Rjúfum 20 ára kyrrstöðu - reisum stúdentagarða í Hafnarfirði Óskar Steinn Ómarsson skrifar 12. maí 2026 07:20 20 ár eru liðin síðan fyrsta skóflustungan var tekin að byggingu 100 stúdentaíbúða í Hafnarfirði - við Bjarkavelli á Völlunum, á vegum Byggingafélags námsmanna. Síðan þá hefur ekki ein einasta stúdentaíbúð verið byggð í bænum, þrátt fyrir að íbúum hafi fjölgað hratt og þúsundir ungra Hafnfirðinga stundi nám á höfuðborgarsvæðinu. Verra er að í september 2023 sendi Byggingafélag námsmanna bæjarráði Hafnarfjarðar formlegt erindi þar sem óskað var eftir lóðum og samstarfi um uppbyggingu stúdentaíbúða. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar svaraði ekki kallinu, heldur vísaði málinu í vinnu við aðalskipulag - þar sem það hefur einfaldlega dagað uppi. Samfylkingin í Hafnarfirði vill hefja samtalið strax og skipuleggja lóðir undir stúdentagarða og annað óhagnaðardrifið húsnæði í bænum, í samstarfi við Byggingafélag námsmanna og óhagnaðardrifin leigufélög á borð við Bjarg. Húsnæðisöryggi er forsenda þess að ungt fólk geti haldið áfram að búa í Hafnarfirði. Öflugar almenningssamgöngur og mannvænt skipulag Ungt fólk á að eiga raunverulegt val um fararmáta. Samfylkingin setur Borgarlínu og öflugt innanbæjarkerfi strætó í forgang, en nauðsynlegt er að endurskoða núverandi áætlanir sem gera ráð fyrir að kerfi borgarlínu tengist miðbæ Hafnarfjarðar í fyrsta lagi árið 2040. Þá ætlum við að gera strætó gjaldfrjálsan fyrir öll ungmenni að 18 ára aldri og halda áfram að byggja upp hjóla- og göngustíga með góðum tengingum yfir í nágrannasveitarfélögin. Skipulag bæjarins á að vera á forsendum mannlífs, með fjölbreyttu lóðaframboði fyrir fyrstu kaupendur, námsmenn og tekjulægri hópa og aukna áherslu á græn og opin svæði. Græn svæði og fjölskylduvænn bær Vellirnir eiga skilið almennilegt almenningssvæði. Samfylkingin ætlar að setja aukinn kraft í grænkun Valla, koma upp fjölskyldugarði í hverfinu og fjölga leiksvæðum víða um Hafnarfjörð, meðal annars í miðbænum. Samfellt grænt svæði meðfram Læknum og nýr almenningsgarður við Hörðuvelli mun tengja bæinn saman og bæta daglegt líf ungs fólks og barnafjölskyldna. Endurskoða þarf skipulag miðbæjarins og koma stærri hluta bílastæða þar undir jörð svo miðbærinn fái betur notið sín sem hjarta bæjarins. Menning, listir og ungmennahús sem stendur undir nafni Lifandi bær þarf rými fyrir sköpun. Samfylkingin ætlar að stækka Tónlistarskólann, reisa menningarhús og útvega rými fyrir vinnustofur ungra listamanna í bænum. Þannig fær skapandi fólk tækifæri til að festa rætur hér í stað þess að flytja annað. Síðast en ekki síst ætlum við að byggja upp öflugt ungmennahús fyrir 16–25 ára með víðtækri og faglegri þjónustu - hús sem er opið öllu ungu fólki, með sérstaka áherslu á jaðarsetta og félagslega einangraða hópa. Ungmennahús sem er ekki skellt fyrirvaralaust í lás eftir geðþótta bæjarfulltrúa. Það er löngu tímabært að skipulag, uppbygging og þjónusta í Hafnarfirði taki mið af þörfum ungs fólks í bænum. Samfylkingin setur hagsmuni ungs fólks í fyrsta sæti með stúdentagörðum, öflugum almenningssamgöngum, grænum svæðum og lifandi mannlífi. Þannig verðum við sterkari - saman. Höfundur skipar 7. sæti hjá Samfylkingunni í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar