Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Aron Guðmundsson skrifar 9. maí 2026 16:19 Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar. Vísir/Diego Þróttur Reykjavík er á toppi Lengjudeildar karla í fótbolta með fullt hús stiga eftir sigur á Völsungi á Húsavík í dag. Vestramenn unnu sinn fyrsta sigur gegn HK sem tapaði um leið sínum fyrsta leik á tímabilinu. Grótta vann slag nýliða deildarinnar.
Sigur Þróttara, sem hafa farið frábærlega af stað í Lengjudeildinni til þessa, var aldrei í hættu á Húsavík í dag. Gestirnir úr Laugardalnum komust yfir strax á 2.mínútu leiksins með marki frá Aroni Snæ Ingasyni. Tvö mörk til viðbótar í fyrri hálfleik frá þeim Erni Braga Hinrikssyni og téðum Aroni Snæ innsigluðu 3-0 sigur Þróttara sem hafa unnið alla þrjá leiki sína til þessa í Lengjudeildinni og verma toppsæti deildarinnar með fullt hús stiga. Völsungur er með tvö stig í 11.sæti. Markaveisla á Ísafirði Á Ísafirði vann Vestri svo sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar að HK, sem hafði ekki tapað leik fyrir leik dagsins, mætti í heimsókn. Lokatölur urðu 4-3 Vestra í vil í miklum markaleik. Vestri lenti undir en komst svo í stöðuna 3-1 með tveimur mörkum frá Ibrahima Balde og einu frá Chriss-Albin Mörfelt. Jóhann Már Arnarsson minnkaði muninn fyrir HK með sínu öðru marki í leiknum áður en Pétur Bjarnason kom Vestra í stöðuna 4-2. Dominik Radic klóraði í bakkann fyrir HK með þriðja marki liðsins undir lok venjulegs leiktíma en þar við sat. 4-3 sigur Vestra staðreynd. Vestramenn komnir með fjögur stig eftir fyrstu þrjá leiki sína og verma sjöunda sætið. HK er í öðru sæti með sex stig og sömu markatölu og Fylkir í þriðja sætinu. Nýliðar börðust Þá gerði Grótta góða ferð til Þorlákshafnar og vann þar 1-0 sigur gegn Ægi í nýliðaslag. Grímur Ingi Jakobsson skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 33.mínútu. Fyrsti sigur Gróttu á tímabilinu og jafnframt fyrstu stig liðsins. Ægir er á botni deildarinnar án stiga.
Lengjudeild karla Vestri HK Þróttur Reykjavík Völsungur Grótta Ægir Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Handbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Valur - Stjarnan | Taka Stjörnukonur þátt í titilbaráttunni? Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Árni Vilhjálms í Stjörnuna Uppgjör: Þór/KA - Grindavík/Njarðvík 1-0. Margrét með sigurmarkið í upphafi leiks Botnlið Fram vann óvæntan sigur á toppliði Blika Eyjakonur með fyrsta sigurinn í tvo mánuði Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Elías Már sárþjáður og fór af velli Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig Uppgjörið: ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Uppgjörið: ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: FH - Stjarnan 2-2 | Jafnt í Krikanum Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Sjá meira