Þegar velferð aldraðra verður fasteignaverkefni Védís Einarsdóttir skrifar 6. maí 2026 13:15 Í aðdraganda kosningar hafa aftur komið fram hugmyndir um stórt öldrunarhverfi í landi Gunnarshólma, á svæði sem tengdu vatnsvernd höfuðborgarsvæðisins Hugmyndin í grunninn er sú að einkaaðili mun byggja 10 þúsund íbúðir og 1.200 rúma hjúkrunarheimili. Íbúðirnar verða síðan seldar til gamals fólks á markaði og hjúkrunarheimilið rekið á eigin reikning en með greiðslum frá ríkinu. Grundvallarspurningin hér hlýtur að vera, hvers konar samfélag viljum við byggja fyrir fólk á efri árum og á það að vera ótengt “samfélagi okkar hinna”? Eldra fólk á að vera hluti af samfélaginu Engan þarf að undra að einkaaðilar sjái sér tækifæri í að byggja íbúðir fyrir eldra fólk. Þótt margt eldra fólk búi við bág kjör eru líka margir í ágætum málum fjárhagslega og 100-150 milljóna króna íbúðir gætu verið á færi margra, sé miðað við skikkanlegar stærðir af íbúðum á svipuðu fermetraverði og sambærilegar nýjar íbúðir hafa selst á. Ef gert er ráð fyrir að álagning á hverja íbúð geti verið á bilinu 8–12% blasir við að um gríðarlega fjárhagslega hagsmuni er að ræða. Í verkefni af þessari stærðargráðu gæti hagnaðurinn hlaupið á yfir hundrað milljörðum króna, af sölunni til þessa tiltölulega efnaða hóps. Þegar svo liggur fyrir að hryggjarstykkið af þeirri þjónustu sem á að veita þessu fólki verður áfram á vegum ríkis og sveitarfélags (enda þjónustan að stórum hluta til lögbundin) þarf engan að undra að verktakar og fjármagnseigendur fái vatn í munninn. Þetta er ekki síst umhugsunarvert í ljósi nýrra frétta af greiðslum til hluthafa og tengdra félaga tæplega 3,5 milljörðum króna í tengslum við rekstur Sóltúns. Hér renna menn á reykinn af réttunum. Stórveisla í boði bæjarstjórans. Talsmenn fyrirtækisins hafa svo ráðið í lið með sér öldrunarlækni sem skrifar fyrir þá greinar í Morgunblaðið um herlegheitin. Verndun vatnsbóls, hvað? Er nokkuð mál að byggja á vatnsverndarsvæði? Bæjarstjórinn vill beita sér fyrir því að fá vatnsvernd aflétt af svæðinu svo þessi uppbygging geti orðið að veruleika. Það er rétt að minna á að vatnsvernd er ekki bara eitthvað huggulegt hugtak. Hún er framtíðaröryggi barnanna okkar og barnabarna og okkar sjálfra og foreldra okkar. Af vatnsverndinni má engan afslátt gefa. Neysluvatn er sameiginleg auðlind okkar og framtíðarkynslóða. Það er ekkert eðlilegt við það að taka áhættu með vatnsverndarsvæði til að ryðja brautina fyrir einkarekið fasteignaverkefni. Hvað þurfum við til að lifa góðu lífi? Langflest viljum við hafa möguleika á mannlegum samskiptum og vera þátttakendur í samfélagi. Sú hugmynd að smala saman eldra fólki í byggð sem er á stærð við stóran kaupstað er í besta falli sérkennileg. Hver vill búa langt frá sínu fólki, geta ekkert farið nema í bíl og hitta aldrei neinn nema þjónustuaðila? Enn er eftir að velta upp þeirri spurningu sem kannski er hvað mikilvægust: Er þörf á þessu? Hvorki þjónusta við eldra fólk né almannaþjónusta yfirleitt á að vera féþúfa fyrir fjárfesta. Í dag eru flest hjúkrunarheimilin með 80-200 íbúa. Hugsum okkur 5 -15 falt stærri heimili. Væri auðvelt að manna það? Væri það eftirsóknarverður staður til að dvelja síðustu mánuði ævinnar? Nánast uppi á heiði, fjarri almenningssamgöngum og í 15-22 km fjarlægð frá miðbæjum Reykjavíkur, Kópavogs og Hafnarfjarðar, og ferðatíma upp á 30-45 mínútur hvora leið. Öflugt sveitarfélag eins og Kópavogur getur gert miklu betur en þetta. Eldra fólk á að vera hluti af sterku samfélagi og við þurfum að standa sterk gegn því að úthýsa þeim úr samfélaginu. Slíkt samfélag eigum við að byggja hér, í Kópavogi, sem styður og verndar íbúa sína. Höfundur er iðjuþjálfi og skipar 4. sæti lista Vinstri grænna og óháðra í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Halldór 5.9.2026 Agnar Már Másson Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar