414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar 1. maí 2026 13:16 Meirihluti Kópavogsbæjar hafnaði stuðningi við 24 íbúðir Bjargs í Hallarhvarfi. Meirihlutinn valdi markaðinn frekar en fólkið Í febrúar hafnaði meirihluti bæjarráðs Kópavogs umsókn Bjargs íbúðafélags um stofnframlag vegna 24 íbúða í Hallarhvarfi og gleymdi að húsnæðisöryggi eru mannréttindi, ekki forréttindi hinna efnameiri. Bókun meirihlutans á fundi bæjarráðs: „Við úthlutun í Vatnsendahvarfi hefur bærinn haft til viðmiðunar um að auka framboð húsnæðis af öllum gerðum fyrir kaupendur á almennum húsnæðismarkaði. Það samræmist ekki þeim áherslum að verða við beiðni frá Bjargi íbúðafélagi um fjárhagsstuðning til uppbyggingarinnar að fjárhæð um 220 milljónir kr.“ Hér birtist skýr pólitísk forgangsröðun. Þegar valið stóð á milli þess að tryggja fleirum húsnæðisöryggi* með stuðningi sveitarfélagsins við óhagnaðardrifna uppbyggingu viðráðanlegs leiguhúsnæðis valdi meirihlutinn markaðinn. Ákvarðanir sem þessi skipta máli, húsnæðismál snúast ekki bara um lóðir, fermetra og byggingarrétt heldur hver fær tækifæri til að eiga heimili í Kópavogi. Bjarg er raunhæf leið til fjölbreytni í húsnæðismálum Íbúðir á vegum Bjargs eru hluti af almenna íbúðakerfinu*. Kerfi sem er ætlað fólki sem stendur fjárhagslega ofar þeim sem eiga rétt á félagslegu húsnæði bæjarins en hefur ekki kost á að gerast “kaupendur á almennum húsnæðismarkaði” í núverandi ástandi. 414 eru á biðlista, í Kópavogi, eftir húsnæði á vegum Bjargs. Það eru að minnsta kosti 414 betri ástæður en þær sem meirihlutinn setti fram. Öll eiga að geta búið í Kópavogi í öruggu húsnæði, hvort sem þau vilja eiga eða leigja. Húsnæðisstefna bæjarins þarf að taka stakkaskiptum og byrja að snúast um fólk, ekki bara um að hámarka verð byggingarréttar. Markaðurinn leysir ekki húsnæðisvandann Ný greining ASÍ og BSRB sýnir slaka stöðu almenna íbúðakerfisins. Kerfið, sem átti að tryggja fólki öruggt og viðráðanlegt húsnæði, var gott sem lagt niður á nýrri öld, öld markaðsvæðingar húsnæðis. Árið 2000 voru 4,4 íbúðir í almenna íbúðakerfinu og á hverja 100 á vinnumarkaði, 2007 var talan 0,0 og þrátt fyrir mikinn þrýsting á stjórnvöld og gríðarlegan húsnæðisvanda undanfarin 10 ár var hlutfallið í fyrra aðeins komið í 0,7 íbúðir á hverja 100 á vinnumarkaði. Afleiðingarnar blasa við, húsnæðisverð hefur rokið upp, leigumarkaðurinn er dýr og ófyrirsjáanlegur og stór hópur fólks hefur hvorki raunhæfan möguleika á að kaupa húsnæði né búa við öryggi á almennum leigumarkaði. Þarna verður almenna íbúðakerfið að fá tækifæri til að sinna grunnþörfum fólks. Þetta er skynsamlegt húsnæðiskerfi fyrir fólk á vinnumarkaði sem borgar skatta, vill byggja upp líf sitt, en á lítinn eða engan séns á markaðsdrifnum húsnæðismarkaðnum, sem hefur farið langt fram úr greiðslugetu venjulegs fólks. Húsnæði fyrir öll á viðráðanlegum kjörum Viðráðanlegt húsnæði er gott fyrir allt samfélagið. Þegar fólk býr við húsnæðisöryggi verður samfélagið sterkara, börn búa við meiri stöðugleika og fá tækifæri til að þroskast sem einstaklingar, fjölskyldur fá betra fjárhagslegt svigrúm, fólk getur tekið virkari þátt í samfélaginu, hverfin verða fjölbreyttari og bærinn verður betri fyrir fólk á öllum æviskeiðum. Öruggt húsnæði er nefnilega grunnþörf okkar allra. Það er miklu meira en þak yfir höfuðið, þar verður til heimili okkar, staðurinn þar sem við hlöðum batteríin, ölum upp börn, byggjum ný sambönd og viðhöldum þeim eldri. Í öryggi getum við tekið stórar og litlar ákvarðanir um framtíðina en ef heimili þínu fylgir stöðugt óvissuástand verður allt þetta margfalt erfiðara. Við í Vinstri grænum og óháðum ætlum að efla almenna íbúðakerfið með því að styðja við óhagnaðardrifin leigufélög eins og Bjarg, taka frá lóðir fyrir viðráðanlegt húsnæði og fjölga félagslegum íbúðum. Tryggjum fjölbreyttari búsetukosti fyrir ungt fólk, barnafjölskyldur, eldri íbúa, fatlað fólk og fólk með lágar eða meðaltekjur. Ný uppbygging og skipulag bæjarins á alltaf að taka mið af þörfum íbúa, ekki aðeins af markaðsverði byggingarréttar. Kópavogur ber ábyrgð á því að það sé til nægt húsnæði fyrir öll á kjörum sem þau ráða við. Við þurfum heildstæða stefnu fyrir öll sem búa í Kópavogi, hvort sem þau vilja eiga eða leigja. Kópavogur má ekki verða bær þar sem aðeins þau tekjuhæstu, og börnin þeirra, geta búið við öryggi. Kópavogur á að vera fyrir okkur öll. Höfundur er oddviti Vinstri grænna og óháðra í Kópavogi. Til fróðleiks: Húsnæðisöryggi felur í sér að fólk ráði við húsnæðiskostnaðinn, búi í heilnæmu húsnæði og þurfi ekki að flytja nema það velji það sjálft. Almennar íbúðir eru leiguíbúðir sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og sveitarfélög hafa veitt stofnframlög til byggingar eða kaupa. Alþýðusamband Íslands og BSRB. (2026). Ný greining ASÍ og BSRB um félagslegt húsnæði og þróun almenna íbúðakerfisins. https://vinnan.is/greining-asi-og-bsrb-a-stodu-almenna-ibudakerfisins/ Fundargerð bæjarráðs Kópavogs 12. febrúar 2026. Bæjarráð – 3246. fundur: mæli með að lestri bókana máls 2511279, umsókn um stofnframlag vegna byggingar á 24 íbúðum Bjargs í Hallarhvarfi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Vinstri græn Húsnæðismál Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar