Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Lovísa Arnardóttir skrifar 5. maí 2026 23:36 Trump segir enn unnið að samkomulagi um frið. Vísir/EPA Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gert hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að fyrstu sókn Bandaríkjanna og Ísraels í Íran, Operation Epic Fury, sé lokið og að markmiðum hennar hafi verið náð.
Forsetinn tilkynnti í gær að Bandaríkjamenn myndu leiðbeina strönduðum skipum í Horsmús-sundi en tilkynnti í kvöld að hlé hefði verið gert á þessum aðgerðum. Hann hefði gert það til að ná samkomulagi við Írani um að binda enda á stríðið. Í færslunni sem hann birti á samfélagsmiðli sínum Truth Social segir að hann hafi gert það að beiðni Pakistana og annarra landa og vegna árangurs sem Bandaríkjamenn hafi náð í aðgerðum sínum. Hann bætti því við að bandarísk skip myndu áfram vera í sundinu. Martco Rubio segir að markmiðum hafi verið náð í Íran.Vísir/EPA Í frétt AP segir að tilkynningin hafi komið eftir að utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, tilkynnti að vopnahléið héldi enn og þó svo að ekki væri búið að ná samkomulagi væri hernaðaraðgerðum Bandaríkjanna lokið í Íran. „Við myndum frekar kjósa friðarleiðina. Það sem forsetinn [Donald Trump] myndi helst vilja er samkomulag,“ sagði hann við fréttamenn á þriðjudag í kjölfar fjölda árása á Hormússundi sem höfðu vakið ótta um að vopnahlé milli Bandaríkjanna og Írans væri í hættu. Bandaríkin hafa sagt að þau stefni að því að fylgja strönduðum skipum út úr Persaflóa. Í frétt BBC segir að stjórnvöld í Íran hafi ekki tjáð sig um yfirlýsingu Rubio, en Mohammad Ghalibaf, forseti íranska þingsins, sagði fyrr: „Við vitum vel að Bandaríkjamenn þola ekki óbreytt ástand á meðan við erum rétt að byrja.“ Ghalibaf, aðalsamningamaður Írans í viðræðum við Bandaríkin í síðasta mánuði, sagði: „Öryggi siglinga og flutnings orku hefur verið stefnt í hættu af Bandaríkjunum og bandamönnum þeirra með vopnahlésbrotum og hafnarbanni. Illvirki þeirra munu þó mistakast.“ Hófst í febrúar Aðgerðin „Operation Epic Fury“ hófst 28. febrúar þegar Bandaríkin og Ísrael hófu röð loftárása á Íran. Stjórnvöld í Teheran svöruðu með því að loka Hormússundi en um fimmtungur allrar olíu fer þar um. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur nærri tvöfaldast frá því að stríðið hófst. Vopnahlé hefur verið í gildi frá því í apríl en þó hefur ekki verið komist að samkomulagi um frið. Í ræðu sinni í Hvíta húsinu sagði Rubio að þótt Trump vildi samkomulag, „þá er það hingað til ekki sú leið sem Íran hefur valið“ og bætti við: „Hvað það kann að leiða til í framtíðinni er óvíst.“ Hann sagði að árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran hefðu valdið miklum skaða á efnahag landsins til áratuga og að leiðtogar landsins ættu að hugsa sig um áður en þeir héldu áfram á þessari vegferð að glötun. Ummæli Rubio voru í takt við fyrri ummæli Pete Hegseth varnarmálaráðherra, sem sagði að vopnahléinu við Íran væri „ekki lokið“. „Núna heldur vopnahléið vissulega, en við munum fylgjast mjög, mjög náið með,“ sagði Hegseth á blaðamannafundi á þriðjudag. Lætur vita Trump var síðar spurður af fréttamönnum hvað myndi teljast brot á vopnahléinu af hálfu Írans. „Þið komist að því því ég læt ykkur vita,“ svaraði hann. Hann sagði einnig að hann teldi enn líklegt að hægt væri að ná samningum með Íran til að binda enda á átökin. Í frétt BBC segir að hin ýmsu ummæli frá bandarískum embættismönnum bendi til þess að Bandaríkin hafi lítinn áhuga eða vilja til að snúa aftur til allsherjaraðgerða sem gætu raskað mörkuðum enn frekar, valdið himinháu verði og verið óvinsælar meðal stórs hluta Bandaríkjamanna. Trump hefur einnig sagt að hann sé í viðræðum við Japan um enduropnun sundsins og að hann búist við jákvæðu samtali við Xi Jinping, forseta Kína, um málið þegar hann heimsækir Kína í næstu viku.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Íran Donald Trump Tengdar fréttir Vopnahléið hangir á bláþræði Vopnahléið í Mið-Austurlöndum er talið hanga á bláþræði eftir gærdaginn. Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum segjast hafa orðið fyrir árásum frá Íran og kviknaði eldur í stærstu olíugeymslustöð landsins, vegna þeirra. Þá segjast Bandaríkjamenn hafa grandað sex bátum íranska byltingarvarðarins og að skotið hafi verið á bandarísk herskip. 5. maí 2026 07:56 Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Utanríkisráðherra telur brotthvarf þúsunda hermanna Bandaríkjanna frá Þýskalandi ekki veikja NATO og ólíklegt að ákvörðunin hafi bein áhrif á Ísland. Það trufli samskipti þjóðarleiðtoga að Bandaríkin hafi farið í stríð við Íran án þess að ráðfæra sig við sína bandamenn. 3. maí 2026 13:15 Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Írani ekki enn hafa „borgað nægilega hátt verð“ fyrir gjörðir sínar síðustu áratugi. Trump fer nú yfir nýjustu tillöguna um varanlegt vopnahlé við Íran. Hann útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir í Íran þó svo að hlé hafi verið gert á þeim fyrir tæpum mánuði. 3. maí 2026 08:27 Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Sjá meira
Vopnahléið hangir á bláþræði Vopnahléið í Mið-Austurlöndum er talið hanga á bláþræði eftir gærdaginn. Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum segjast hafa orðið fyrir árásum frá Íran og kviknaði eldur í stærstu olíugeymslustöð landsins, vegna þeirra. Þá segjast Bandaríkjamenn hafa grandað sex bátum íranska byltingarvarðarins og að skotið hafi verið á bandarísk herskip. 5. maí 2026 07:56
Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Utanríkisráðherra telur brotthvarf þúsunda hermanna Bandaríkjanna frá Þýskalandi ekki veikja NATO og ólíklegt að ákvörðunin hafi bein áhrif á Ísland. Það trufli samskipti þjóðarleiðtoga að Bandaríkin hafi farið í stríð við Íran án þess að ráðfæra sig við sína bandamenn. 3. maí 2026 13:15
Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Írani ekki enn hafa „borgað nægilega hátt verð“ fyrir gjörðir sínar síðustu áratugi. Trump fer nú yfir nýjustu tillöguna um varanlegt vopnahlé við Íran. Hann útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir í Íran þó svo að hlé hafi verið gert á þeim fyrir tæpum mánuði. 3. maí 2026 08:27