Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Tómas Arnar Þorláksson og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa 9. maí 2026 13:58 Kristín Eysteinsdóttir er rektor Listaháskólans. Vísir/Vilhelm Kristín Eysteinsdóttir rektor Listaháskóla Íslands segir nýundirritaða viljayfirlýsingu um uppbyggingu framtíðarhúsnæðis undir skólann annars eðlis og raunhæfari en þær sem hafa verið undirritaðar síðustu tvo áratugina.
Greint var frá því í dag að fjármálaráðherra, háskólaráðherra, borgarstjóri og rektor hefðu undirritað viljayfirlýsingu um að starfsemi allra deilda Listaháskólans verði fundið húsnæði til framtíðar í Stakkahlíð. Í tilefni af því var það rifjað upp að sambærilegar viljayfirlýsingar hefðu verið undirritaðar í tvígang áður, í fyrra skiptið árið 2007, fyrir hartnær tveimur áratugum síðan. Trygging fyrir því að framkvæmdir hefjist Kristín Eysteinsdóttir rektor segir raunhæfan og skilgreindan kost kominn á borðið. „Það sem skiptir máli fyrir okkur í þessu samhengi er að í þessari viljayfirlýsingu er skilgreint mun nánar og skýrar hvernig fjármögnun verkefnisins verður háttað. Það felst í því að reiturinn á Laugarnesinu væri ákveðin meðgjöf til skólans og sá reitur fer í þróun og ágóðinn af þeim reiti mun fara beint inn í verkefnið. Þetta gefur okkur ákveðna tryggingu fyrir því að við förum raunverulega af stað,“ segir hún. Ráðist verður í endurbætur á gömlu húsnæði Kennaraháskólans, síðar menntavísindasviðs Háskóla Íslands, og svo reist ný bygging undir sviðslistadeild, tónlistardeild og kvikmyndalistardeild skólans. „Við væntum þess að geta hafist handa mjög fljótlega.“ Bjartsýnir geri ráð fyrir þremur til fjórum árum Aðspurð segir hún bjartsýnustu áætlanir gera ráð fyrir því að starfsemi hefjist í nýju húsnæði innan fjögurra ára. Erfitt sé þó að segja til um það. Ertu vongóð um að það haldi í þetta sinn? „Já. Við lögðum áherslu á það að fá skilgreiningu á því hvernig verkefnið yrði fjármagnað. Það hafa ýmsar staðsetningar verið skoðaðar og það hafa verið gerðar viljayfirlýsingar áður en nú erum við með miklu raunhæfara plan af því að fjármögnunin er skilgreind.“ „Ég tel að við getum bara hafist handa og við erum með ráðherra sem eru sömu skoðunar. Við höfum náð mun meiri skýrleika en nokkru sinni fyrr,“ segir Kristín Eysteinsdóttir rektor Listaháskóla Íslands.
Háskólar Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Reykjavík Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fleiri fréttir „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Bein útsending: Kynna þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Sjá meira