Kaupmaðurinn á horninu er svarið Einar Mikael Sverrisson skrifar 3. maí 2026 21:00 Það var tími þegar kaupmaðurinn á horninu var ekki bara verslun, heldur samfélag. Þar þekkti fólk hvert annað, vissi hvaðan varan kom og treysti því sem það keypti. Í dag er myndin önnur við teljum okkur búa við fjölbreytt úrval og samkeppni í verslun en sú samkeppni er að miklu leyti sjónhverfing. Þegar valfrelsið er bara á yfirborðinu Við göngum inn í mismunandi verslanir, sjáum ólíkar merkingar og vörumerki, en í raun erum við oftar en ekki að versla við sömu eigendurna. Markaðurinn hefur þjappast saman örfáir aðilar stýra bæði verði og úrvali og birgjar eru fáir. Það sem virðist vera valfrelsi er í raun kerfi þar sem fáir halda um alla þræði. Þegar neytandinn tapar Þegar samkeppni er aðeins til sýnis hættir hún að þjóna neytendum. Verðmyndun verður ógegnsæ, úrval einsleitara og nýsköpun dregst saman. Neytandinn sem á að njóta góðs af samkeppni stendur eftir sem sá sem tapar mest. Vöruverð þolir aðeins ákveðna lækkun þegar þrýstingurinn verður of mikill lendir hann á þeim sem standa veikastir, bændum og framleiðendum. Þeir neyðast til að skera niður kostnað, oft á kostnað gæða, vinnubragða eða jafnvel heiðarleika. Þá byrjar kerfið að brjóta sjálft sig niður og á endanum lendir það aftur á neytandanum. Minni þjónusta sama verð Á sama tíma hefur þjónustan orðið sífellt ópersónulegri. Sjálfsafgreiðslukassar hafa tekið yfir, þar sem viðskiptavinurinn sinnir í raun starfi sem áður var hluti af þjónustu verslana. Samt hefur vöruverð ekki lækkað í samræmi við þessa þróun. Við fáum minna fyrir sama verð, minni þjónustu, minni tengsl og minni upplifun. Við erum því komin í ákveðna þversögn við viljum spara, en kerfið sem á að skila lægra verði endar með því að gera okkur verr sett til lengri tíma litið. Ef við verslum eingöngu við keðjur, endum við bókstaflega í keðju. Sjálfstæði og samfélag Lausnin er ekki einföld en hún er skýrari en margir halda, kaupmaðurinn á horninu. Smærri, sjálfstæðar verslanir skapa raunverulega samkeppni. Þær bjóða upp á fjölbreyttara úrval, styðja við innlenda framleiðslu og halda verðmyndun heiðarlegri. Þær eru ekki bundnar af sömu miðstýringu og geta brugðist hraðar við þörfum viðskiptavina. Þetta snýst líka um sjálfstæði okkar sem einstaklinga. Það að vera kóngar í eigin ríki að byggja upp og reka sjálfstæð fyrirtæki sem eru áreiðanleg, persónuleg og tengd samfélaginu. Slíkur rekstur er ekki aðeins góður fyrir neytendur, heldur styrkja þeir samfélagið í heild. Valið er okkar Val neytenda skiptir máli í hvert skipti sem við veljum hvar við verslum erum við að taka afstöðu til þess hvernig við viljum að markaðurinn líti út. Viljum við raunverulega samkeppni, fjölbreytni og traust? Eða viljum við halda áfram að styðja kerfi þar sem fáir ráða ferðinni? Ef við verslum bara við keðjur, endum við í keðju. En ef við styðjum kaupmanninn á horninu þá losum við okkur úr henni. Kaupmaðurinn á horninu er ekki bara fortíðarþrá hann er raunhæf framtíðarsýn. Höfundur er töframaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Verslun Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Skoðun Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar