Enginn treystir kerfinu: Stefna meirihlutans í Reykjavík hefur brugðist Ari Edwald skrifar 7. maí 2026 07:32 Á dögunum fór fram pallborðsumræða á vegum Leigjendasamtakanna þar sem fulltrúar allra framboða til borgarstjórnarkosninga sátu fyrir svörum. Ein spurning stóð upp úr, einföld en afdráttarlaus: „Myndir þú treysta því að barnið þitt gæti byggt upp öruggt líf á leigumarkaði á Íslandi í dag?“ Niðurstaðan var sláandi. Allir sögðu NEI. Þegar stjórnmálamenn, þvert á flokka, treysta ekki kerfinu fyrir eigin börnum, þá er ljóst að eitthvað alvarlegt er að. Húsnæðisöryggi er ekki lúxus, það er ein af grunnstoðum velferðarsamfélags borgarinnar. Kerfið er að bregðast. Reykjavík hefur brugðist Þessi niðurstaða er ekki tilviljun. Hún er bein afleiðing stefnu sem hefur verið fylgt árum saman í Reykjavík. Á pallborðsumræðum komu fram staðreyndir sem tala sínu máli: Húsnæðiskostnaður hefur hækkað úr 19% í 30% af ráðstöfunartekjum heimila á aðeins 20 árum Það jafngildir tæplega 60% hækkun Fyrir marga er kostnaðurinn kominn yfir 30%, sem telst húsnæðisbyrði. Þetta þýðir einfaldlega að ráðstöfunartekjur Reykvíkinga hafa rýrnað verulega. Fólk hefur minna á milli handanna, ekki vegna þess að það eyði meira, heldur vegna þess að húsnæði étur sífellt stærri hluta tekna. Milljarðar teknir úr vösum Reykvíkinga í hverjum mánuði Heildarmánaðarlaun Reykvíkinga nema um 80 milljörðum króna, en útborguð laun eru um 50 milljarðar. Þegar hlutfall húsnæðiskostnaðar hækkar um 11 prósentustig af ráðstöfunartekjum, þýðir það: um 5,5 milljarða króna aukna byrði Reykvíkinga í hverjum mánuði. um 66 milljarða króna á ári úr vösum Reykvíkinga. Þetta eru fjármunir sem annars gætu farið í að bæta lífsgæði, til neyslu, sparnaðar eða uppbyggingar, en fara þess í stað í síhækkandi húsnæðiskostnað. Afleiðing af rangri stefnu Þessi þróun er ekki náttúrulögmál. Hún er afleiðing pólitískra ákvarðana. Í Reykjavík hefur verið fylgt svokallaðri ofurþéttingarstefnu, á sama tíma og framboði lóða hefur verið haldið niðri með stuðningi vaxtarmarka höfuðborgarsvæðisins. Niðurstaðan er fyrirsjáanleg: Skortur á byggingarlandi Hærra fasteignaverð Hærra leiguverð Hærra leiguverð félagslegs húsnæðis Aukin verðbólga Hærri vextir Húsnæðisliðurinn hefur ítrekað verið stærsti drifkraftur verðbólgu í 9 af hverjum 10 mælingum frá því að vaxtarmörkin tóku gildi og þessi stefna meirihlutans í Reykjavík var fest í sessi. Kerfi sem var fest í lás til 25 ára Skipulag höfuðborgarsvæðisins, vaxtarmörkin, voru fest til 25 ára, með þeim skilyrðum að breytingar krefðust samþykkis allra sveitarfélaga. Markmiðið var að tryggja samvinnu og betri nýtingu innviða. Raunin hefur orðið önnur. Afleiðingin er viðvarandi lóðaskortur sem kostar heimili og fyrirtæki í landinu gríðarlega fjármuni. Í stað þess að fjármagni sé beint í verðmætasköpun til að standa undir velferð, lífsgæðum og framtíð unga fólksins hefur húsnæðismarkaðurinn orðið eitt arðbærasta fjárfestingartækifæri landsins. Tækifæri sem almenningur hefur sífellt minni aðgang að. Ég hef kallað þessa stefnu, sem ýtir undir óhóflega hækkun íbúðaverðs, eimvél ójafnaðar og misskiptingar. Ungt fólk og tekjulægri hópar bera byrðarnar Þessi stefna bitnar ekki jafnt á öllum. Hún bitnar harðast á: Ungu fólki Tekjulægri hópum Leigjendum Fólki í félaglega kerfinu Barnafjölskyldum Þetta er fólkið sem hefur minna svigrúm og finnur mest fyrir hverri krónu sem fer í húsnæði. Þegar 1 af hverjum 4 börnum býr í leiguhúsnæði og helmingur leigjenda greiðir yfir 40% af tekjum sínum í húsnæði, þá er þetta ekki lengur kerfi sem þjónar íbúum Reykjavíkur. Það þarf að breyta um kúrs Miðflokkurinn vill fara aðra leið. Við viljum: Auka framboð lóða og byggingarlands Endurskoða vaxtarmörk og skipulag með raunhæfum hætti Draga úr húsnæðiskostnaði heimila Setja húsnæðisöryggi fólks ofar hugmyndafræði Það er hægt að laga þetta. En það krefst þess að við Reykvíkingar viðurkennum vandann og kjósum stjórnmálafólk sem hefur kjark til að breyta. Reykvíkingar eiga betra skilið. Börnin okkar eiga betra skilið. Þegar stjórnmálafólk, þvert á flokka, treystir því ekki að börnin þeirra geti byggt upp öruggt líf á leigumarkaði, þá er ljóst að kerfið hefur brugðist. Þetta er staða sem ég sætti mig ekki við. Sem oddviti Miðflokksins segi ég skýrt: við munum hlusta á þetta ákall og breyta kúrsinum. Við ætlum að setja þarfir Reykvíkinga ofar stefnum sem hafa brugðist, tryggja aukið framboð og lækka húsnæðiskostnað. Höfundur er oddviti Miðflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ari Edwald Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar