Gaman að vera gamall í Garðabæ Hreiðar Þór Jónsson skrifar 9. maí 2026 15:46 Garðabær hefur margt fram yfir önnur sveitarfélög þegar kemur að lífsgæðum eldri íbúa. Við eigum fallegt bæjarumhverfi, öflugt félagsstarf, fjölbreytt tækifæri til hreyfingar og sterka samfélagstilfinningu. Það heyrist líka skýrt í samtölum við eldri Garðbæinga að margt er vel gert og að fólk er stolt af bænum sínum. En samfélag sem vill vera raunverulega aldursvænt má aldrei staðna. Á síðustu misserum hef ég átt mörg góð samtöl við eldri og reyndari Garðbæinga. Það sem stendur upp úr er ekki aðeins mikilvægi góðrar þjónustu, heldur löngunin til að lifa áfram virku, sjálfstæðu og innihaldsríku lífi. Fólk vill hafa val, geta tekið þátt í samfélaginu og fundið að það tilheyri - líka þegar aldurinn færist yfir. Niðurstöður íbúaþings eldra fólks í Garðabæ staðfesta þetta skýrt. Þar kölluðu íbúar eftir samfélagi sem styður fólk til sjálfstæðs lífs sem lengst, með þjónustu sem er einföld, aðgengileg og mannleg. Þau kölluðu einnig eftir raunverulegri þátttöku, sterkari tengslum og þjónustu sem vinnur með fólki - ekki á móti því. Virkt og sjálfstætt líf eins lengi og hægt er Við hjá Viðreisn viljum að Garðabær verði bær þar sem gaman er að vera gamall. Það þýðir að við þurfum að hugsa málefni eldri borgara út frá fleiri þáttum en aðeins grunnþjónustu. Við þurfum fjölbreytt búsetuúrræði sem gera fólki kleift að búa lengur heima við öryggi og góð lífsgæði. Við þurfum að styrkja heimaþjónustu og heimahjúkrun, bæta aðgengi að þjónustu og tryggja að samgöngur innan bæjarins styðji fólk til virkrar þátttöku í samfélaginu. Margir eldri íbúar kalla einnig eftir betri líkamsræktaraðstöðu og fjölbreyttari heilsueflingu sem tekur mið af þeirra þörfum og getu. Þar eigum við að geta gert betur. Hreyfing, forvarnir og virkni eru ekki munaður heldur lykill að sjálfstæði og auknum lífsgæðum til lengri tíma. Félagsleg einangrun leysist ekki með dagskrárbæklingi Þó að Garðabær bjóði upp á fjölbreytt félags- og menningarstarf, þá leysir framboð eitt og sér ekki vandann. Það eru alltaf einstaklingar sem hafa einangrast, misst tengsl eða þurfa einfaldlega smá aðstoð við að stíga fyrsta skrefið aftur út í samfélagið. Þar þurfum við að vera mun markvissari. Við eigum að þróa aðgerðir sem byggja á persónulegri nálgun - símtölum, heimsóknum og virkri eftirfylgni við fólk sem gæti verið í hættu á að einangrast. Stundum getur eitt símtal, ein heimsókn eða einhver sem býðst til að mæta með fólki í félagsstarf skipt sköpum. Við þurfum að ná betur til þeirra sem sitja heima. Ekki vegna þess að þau vilji endilega vera ein, heldur vegna þess að það getur verið erfitt að brjóta ísinn eftir langa einangrun, veikindi eða breyttar aðstæður. Þar getur samfélagið skipt öllu máli. Mannleg nálgun sem styrkir allt samfélagið Þetta snýst ekki aðeins um vellíðan heldur líka um samfélagslega ábyrgð. Félagsleg einangrun getur haft alvarleg áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu og aukið þjónustuþörf síðar meir. Þess vegna eru aðgerðir gegn einmanaleika ekki aðeins mannúðlegt verkefni heldur líka skynsamleg samfélagsfjárfesting. Viðreisn vill byggja samfélag þar sem eldri íbúar upplifa ekki að þeir standi utan við samfélagið heldur séu virkir þátttakendur í því. Samfélag þar sem hlustað er á raddir fólks og þar sem stefna í málefnum eldra fólks mótast með fólkinu sjálfu. Í niðurstöðum íbúaþingsins kom fram skýr krafa um virkt samráð og raunveruleg áhrif. Leiðarljósið sem þátttakendur settu fram var einfalt og sterkt: „Einn bær, sama þjónusta.“ Bær fyrir alla ævina Garðabær á að vera samfélag fyrir alla ævina. Bær þar sem fólk getur eldast með reisn, öryggi, tengsl og raunveruleg lífsgæði á eigin forsendum. Það er samfélagið sem við hjá Viðreisn viljum byggja áfram - samfélag þar sem það er ekki aðeins gott að eldast, heldur einfaldlega gaman að vera gamall í Garðabæ. Höfundur skipar 5. sæti á lista Viðreisnar í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar