Linda Líf best: Ekki lengur óþekkt nafn Sindri Sverrisson skrifar 6. maí 2026 12:02 Linda Líf Boama er leikmaður aprílmánaðar í Svíþjóð. OBOS Damallsvenskan Fótboltakonan Linda Líf Boama hefur verið að slá í gegn á sinni fyrstu leiktíð í atvinnumennsku og í dag var hún útnefnd besti leikmaður aprílmánaðar í sænsku úrvalsdeildinni.
Linda hefur stimplað sig strax inn í sænsku deildina með liði Kristianstad sem sömuleiðis hefur farið frábærlega af stað á fyrstu leiktíðinni undir stjórn Niks Chamberlain, fyrrverandi þjálfara Íslandsmeistara Breiðabliks og Þróttar. Á samfélagsmiðlum sænsku deildarinnar segir að Linda hafi komið inn í sænsku deildina frá Víkingi Reykjavík, og vissulega einnig spilað í bandaríska háskólafótboltanum, en verið algjörlega óþekkt nafn hjá sænskum fótboltaáhugamönnum. Það sé nú allt breytt eftir að Linda byrjaði á að skora og leggja upp í fyrsta leik gegn Piteå, skoraði svo tvö mörk gegn Djurgården og gaf stoðsendingu gegn Växjö. Alla þessa leiki vann Kristianstad og er það besta byrjun félagsins í sögunni. Vel heppnuð byrjun, svo vægt sé til orða tekið, og vann Linda Líf í kosningu þar sem þær Nathalie Hoff Persson úr Malmö og Urara Watanabe úr Djurgården voru einnig tilnefndar. Linda hefur svo haldið áfram í maí og skoraði gegn Brommapojkarna um síðustu helgi en þar lauk þó sigurgöngu Kristianstad því liðið tapaði 3-2. Næsti leikur er svo við Norrköping á laugardaginn þar sem Linda gæti mætt fyrrverandi liðsfélaga sínum úr Víkingi, Sigdísi Evu Bárðardóttur. Það styttist svo í næstu landsleiki, þegar Ísland mætir Úkraínu og Spáni í byrjun júní í undankeppni HM, en Linda lék sína fyrstu landsleiki í síðasta mánuði, gegn Úkraínu og Englandi.
Sænski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira