Aron: 4-2 verður að duga í dag Árni Jóhannsson skrifar 27. apríl 2026 20:46 Aron Sigurðsson skoraði tvö í dag var hættulegur á móti FH. Vísir / Anton Brink Aron Sigurðsson leiddi sína menn í KR til sigurs gegn FH fyrr í kvöld 4-2. Aron sjálfur skoraði tvö mörk í kvöld og stýrði miðjunni og var að finna frábæra framherja sína í fætur og svæði í allt kvöld.
Fyrirliðinn var spurður að því hvort þetta gerðist nokkuð betra en það sem KR-ingar sýndu áhorfendum í kvöld. Aron gat verið sammála því að þetta hefði verið flottur leikur. „Við spiluðum góðan leik. Við erum að byggja á fyrri frammistöðum. Það hafa verið þrjár góðar frammistöður í röð hjá okkur og það er geðveik stemmning í stúkunni. Það er bara gaman að spila. Það eru allir á tánum og við erum að spila eftir okkar gildum. Þetta var flott í dag.“ KR-ingar hafa skorað snemma leiks í öllum fjórum leikjunum til þessa í mótinu. Hvað er galdurinn á bakvið það? „Bara að við erum „on it“. Við komum sterkt inn í leikina. Leikirnir okkar eru líka þannig. Við erum góðir í að búa til færi hvort sem það er á fyrstu eða 30. eða 90. mínútu. Ég held að það sé málið, við erum helvíti góðir í sókn.“ KR var mjög orkumikið sem lið í fyrri hálfleik en leikurinn róaðist mjög í seinni hálfleik. Sér Aron einhverja ástæðu fyrir þeirri þróun? „Þeir breyta náttúrlega til. Hleypa leiknum upp í svolitla vitleysu. Ég veit ekki hversu mörg gul þeir fá en það er þeirra leið til að komast inn í leik. Ég býst við því og það slökknaði á þessu. Þeir gera kannski ágætlega í þessu að hleypa þessu í eitthvað rugl í seinni hálfleik.“ Hefðu KR-ingar viljað rauð spjöld á FH? Það voru nokkur brot á tæpasta vaði að mati blaðamanns. „Nei nei, ég man ekki eftir einhverju afgerandi broti. Þeir voru fastir fyrir og það er kannski þeirra leikur. Við stóðum það af okkur og þetta var bara barátta í seinni hálfleik. Við sundurspiluðum þá samt og fengum fullt af færum. Við hefðum átt að vinna þetta stærra en 4-2 verður að duga í dag. Næsti leikur KR er gegn Val á Hlíðarenda um helgina. Hvernig tilfinningu hefur Aron fyrir þeim leik? „Bara góða. Valur eru hörku lið. Við eigum harma að hefna en það endaði illa síðast þegar við fórum á Hlíðarenda. Við mætum gíraðir í þennan leik. Eins og alla leiki í þessari deild. Við fengum svolítið að kenna á því í fyrsta leiknum því ef við mætum ekki til leiks þá vitum við alveg hvað gerist. Það eru hörkulið í þessari deild og ef menn mæta ekki 100% þá eru þetta drulluerfiðir leikir. Við þurfum að mæta gíraðir og ég held að það sé ekki vandamál að gíra sig upp gegn Val.
Besta deild karla KR Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Sjá meira