„Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Eiður Þór Árnason og Birgir Olgeirsson skrifa 27. apríl 2026 19:44 Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, og Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræddu málið í fréttum Sýnar. Sýn Forsætisráðherra sat fyrir svörum á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun þar sem tekist var á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið (ESB). Þingflokksformaður Viðreisnar sakar stjórnarandstöðuna um hræðsluáróður.
Deilur þingmanna meirihluta og minnihluta snúa meðal annars að því hvort aðildarviðræður feli einfaldlega í sér að kanna hvaða samningar eru í boði eða slíkar viðræður leiði strax til aðlögunar íslensks stjórnkerfis og lagaumhverfis að ESB. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur kallað eftir svörum um aðlögunarstyrki og rammasamninga ESB. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafnar því að eitthvað óafturkræft muni gerast ef meirihluti kjósenda velur að ganga til viðræðna. Klippa: Deilt um þjóðaratkvæðagreiðsluna Guðlaugur Þór bendir á að ríkisstjórnin gangi út frá því að kosið sé um að halda áfram með viðræður við ESB sem hófust í tíð þáverandi ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. „Ókei, komið þá með allt það sem gerðist síðast þegar við fórum í þessa vegferð. Hvað þýddi það að klára ákveðna kafla, hverjir stóðu út af og svo framvegis. Það sem ég var að spyrjast fyrir um í dag var einfaldlega þetta: „Heyrðu, það eru hérna samningar sem liggja fyrir og það var þingsályktun sem var samþykkt á sínum tíma“ sem ég taldi nú vera úr gildi fallna en ríkisstjórnin segir í gildi.“ „Þar er bara samningur sem segir skýrt að Evrópusambandið er að útdeila fjármunum á Íslandi til að aðlaga okkur að evrópsku regluverki. Þetta voru 8.000 milljónir sem fóru í það. Og ég spurði bara: „Hvenær á að kynna þetta?“ Því auðvitað á almenningur rétt á að fá að vita hvað felst í því að segja já, hvað gerðist síðast og á hverju ríkisstjórnin er að byggja þessa atkvæðagreiðslu á,“ sagði Guðlaugur í kvöldfréttum Sýnar. Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi verkefnastjóri Evrópuvefs HÍ, hefur sagt að bæði sé um að ræða aðildar- og aðlögunarviðræður en ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hafi fengið það í gegn að fresta aðlögunarhlutanum þangað til að sjálf innganga í ESB væri samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Sek um hræðsluáróður Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, segir stjórnarandstöðuna stunda hræðsluáróður. „Mér finnst stjórnarandstaðan og kannski ekki síst Guðlaugur vera svolítið upptekin af öðru heldur en að ræða ávinninginn af mögulegri aðild. Þetta snýst auðvitað um það að þjóðin segi til um það hvort hún vilji halda þeim áfram eða ekki. Þá skulum við ræða hvaða möguleikar fylgja þeirri stöðu. Viljum við ekki lægri vexti? Viljum við ekki lægri verðbólgu? Viljum við ekki að heimili, fyrirtæki, lítil og meðalstór fyrirtæki njóti betri vaxtakjara eins og tíðkast í löndunum í kringum okkur? Þetta á auðvitað umræðan að einhverju leyti að snúast um. En ég ætla samt auðvitað að taka undir með Guðlaugi að formið skiptir auðvitað líka máli. En ávinningurinn hlýtur alltaf að vera það sem við kannski beinum sjónum okkar helst að,“ svarar Sigmar. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.Vísir/Vilhelm Feli í sér framsal valds Guðlaugur Þór segist gjarnan vilja ræða kosti og galla Evrópusambandsins. Forsætisráðherra hafi í dag staðfest að aðild að sambandinu fæli í sér að ESB-réttur tæki gildi hér á landi. „Það þýðir til dæmis og mikilvægt að fólk viti af því að við getum ekki samið nein lög sem eru í andstöðu við ESB-lögin. ESB-lögin sjálfkrafa gilda. Öll gömlu lögin sem eru í andstöðu við ESB-lögin, þau munu falla úr gildi. Við munum líka framselja mjög mikið framkvæmdarvald sem og dómsvald. Erum við ekki sammála um það að fólk fái að vita um þetta? Ég er alltaf til í að ræða við Sigmar um vexti og annað slíkt en það er svolítið áhugavert hins vegar af því að þeir byrjuðu að tala um að þeir vissu ekki hvað fælist í þessu. Núna er allra handa ávinningur. Ræðum það en það verður líka að leggja spilin á borðið því að það er sagt að það á að byggja þetta á gömlu aðildarumsókninni. Það var í gangi í þrjú ár það ferli. Það er mikið af gögnum sem liggja fyrir. Er ekki sanngjarnt að fólk fái að sjá það?“ Sigmar segir þetta snúast um að gangast undir sama regluverk og Danir, Svíar, Finnar, Þjóðverjar og aðrar aðildarþjóðir Evrópusambandsins hafa innleitt. „Þetta hefur kallað fram mikla hagsæld og ávinning í þessum löndum og um það þarf auðvitað umræðan að einhverju leyti að snúast því þessi ríki eru auðvitað að nýta fullveldi sitt til hagsbóta fyrir þjóðir sínar efnahagslega.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Viðreisn Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Utanríkismál Tengdar fréttir „Var þetta einhver skets?“ Guðlaugur Þór Þórðarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hélt því fram að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefði ekki heyrt stakt orð í fyrirspurn sinni; svar hennar væri eitt það furðulegasta sem heyrst hafi í þingsal. 27. apríl 2026 16:24 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Sjá meira
„Var þetta einhver skets?“ Guðlaugur Þór Þórðarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hélt því fram að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefði ekki heyrt stakt orð í fyrirspurn sinni; svar hennar væri eitt það furðulegasta sem heyrst hafi í þingsal. 27. apríl 2026 16:24