„Fannst þeir allt eins geta sleppt því að hafa mig“ Valur Páll Eiríksson skrifar 7. maí 2026 08:02 Kári Kristjánsson er snúinn aftur í Laugardalinn. Skipti hans í FH hafi verið feit pæling sem gekk ekki upp og heimförin sé besta niðurstaðan fyrir alla. Vísir/Sigurjón Kári Kristjánsson entist aðeins í fimm mánuði hjá FH í Bestu deild karla í fótbolta og er snúinn aftur heim í Þrótt. Um var einfaldlega að ræða samstarf sem gekk ekki upp. „
Tilfinningin er mjög góð eins og er. Ég er búinn að taka eina æfingu með strákunum og var bara vel tekið. Það var bara bros á vor og ég fékk gott knús frá Venna (Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar) og svona þannig að ég held það sé bara góð tilfinning fyrir þessu,“ segir Kári við heimkomuna er hann ræddi við Sýn á Avis-vellinum í gær. Kári skipti frá Þrótti til FH í vetur eftir að hafa átt glimrandi tímabil með Þrótti í Lengjudeildinni í fyrra þar sem Laugdælingar rétt misstu af sæti í Bestu deildinni. Hann hafði tekið þátt í öllum fimm leikjum FH í Bestu deildinni þar til kom að skiptunum í gær, sem voru heldur óvænt. „Þetta er frekar óvænt. Þetta er kannski búið að eiga sér mánaðaraðdraganda eða svo. Ég átti samtöl við Jóa (Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH) og Davíð (Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá FH) og hef spurt hvað hlutverkið mitt er og hvernig þeir ætli að fá það besta út úr mér. Við fundum engin svör við því. Þá fannst mér óþarfi að vera að bíða eitthvað með þetta. Fyrst allir aðilar voru klárir í þetta þá var bara stokkið á þetta,“ segir Kári. Varstu þá í ákveðnu limbói? „Ég áttaði mig ekki alveg á því hvernig átti að nota mig. Ég var mikið frammi, eitthvað úti á kanti og eitthvað í tíunni, leikstíllinn kannski hentaði ekki heldur. Þetta var kannski bara lélegt match fyrir alla og þá var gott að slaufa þessu snemma,“ segir Kári hreinskilningslega. Lítur ekkert frábærlega út Utan frá lítur þetta ef til vill út eins og uppgjöf og flótti heim í hlýjuna í Dalnum, er það svo? „Ég skil það fullkomnlega að þetta líti ekki frábærlega út. Maður verður náttúrulega bara að fylgja hjartanu. Ég fann það þegar ég sá fyrstu leikina hjá Þrótti í bikar og deild að þetta skiptir mig heilmiklu máli – bæði liðið og fólkið í kringum þetta. Mig langaði ótrúlega mikið að taka þátt í þessu verkefni og fattaði það svolítið þegar tímabilið byrjaði,“ „Ofan á það var hvernig þetta var búið að vera í Hafnarfirðinum. Mér fannst þeir allt eins geta sleppt því að hafa mig þarna. Því ég var ekkert að gera merkilegt og ekki í stöðu á vellinum til að hjálpa liðinu. Ég hélt að þetta væri góð lausn fyrir alla aðila,“ segir Kári sem virðist ekki hafa fundið sig hjá Hafnfirðingum sem hafa ekki byrjað leiktíðina vel. Basl á FH-ingum sem eru enn að finna liðið sitt FH er aðeins með eitt stig, sem það fékk gegn ÍBV í fyrstu umferð, og tapað öllum fjórum leikjum liðsins síðan. Síðast tapaði liðið sínum fyrsta heimaleik á leiktíðinni fyrir Fram, 4-3, eftir að hafa leitt 3-1. Hvernig er staðan þarna suðurfrá frá bæjardyrum Kára séð? „Hún er náttúrulega strembin eins og miðað við úrslitin. En ég held að það muni horfa til bjartari vegar á næstu vikum. Að ég fari skiptir líklega ekki miklu máli á miðað við hvernig við vorum að spila. Ég held að það muni skána þegar fara að koma heimaleikir og við finnum liðið okkar. Það hefur verið svolítið mikið rót á þessu í byrjun móts, búnir að skipta um leikkerfi og skipt um leikmenn og enn að finna liðið okkar,“ segir Kári sem segir engar deilur við þjálfara eða stjórnendur FH hafa valdið brottför hans. „Það var í raun ekkert hitamál. Ég átti góð samtöl við Davíð og eitthvað við Jóa líka. Ég held þetta sé bara fín lausn fyrir þá. Þeir fengu prófa mig í hálft ár og fá peninginn til baka. Ég held þetta sé win-win fyrir alla.“ Þyrfti að bera tilkynninguna undir Davíð Í tilkynningu FH um brottför Kára er ýjað að því að hann hafi ekki verið reiðubúinn að gefa allt í verkefnið fyrir FH. Orðrétt er haft eftir áðurnefndum Davíð Þór í yfirlýsingu FH að: „Í þeirri uppbyggingu sem við erum í er mikilvægt að leikmennirnir okkar séu tilbúnir að leggja allt í verkefnið og þegar sú er ekki raunin þá er betra að leikmaðurinn finni sér nýtt lið.“ Kári var mjög spenntur fyrir verkefninu í Krikanum en það virðist hafa verið fljótt að súrna.Vísir/Sigurjón Tekur Kári þetta sem einhverju skoti á sig? „Ég held ekki. Ég og Davíð áttum góð samtöl og ég held að hann viti að ég var all-in í þessu svo lengi sem ég væri í FH. En ég bað um að fara og sagðist vilja spila annarsstaðar en í FH. Þá er maður kannski ekki alveg 100 prósent inni í verkefninu. Ég held þetta hafi ekki verið sneið á mig, en kannski þarf ég að heyra í Davíð betur með þetta.“ Rangt val Kári hafði verið spenntur fyrir verkefninu í Firðinum og valdi FH fram yfir nokkur önnur Bestu deildar lið sem báru í hann víurnar í vetur. Segja má að hann hafi valið rangt. „Mögulega. Ég held það sé erfitt að segja eitthvað annað núna, þegar ég er mættur heim hálfu ári seinna. En mér fannst þetta líta vel út í desember, við ætluðum að yngja upp og spila góðan fótbolta, kraftmikinn og orkumikinn. En þetta hefur kannski farið aðeins í aðra átt og hlutverkið mitt ekki nægilega skýrt. Kannski voru þetta mistök bæði hjá mér og FH sem er gott að hafa geta leyst svona farsællega. Vonandi gengur vel hjá mér í Þrótti og FH snýr þessu við. Þá ættu allir að vera sáttir,“ segir Kári. Snýr aftur í Krikann að ári Þessi 21 árs gamli miðjumaður á að baki 66 leiki í Lengjudeildinni með Þrótti og hefur skorað í þeim 17 mörk. Hann segir stefnuna setta á að klára það verkefni sem tókst ekki í fyrra; að fylgja liðinu í deild þeirra bestu. „Ég held það sé skýr krafa í sumar að keyra almennilega á þetta. Það er búið að bæta liðið, menn orðnir árinu eldri. Nú er að halda kúlinu, spila vel og sjá hvert það tekur okkur,“ Mætirðu þá FH í Bestu deildinni að ári? „Eigum við ekki að segja að það sé stefnan? Að ég mæti í Krikann aftur.“ Viðtalið má sjá í heild í spilaranum að neðan. Klippa: Spennandi skipti í Krikann fljót að súrna
Þróttur Reykjavík FH Lengjudeild karla Besta deild karla Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Fótbolti Collin Pryor í Álftanes Körfubolti HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Rodri ekki meira með KA í ár Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Haukar ósigraðir á toppnum Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Við réðum ekkert við þá“ „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik „Sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum“ Uppgjörið: Stjarnan - Fram 0-1 | Sigurmark Róberts færir Fram nær toppnum Sjá meira