Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar 14. maí 2026 07:41 Börn og ungmenni skipta mig gríðarlega miklu máli. Ég hef unnið í skólakerfinu í yfir 20 ár. Ég hef séð foreldra vera í vandræðum með að kerfið grípi þau. Ég hef séð börn á bið eftir úrræðum í marga mánuði eða ár. Ég hef séð bugaða foreldra sem vita ekki hvað þau eiga að gera. Stór hluti af vandanum er kerfislægur og sveitarfélög og ríkið bera ábyrgð. Hlutverk sveitarfélaga er að gera foreldrum kleift að fá nauðsynlega þjónustu fyrir barnið sitt. Hvort sem það snýr að velferðarþjónustu eða viðunandi námsumhverfi í skólanum. Samstarfsmenn sem þekkja mig vel hafa sagt við mig að við erum að gera okkar besta í þeim aðstæðum sem við ráðum við. Það svar dugar mér ekki. Mér finnst ekki rétt að sætta mig við að við séum að gera okkar besta miðað við hverju er hægt að breyta. Þetta er einungis einn angi af grunnþjónustu sem þarf að gera betur. ,,Chill out” svæði mikilvægara en grunnþjónusta bæjarins Þegar frétt um nýja menningarmiðstöð í Vetrargarðinum í Smáralind var tilkynnt fyrir einhverjum vikum síðan verð ég að viðurkenna að ég varð hálf miður mín. Ekki vegna þess að ég vil ekki fá menningarmiðstöð í bæinn okkar heldur vegna þess að grunnþjónusta við íbúa bæjarins er ekki nægilega góð. Á meðan beðið er eftir fjármagni fyrir lögbundna grunnþjónustu er á sama tíma auðvelt að henda milljónum fram úr erminni til að gera leigusamning við Smáralindina til að byggja þar upp menningarmiðstöð. Út á við lítur allt vel út hjá Kópavogsbæ, en þegar skoðað er bak við tjöldin blasir önnur mynd við. Forgangsröðun verkefna er röng. Börn á bið eftir nauðsynlegri þjónustu Foreldrar sem sækja um sértækt skólaúrræði eða pláss í sérdeildum vita nánast fyrirfram að líkurnar á að fá pláss eru litlar. Stærstum hluta barna er hafnað. Dæmi eru um að aðeins eitt pláss sé laust í sérdeild á heilu skólaári. Við erum með fjölskyldur sem eru að bíða eftir úrræðum frá barnavernd mánuðum saman. Á meðan safnast mál upp hjá starfsfólki sem þegar eru með mál í tugatali á sinni könnu. Þegar mál loksins opnast tekur önnur bið við, bið eftir ráðgjöf, námskeiðum eða öðrum úrræðum til stuðnings. Engin eða takmörkuð úrræði virðast vera til staðar í bænum fyrir börn og ungmenni í áhættuhegðun eða þau sem eru með geðrænan vanda eða fíknivanda. Það þarf að leita út fyrir bæinn og þar tekur næsta bið við. Þetta er veruleiki barna og fjölskyldna sem þurfa tafarlausan stuðning. Fatlaðir einstaklingar og langveik börn sitja eftir Kópavogsbær gefur sig út fyrir að þjónusta við fatlað fólk sé veitt á grundvelli laga og í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar sem íslensk stjórnvöld hafa gengist undir, en er það svo? Foreldrar langveikra barna þurfa að berjast fyrir því að börnin þeirra fái þjónustu Kópavogsbæjar sem þau nauðsynlega þurfa. Við erum með börn sem eru að bíða eftir stuðningsþjónustu eða liðveislu. Fyrst þarf að fá samþykki fyrir stuðningsþjónustu og næst þarf að finna aðila til að sinna þjónustunni. Þegar rétti aðilinn er fundinn þarf að bíða eftir fjármagni í heilt ár. Fyrir nokkrum mánuðum voru yfir 100 börn á biðlista eftir liðveislu í Kópavogi. Fullorðinn einstaklingur, Kópavogsbúi, sem býr í öðru sveitarfélagi langar að flytja aftur í sinn heimabæ. Sá aðili veigrar sér við að flytja aftur ,,heim’’ af ótta við að missa þjónustuna. Fullorðnir fatlaðir einstaklingar lýsa velferðarkerfi bæjarins sem kerfi sem er í lamasessi. Mikil vöntun er á sértæku búsetuúrræðu fyrir fatlað fólk í Kópavogi. Umsækjendur búa við langvarandi óvissu og eru á biðlistum árum saman eða í áratug án þess að fá upplýsingar um biðtíma eftir húsnæði. Samkvæmt lögum ber Kópavogsbær að upplýsa umsækjendur um stöðu mála og hvenær áætlað er að viðkomandi fái búsetu og þjónustu við hæfi. Því miður hefur Kópavogsbær hunsað þær lögbundnu skyldur sínar og á sama tíma eru það aðstandendur sem sinna öllum stuðningsþörfum viðkomandi og oft með tilheyrandi álagi. Eldri íbúar bæjarins Íbúar Kópavogs sem hafa búið hér í áratugi eiga að geta treyst því að fá þjónustu við hæfi þegar þeir komast á efri ár. Einstaklingur sem hefur verið hraustur lengi en fer síðan að hraka á ekki að þurfa að sitja heima og bíða eftir úrræðum heldur þarf að fá þjónustu sem fyrst. Einmanaleiki er raunveruleg áskorun hjá eldri íbúum bæjarins. Margir missa maka og vini og standa eftir einir. Þess vegna er brýnt að efla heimastuðning og dagdvöl svo fólk fái félagslegan stuðning og innihaldsríkan dag. Það er ekki ásættanlegt að eldri borgarar þurfi að bíða mánuðum saman eftir dagdvöl, eins og staðan er í dag. Með því að tryggja aðgengi að slíkum úrræðum getum við stutt við lífsgæði, heilsu og lífsgleði og jafnvel lengt lífið. Eldra fólk hefur lagt sitt af mörkum til samfélagsins. Það á skilið að fá þjónustu þegar þörfin er til staðar ekki mánuðum eða árum síðar. Þá gæti tími þeirra einfaldlega verið liðinn. Glæstar vonir eða brostnar vonir fyrir íbúa bæjarins Glæstar vonir eru ekki einkenni Kópavogsbæjar fyrir þá íbúa sem þurfa á grunnþjónustu að halda. Eins og staðan er í dag upplifa þeir brostnar vonir. Frambjóðendur á lista Viðreisnar í Kópavogi eiga það sameiginlegt að þau geta ekki lengur horft upp á þetta viðgangast. Viðreisn vill sveitarfélag sem stendur með öllum íbúum. Við þurfum að búa Kópavog sem bæ þar sem börn og fjölskyldur þeirra fá þá þjónustu sem þau þurfa og biðin sé ekki svona löng. Við viljum að einstaklingar með fatlanir geta tekið virkan þátt í samfélaginu án hindrana og eldri ibúar bæjarins fengið þá þjónustu sem þeir þurfa, þegar á þarf að halda. Kópavogur á að vera fyrir alla, ekki bara suma. Höfundur er skólastjóri og í 4. sæti lista Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar