Innherji

Af­koman yfir væntingum en horfur „ekki góðar“ vegna hærri elds­neytis­kostnaðar

Hörður Ægisson skrifar
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir ýmsar ytri aðstæður hafa áhrif á flugrekstur og því sé mikilvægt að tryggja fyrirsjáanleika til lengri tíma í sem flestum rekstrarþáttum, svo sem kjarasamningum sem eru nú lausir. Viðræðum Icelandair við Félag íslenskra atvinnuflugmanna og Flugvirkjafélag Íslands hefur verið vísað til Ríkissáttasemjara.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir ýmsar ytri aðstæður hafa áhrif á flugrekstur og því sé mikilvægt að tryggja fyrirsjáanleika til lengri tíma í sem flestum rekstrarþáttum, svo sem kjarasamningum sem eru nú lausir. Viðræðum Icelandair við Félag íslenskra atvinnuflugmanna og Flugvirkjafélag Íslands hefur verið vísað til Ríkissáttasemjara. Lýður Valberg

Afkoma Icelandair á fyrsta fjórðungi var nokkuð yfir væntingum greinenda, meðal annars vegna eignasölu og lægri eldsneytiskostnaður en óttast var, og batamerki er að sjá í rekstri félagsins. Áframhaldandi hátt raungengi og vaxandi kostnaður vegna olíuverðshækkana setur hins vegar mark sitt á horfurnar inn í árið og útlit er fyrir lakari afkomu á öðrum fjórðungi en á sama tíma í fyrra þótt einingatekjur muni enn aukast.


Tengdar fréttir

Brýnt að „varna“ því að út­flutnings­greinar glími við of miklar kostnaðar­hækkanir

Núna er þörf á „meiri varfærni og festu“ við stjórn ríkisfjármála samhliða því að hrint er í framkvæmd „metnaðarfullum“ efnahagsumbótum, að því er segir í sérstöku minnisblaði fjármála- og efnahagsráðherra, eigi að takast að rjúfa þá „stöðnun lífskjara“ sem er sögð hafa varað í nærri áratug. Þá er sagt brýnt að koma í veg fyrir að kostnaðarhækkanir í útflutningsgreinum séu umfram það sem þekkist í nágrannaríkjum, einkum við núverandi efnahagsaðstæður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×