Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Lovísa Arnardóttir skrifar 3. maí 2026 18:02 Íbúar í Fjallabyggð og á Akureyri hafa sterkar skoðanir á rekstri sveitarfélaganna. Sýn Akureyringar vilja sjá meira gert fyrir fjölskyldufólk og að hlúð sé betur að atvinnurekendum. Þá vilja þeir líka íþróttahús fyrir Þórsara. Í Fjallabyggð eru atvinnumál ofarlega í huga íbúa en einnig samgöngumál. Berghildur Erla fréttamaður ræddi við íbúa í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.
Mars Þurý Lúðvíks segir bæinn hafa lagt mikla áherslu á að þjónusta ferðamenn, sem sé skiljanlegt, en að í miðbænum sé óskipulag. BSO eigi að víkja fyrir háhýsum og þá sé verið að þrengja að í miðbænum. Það sé verið að ýta fyrirtækjum og þjónustu úr miðbænum og það megi gera meira til að koma í veg fyrir það. Dagrún Larsen Þórisdóttir vill sjá meira gert fyrir fjölskyldufólk á Akureyri, og það áður en bærinn tekur að sér fólk sem kemur annars staðar frá. Björn Halldór Sveinsson nefnir íþróttahús fyrir Þór. Það sé búið að bíða eftir því í mörg ár. Íþróttastarfið sé í mörgum húsum og því fylgi mikið skutl fyrir foreldra og forráðamenn. „Við verðum aldrei íþróttafélag nema allir séu á sama stað,“ segir hann. Atvinnumálin mikilvæg Stefanía Sigurðardóttir íbúi segir að hlúa megi betur að atvinnurekendum í bænum og nefnir sem dæmi fasteignagjöld sem hún vill að verði lækkuð. Þá segir hún að betur þurfi að huga að dagmömmumálum. Í Fjallabyggð segir Anna María Elíasdóttir atvinnumálin efst á baugi. „Ef þú hefur ekki atvinnu, ef ekkert er að gerast í atvinnumálum, þá er rosalega lítið fyrir fólk að gera,“ segir hún og að atvinnumálin séu skrítin núna. Sáralítið eftir af sjávarútvegi og fiskvinnslan lítil. Svava Jóhannsdóttir tekur undir það og segir vanta fjölbreyttari atvinnutækifæri. Eitt sinn hafi fimm skuttogarar landað í Ólafsfirði en nú landi enginn. Jón Ingvar í Ólafsfirði segir það sama og það vanti einstaklingsframtak. Sigrún Stella Jónsdóttir í Ólafsfirði nefnir sömuleiðis menntamál. Stefán Stefánsson, íbúi á Siglufirði, segir mikilvægt að fá göng úr Fljótum og í fjörðinn. Hanna Sigríður Ásgeirs, íbúi á Siglufirði, segir mikilvægast að innviðir séu traustir fyrir þau sem búa þar og vilja og að það sé þörf á ábyrgri stjórnsýslu. Þá skipti samgöngumálin líka máli.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fjallabyggð Akureyri Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira