Hvað kostar gott samfélag? Bragi Hinrik Magnússon skrifar 11. maí 2026 12:02 Nú líður að kosningum. Þar sem ég sit á framboðslista Viðreisnar í Hafnarfirði hef ég fengið tækifæri til að sjá pólitík með öðrum augum en ég hef áður vanist. Hið fornkveðna „glöggt er gests augað“ á með ákveðnum hætti við hér. Í aðdraganda kosninga varpa hinir ýmsu flokkar fram mörgum loforðum til að höfða til kjósenda, sem er bæði gott og eðlilegt. Ég trúi því að allir þeir einstaklingar sem skipa framboðslista bæjarins vilji sínu samfélagi vel og stefni að því að standa sig vel verði þeir kosnir til áhrifa. Ef við gefum okkur að sú staðhæfing sé rétt, þá getum við átt faglega og málefnalega kosningabaráttu. Allir vilja það besta fyrir bæinn Ég er handviss um að flokkarnir eigi mjög mikið sameiginlegt. Allir vilja þeir að samgöngumál séu í góðu lagi, skólakerfið sé öflugt og skilvirkt, fólki líði vel í bænum og að ungmenni hafi tækifæri til að þroskast og dafna. Við viljum öll að sorphirða og skipulagsmál séu í lagi, bærinn okkar sé öruggur og skemmtilegur, íþrótta- og tómstundastarf sé blómlegt og að komið sé fram við eldra fólkið okkar af alúð og virðingu. Kjarni málsins: Forgangsröðun á peningum Um hvað erum við þá að þrátta og rífast? Svarið er einfalt: Það er forgangsröðun á fjármunum. Ef til væri óþrjótandi fé gætum við framkvæmt öll þessi góðu verkefni sem ég veit að allir flokkar eru sammála um. En þar liggur hundurinn grafinn. Fjármunirnir eru takmarkaðir. Pólitík snýst því í grunninn um það hvernig við forgangsröðum peningunum okkar. Gagnsæi og ábyrgð í hverri krónu Við kunnum ekki öll að fara með peninga og ég á mína veikleika eins og aðrir, en ég hef lært af reynslunni. Staðan verður alltaf sú að þarfirnar eru meiri en fjármunirnir sem eru í boði. Mörg góð málefni verða útundan vegna peningaleysis, en sum verkefni eru svo mikilvæg að réttlætanlegt er að stofna til skuldsetningar vegna þeirra. En hvernig greiðum við niður þær skuldir ef krafan um aukið fé í önnur málefni er endalaus? Þarna kemur forgangsröðunin inn. Stundum þurfum við að segja nei, og það er ekki gert af illum hug. En ég vil vera viss um, og ég veit að Viðreisn er mér sammála, að áður en við segjum nei við góðu málefni sé hver einasta króna sem bærinn aflar nýtt á sem hagkvæmastan hátt. Hver einasta króna á að skila virði. Bærinn á að vera rekinn af fagmennsku og með skýra peningastefnu. Það á ekki að vera hægt að fara í felur með fjármál. Þau eiga að vera opin og gagnsæ með opnu bókhaldi og virku, faglegu eftirliti. Innri endurskoðun á að gera ríkar kröfur um hagkvæm innkaup, snjalla nýtingu á tækni og stafrænum lausnum og reglubundið viðhald á fasteignum og búnaði til að koma í veg fyrir dýrari skaða síðar. Síðast en ekki síst eigum við að vera opin fyrir ábendingum frá bæjarbúum um það sem má betur fara, hlustum á þær og gerum raunverulegar breytingar þegar góðar hugmyndir berast. Höfundur er ráðgjafi og skipar 10. sæti Viðreisnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar