Íslendingar eru bílaþjóð og munu alltaf vera það Eyþór Máni Steinarsson skrifar 12. maí 2026 08:51 Er allavega áróður sem oddvitar og aðrir fulltrúar hinna ýmsu stjórnmálaafla keppast við að boða borgarbúum og landsmönnum í aðdraganda kosningana. Ég hef óbeit á því að heyra þessa línu síendurtekna, sérstaklega þegar hún stenst ekki minnstu skoðun. Það eru miklu fleiri sem keyra en vilja það Til að særa burt þessa staðreyndaróværu þarf ekki að leita lengra en í síðustu ferðavenjukönnun Reykjavíkurborgar. Í þeirri könnun er meðal annars spurt hvernig fólk ferðast dags daglega til og frá vinnu, og síðan hvernig það myndi helst vilja ferðast til og frá vinnu. Í könnuninni koma fram nokkrar áhugaverðar staðreyndir: 67% fólks fara akandi í vinnu eða skóla, en 43% myndu velja sér það. 11% fara fótgangandi í vinnu eða skóla, 24% myndu velja sér það. 11% ferðast á hjólastígum í vinnu eða skóla en 15% vilja gera það. 7% ferðast á strætó en 10% vilja nota hann. Eini fararmátinn sem fleiri nota en vilja er einkabíllinn. Allir aðrir fararmátar eiga inni meiri notkun, og það er við núverandi aðstæður, þar sem það er nánast ómögulegt að sjá fyrir sér annað en að keyra bíl til að komast á milli staða. Miðað við 111.000 Reykvíkinga eldri en 18 ára í fyrra eru þarna rúmlega 25.000 manns sem keyra til og frá vinnu og skóla á hverjum degi sem myndu helst ekki vilja gera það. Þetta mynstur er líka ekki nýmóðins. Það kemur fram í hverri einustu ferðavenjukönnun. Við búum ekki við valfrelsi í samgöngum Strætó, og almenningssamgöngur, hafa áratugum saman verið stórkostlega vanfjármagnaðar. Strætó er ýmist of seinn eða of snemma því hann er fastur í ófyrirsjáanlegri umferð. Hann keyrir á óásættanlegri og óáreiðanlegri tíðni og er neyddur til að þræða hverfin áður en hann kemst á stofnbrautirnar. Þetta leysir Borgarlínan. Hún er fyrsta skref sem við höfum þorað að taka í átt að einhverskonar gæðum í almenningssamgöngum, og nauðsynlegt skref til að komast aðeins nær því að jafna leikinn á milli einkabílsins og almenningssamgangna. Nú er agnúast yfir því að Borgarlínan kosti 136 milljarða. Á sama tímabili og Borgarlínan á að vera byggð upp liggur fyrir að verja svipaðri upphæð í uppbyggingu á stofnvegakerfinu á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir samhengi er kostnaður við Fjarðagöng og Fjarðarheiðargöng á Austfjörðum áætlaður 115 milljarðar. Framkvæmdir við samgöngur eru í eðli sínu neyslustýrandi Nánast engum peningum hefur nokkurn tímann verið varið í uppbyggingu sérstakra innviða fyrir strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu, séu stoppistöðvar tekin frá. Uppbygging hjólastíganets í Reykjavík hófst upp úr 2010, og ekki af krafti fyrr en eftir 2015. Það er orðið rétt rúmlega 10 ára gamalt verkefni. Framkvæmdir við samgöngumannvirki eru í eðli sínu neyslustýrandi. Hingað til hefur ekki annað verið fjármagnað en einkabíllinn, svo að sjálfsögðu er erfitt að ímynda sér að nota nokkuð annað. Með þetta í huga er ekki hægt að furða sig á að aðrir valkostir en einkabíllinn teljist óraunsæir. En þrátt fyrir þessa vanfjármögnun og forgangsröðun einkabílnum í hag eru þetta valkostir sem 33% borgarbúa reiða sig á á hverjum degi. Það er löngu kominn tími til að snúa þessu við. Ef það er reist, verður það nýtt Ég geri ekki heiðarlegri tilraun en þetta til að þýða frægu línuna úr Field of Dreams en hún á við hér sem og oft annars staðar. Mörg efast um að nokkur maður komi til með að nota Borgarlínuna þegar hún er loksins tilbúin. En hvaða forsendur höfum við fyrir því að vita hvort það muni raungerast eður ei? Fyrir utan óteljandi dæmi erlendis frá, hvar aukin gæði almenningsamgangna leiða í öllum tilfellum til aukinnar notkunar má líka skoða séríslenskt dæmi: 10 ára gömlu hjólastígana í Reykjavík. Síðan þá hefur notkun hjólastígana aukist um 120 prósent. Rétt eins og með Borgarlínuna trúðu margar háværar raddir ekki á að þeir yrðu notaðir af nokkrum manni þrátt fyrir tilkostnað og rask á gamla góða einkabílnum. Ein fyrsta borgarumræðan sem ég man eftir var rifrildi um hjólastíg á Grensásveginum og hvernig fólk myndi beinlínis deyja út af þeim. Þær raddir eru talsvert lágværari núna. Rétt eins og hjólastígaframkvæmdir hafa sannað sig munu Borgarlínan og aukin gæði almenningssamgangna sanna sig líka. Það er enginn að reyna að taka einkabílinn af neinum. Það er enginn að reyna að láta allar ferðir neins vera einungis með strætó, labbandi eða hjólandi. Þetta snýst um að snúa við áratugalangri vanrækslu allra annara valkosta en bílnum. Raunverulegt valfrelsi á milli valkosta í samgöngum er pólitísk ákvörðun. Viðreisn ætlar að standa við Samgöngusáttmálann og klára þetta loksins. Höfundur er í fimmta sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eyþór Máni Steinarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 12.09.2026 Halldór Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar