Bretland og Norðurslóðir Bryony Mathew skrifar 30. apríl 2026 10:12 Norðurslóðir eða the High North eru ekki lengur fjarlægt og abstrakt málefni. Það hefur á stuttum tíma orðið eitt af mikilvægustu svæðunum sem mótar framtíð Evrópu og Norður-Atlantshafsins. Norðurslóðir skipta máli fyrir Bretland vegna þess að svæðið tengist náið okkar eigin öryggi nánar tiltekið efnahagslegri seiglu okkar og stöðugleika Evró-Atlantshafssvæðisins. Í Norður-Atlantshafinu má finna siglingaleiðir, sæstrengi og gagnakapla sem fólk byggir sitt daglega líf á. Eftir því sem loftslagsbreytingar breyta aðgengi að svæðinu og pólitísk og efnahagsleg samkeppni eykst hefur það orðið að áherslumáli hjá Bretlandi að viðhalda stöðugleika, öryggi og fyrirsjáanleika á norðurslóðum. Öryggi á Norðurslóðum, nálgun Bretlands Nálgun Bretlands hefur verið vel ígrunduð. Þetta snýst hvorki um að hervæða norðurslóðasvæðið, né tilefni til að ná forskoti. Þetta snýst um að draga úr áhættu, minnka líkur á mistökum og til að vinna með bandamönnum til að tryggja að þetta mikilvæga svæði verði áfram stýrt af reglum og lögum. Þetta byggir á fjórum einföldum hugmyndum. Í fyrsta lagi, stöðugleiki gegnum fælingarmátt. Í gegnumAtlantshafsbandalagið stuðlar Bretland að varnaraðgerðum í lofti og á legi yfir Norður-Atlantshafinu sem eykur yfirsýn og dregur úr hættu á stigmögnun. Í öðru lagi, að skilja hvað er að gerast á svæðinu. Norðurslóðasvæðið er krefjandi umhverfi. Auknar siglingar, meiri starfsemi undir yfirborði sjávar og mikilvægir neðansjávarinnviðir þýða að sameiginleg yfirsýn er nauðsynleg, sérstaklega á svæðum þar sem erfitt er að fylgjast með en verða æ mikilvægari. Í þriðja lagi, seigla. Öryggi í dag þýðir meira en að hafa her. Það felur í sér; netöryggi, borgaralegan viðbúnað og vernd mikilvægra innviða. Að byggja upp viðnámsþrótt í samfélögum og öflug viðbragðskerfi til að bregðast við krísum er nú lykilatriði í langtíma stöðugleika á norðurslóðum. Í fjórða lagi, samvinna og ábyrgð. Í heimi þar sem togstreita er meiri, skipta alþjóðalög, gegnsæi og ábyrg hegðun jafnvel meira máli en nokkru sinni fyrr. Samvinna þar sem mögulegt er og aðgát þar sem þörf krefur, eru áfram bestu verkfærin til að stýra áhættu. Þessi grundvöllur mótar hvernig Bretland starfar á svæðinu. Síðar á þessu ári mun breskt flugmóðurskip og fylgdarsveit undir forystu HMS Prince of Wales, stærsta herskips konunglega breska sjóhersins, vera send til Norður-Atlantshafs og norðurslóða undir aðgerðar nafninu Operation Firecrest. Bresk skip, þotur konunglega flughersins og þúsundir áhafnarmeðlima munu starfa hlið við hlið með nánum bandamönnum, þar á meðal Bandaríkjunum og Kanada. Aðgerðin mun leggja beint af mörkum til nýs verkefnis Atlantshafsbandalagsins, ArcticSentry, sem var sett á laggirnar fyrr á þessu ári að tillögu Bretlands. Bretland, sem leiðandi þjóð sameiginlegu viðbragðssveitarinnar eða Joint Expeditionary Force (JEF) bandalags tíu norður-evrópskra landa, tekur þátt í skipulagningu Arctic Endurance. Það verkefni tryggir að starfsemi JEF styðji við viðleitni Atlantshafsbandalagsins og styrkir samhæfingu í lofti, á láði og legi ásamt netöryggi og málefnum geimsins. Nýlega var tilkynnt að Bretland muni taka við stjórn herstjórnarmiðstöðvar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk sem ber ábyrgð á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Þetta endurspeglar sérfræðiþekkingu Bretlands á sviði siglinga- og sjóvarna á sama tíma og það styður við víðtækari stefnu Atlantshafsbandalagsins í átt að meiri evrópskri ábyrgð, þar sem Bandaríkin eru áfram mikilvæg stoð. Af hverju Ísland skiptir máli Ofangreind atriði samræmast vel einstöku hlutverki Íslands. Mikilvægi Íslands liggur ekki í hernaðarlegu afli, heldur í landafræði, innviðum og forystu. Staðsett í hjarta GUKI- hliði landanna þriggja, Grænlands, Bretlands og Íslands, gegnir Ísland ómissandi hlutverki við að gera bandamönnum kleift að halda yfirsýn og framkvæma aðgerðir á Norður-Atlantshafi. Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins á Íslandi hjálpar til við að tryggja lofthelgi bandamanna, þar sem breskar flugvélar leggja reglulega sitt af mörkum í nánu samstarfi við íslensk yfirvöld. Breskar sjóeftirlitsflugvélar eru gerðar út frá Keflavík og vinna með íslensku Landhelgisgæslunni og bandamönnum að því að fylgjast með kafbátastarfsemi, vernda neðansjávarinnviði og styrkja sameiginlega yfirsýn á hafsvæðinu. Ekki síður mikilvægt er pólitískt framlag Íslands. Í gegnum Atlandshafsbandalagið og sameiginlegu viðbragðssveitina (JEF) sem hjálpar Íslandi að móta hvernig við hugsum um öryggi, viðnámsþrótt og viðbúnað á norðurslóðum. Bretland fagnar fyrstu varnarmálastefnu Íslands, sem kemur á mikilvægum tímapunkti. Horft fram á veginn Norðurslóðir munu aðeins verða mikilvægari. Loftslagsbreytingar, tæknibreytingar og breytt alþjóðlegt landslag munu færa nýjar áskoranir og ný ábyrgðarhlutverk. Í þessu samhengi verður Ísland, staðsett í miðju Norður-Atlantshafinu, áfram ómissandi. Bretland hlakkar til að halda áfram nánu samstarfi við Ísland, tvíhliða, í gegnum Atlandshafsbandalagið og sameiginlegu viðbragðssveitina (JEF) til að viðhalda stöðugleika, styrkja viðnámsþrótt og vernda innviði sem varða báðar þjóðir. Allt þetta samstarf endurspeglast í reglulegu tvíhliða samráði Bretlands og Íslands, sem dýpkar samvinnu þjóðanna enn frekar. Fyrir bæði löndin snýst samstarf á norðurslóðum ekki um stöðumyndun. Þetta snýst um umsjón: að vernda svæði sem skiptir miklu máli fyrir sameiginlegt öryggi og velmegun okkar, nú og í framtíðinni. Höfundur er sendiherra Bretlands á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Norðurslóðir Bretland Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Sjá meira
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun
Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson Skoðun
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun