Lífið leikur við Lindu sem lofaði að svara á sænsku næst Sindri Sverrisson skrifar 5. maí 2026 15:47 Linda Líf Boama lék sína fyrstu landsleiki í apríl, gegn Úkraínu og Englandi. vísir/Diego Linda Líf Boama hefur slegið í gegn í upphafi sinnar fyrstu leiktíðar í atvinnumennsku og er markahæst í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta með fjögur mörk.
Linda hefur einnig lagt upp tvö mörk fyrir lið sitt Kristianstad sem stýrt er af Nik Chamberlain, fyrrverandi þjálfara Íslandsmeistara Breiðabliks og Þróttar. Liðið vann auk þess fyrstu þrjá leiki sína en tapaði 3-2 á útivelli gegn Brommapojkarna um helgina, þrátt fyrir að Linda skoraði þá sitt fjórða mark í jafnmörgum deildarleikjum. „Ég hef mun meira fram að færa,“ sagði Linda við sænska miðilinn Fotbollskanalen en viðurkennir þó að hún hafi ekki alveg þorað að vonast eftir svona byrjun í atvinnumennskunni. Hún kom til Kristianstad frá Víkingi í vetur. Meðvituð um að skrefið yrði stórt „Ég hef alltaf vitað að þetta væri ein sterkasta deild heims enda höfum við haft mikið af Íslendingum í deildinni. Þetta er sterk deild og ég vissi að ég þyrfti að þróast hratt til að aðlagast. Þetta var stórt skref fyrir mig en ég vildi vaxa og bæta mig, og ég er á réttri leið með það,“ sagði Linda sem vann sig inn í íslenska landsliðið og lék sína fyrstu landsleiki í síðasta mánuði, gegn Úkraínu og Englandi. Hún nýtur lífsins í Kristianstad sem svo lengi hefur verið mikill Íslendinabær: „Ég elska Svíþjóð. Kristianstad er minni og hljóðlátari en bærinn hefur sannarlega sinn sjarma. Ég elska veðrið, fólkið og liðið. En heima sakna ég auðvitað fjölskyldunnar, mömmu minnar,“ sagði Linda við Fotbollskanalen og bætti við að hún væri að læra sænskuna. „Þetta eru tvö frekar lík tungumál svo ég er að reyna. Ég er í SFI núna og fer í tvo kvöldtíma í viku. Það er gaman. Mig langar virkilega að læra. Næsta viðtal verður að vera á sænsku,“ sagði hún og hló.
Sænski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira