Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Boði Logason skrifar 29. apríl 2026 10:20 Kolbeinn Tumi Daðason, Árni Sæberg, Sunna Sæmundsdóttir og Atli Ísleifsson mynda stjórnendateymi fréttastofunnar. Vísir/Vilhelm Atli Ísleifsson og Sunna Sæmundsdóttir hafa tekið við stöðum fréttastjóra á fréttastofu Sýnar. Þá er Árni Sæberg orðinn varafréttastjóri á fréttastofunni. Kolbeinn Tumi Daðason er ritstjóri fréttastofunnar sem segir landsmönnum fréttir á Bylgjunni, Sýn og Vísi.
Um er að ræða breytingar eftir að Erla Björg Gunnarsdóttir lét af störfum sem ritstjóri fréttastofunnar í janúar. Kolbeinn Tumi var áður fréttastjóri allra miðla og Atli og Sunna varafréttastjórar. Atli hefur starfað sem fréttamaður á fréttastofunni frá árinu 2014 og gegnt stöðu varafréttastjóra frá árinu 2021. Hann er með BA-gráðu í stjórnmálafræði og meistaragráður í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands og European Affairs frá Háskólanum í Lundi. Sunna hóf störf á fréttastofunni árið 2017 sem fréttamaður í kvöldfréttum Stöðvar 2 og hefur síðan þá gegnt ýmsum störfum innan hennar. Sunna er annar umsjónarmanna Kompáss og hefur verið tilnefnd til blaðamanna-, Eddu- og Íslensku sjónvarpsverðlauna fyrir störf sín á þeim vettvangi. Hún tók við stöðu varafréttastjóra árið 2021. Áður var hún blaðamaður hjá Morgunblaðinu en hún er með BA-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Árni hóf störf á fréttastofunni árið 2021. Hann er með BA-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur sérhæft sig í umfjöllun um dómsmál og viðskipti. Kolbeinn Tumi byrjaði feril sinn í blaðamennsku sem íþróttafréttamaður á Fréttablaðinu og Vísi og tók við stöðu fréttastjóra Vísis 2014 og allra miðla fréttastofunnar árið 2021. Hann er með meistaragráðu í blaðamennsku frá Háskóla Íslands eftir að hafa menntað sig og starfað sem byggingaverkfræðingur. Hann hefur í tvígang verið tilnefndur til blaðamannaverðlauna. „Atli, Sunna og Árni hafa um árabil verið lykilfólk á fréttastofunni sem sinnir krefjandi starfi frá morgni til kvölds, alla daga ársins. Fréttastofan er skipuð úrvalsfólki blaðamanna og framleiðslufólks – samheldnum hópi sem hefur það skýra markmið að færa landsmönnum vandaðar og traustar fréttir,“ segir Kolbeinn Tumi.
Sýn Vistaskipti Fjölmiðlar Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira