Fjölluðu um aukið hártog: „Þetta er galið og út með þetta“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. maí 2026 09:01 Hrafnhildur Salka Pálmadóttir rífur í hár Barbáru Sólar Gísladóttur. sýn sport Þótt aðeins fjórar umferðir séu búnar af Bestu deild kvenna í fótbolta hafa tveir leikmenn verið reknir af velli fyrir að toga í hár mótherja. Fjallað var um aukna tíðni hártogs í Bestu mörkum kvenna.
Valskonan Hrafnhildur Salka Pálmadóttir fékk rautt spjald á 18. mínútu í leiknum gegn Breiðabliki í gær fyrir að rífa í hár Barbáru Sólar Gísladóttur. Í 1. umferðinni var Maci Nicole Teater, leikmaður Grindavíkur/Njarðvíkur, rekin af velli fyrir að rífa í hár Kimberley Dóru Hjálmarsdóttur, leikmanns Vals. Katrín Ásbjörnsdóttir botnaði ekkert í Hrafnhildi Sölku fyrir að rífa í hárið á Barbáru í leiknum á Kópavogsvelli í gær. „Mér finnst þetta ótrúlega skrítið að lenda einhvern veginn í þessu og þær vita betur. Ég er alveg hundrað prósent á því. Það vita það allir að þetta má ekki. Hún mótmælir engu en þetta er örugglega bara í hita leiksins. Þetta er ótrúlega glórulaust,“ sagði Katrín í Bestu mörkunum. Klippa: Bestu mörkin - umræða um hártog „Þetta á ekki heima á vellinum og það að við séum búin að sjá þetta tvisvar núna í byrjun móts, það eru bara fjórar umferðir búnar.“ Svo virðist sem hártog hafi aukist en í Bestu mörkunum voru sýnd nokkur dæmi um það frá síðustu tveimur tímabilum. „Það er miklu lengra síðan ég spilaði fótbolta heldur en Katrín. Við höfum rætt þetta talsvert, ég einhvern veginn man ekki eftir þessum atvikum þegar ég var að spila. En mér finnst þetta orðið algengara og við erum ekki bara að sjá þetta kvennamegin. Við erum að sjá þetta karlamegin,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir. „Þetta á bara ekki heima í fótbolta,“ skaut Katrín inn. Reglurnar eru skýrar Margrét Lára vill sjá leikmenn hætta þessum ósið, að toga í hár mótherja. „Þetta er bara galið því eins og við höfum talað um svo oft eru reglurnar svo skýrar með þetta. Þetta er bara rautt spjald. Þetta er ekkert eitthvað gult eða appelsínugult. Þetta er bara rautt spjald. Þannig að ég held að leikmenn þurfi bara að fara að hætta þessu. Ég trúi ekki að leikmenn séu að vinna með þetta á æfingum af því að þá enda örugglega æfingar illa,“ sagði Margrét Lára. „Þetta er galið og út með þetta. Þetta er bara tilgangslaust,“ bætti Eyjakonan við. Umræðuna úr Bestu mörkunum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild kvenna Bestu mörkin Valur Breiðablik Tengdar fréttir „Þetta var vont“ Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, var eðlilega svekktur eftir grátlegt 3-2 tap gegn Breiðabliki í kvöld. 11. maí 2026 20:48 „Get ekki sagt að þetta hafi verið sannfærandi sigur“ Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með stigin þrjú eftir dramatískan 3-2 sigur gegn Val í 4. umferð Bestu deildar kvenna en viðurkenndi að frammistaða liðsins hefði ekki verið nógu góð. 11. maí 2026 20:44 Uppgjörið: Breiðablik - Valur 3-2 | Ótrúlegur sigur Blika Breiðablik vann dramatískan 3-2 sigur á Val á Kópavogsvelli í 4. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. 11. maí 2026 20:25 Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Fleiri fréttir Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Sjá meira
„Þetta var vont“ Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, var eðlilega svekktur eftir grátlegt 3-2 tap gegn Breiðabliki í kvöld. 11. maí 2026 20:48
„Get ekki sagt að þetta hafi verið sannfærandi sigur“ Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með stigin þrjú eftir dramatískan 3-2 sigur gegn Val í 4. umferð Bestu deildar kvenna en viðurkenndi að frammistaða liðsins hefði ekki verið nógu góð. 11. maí 2026 20:44
Uppgjörið: Breiðablik - Valur 3-2 | Ótrúlegur sigur Blika Breiðablik vann dramatískan 3-2 sigur á Val á Kópavogsvelli í 4. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. 11. maí 2026 20:25