla, atvinnulífs og stjórnvalda. Klasavettvangur myndar sterka brú milli þessara aðila, auðveldar nýsköpun með tengingum við fjármagn og samvinnu og hefur áhrif á stefnumótun og framtíðarsýn í orkugeiranum. Verkefnið framundan er að umbreyta auðlindaforskoti í forskot byggt á þekkingu, nýsköpun og alþjóðlegri verðmætasköpun. Höfundur er stjórnarformaður Orkuklasans, sem er eitt af stofnfélögum ORKIS, og forstjóri Arctic Europe. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar