Sala á opinberum eignum Sigurður Kristinn Pálsson skrifar 14. maí 2026 17:03 Nýverið gaf formaður xD út að ef flokkurinn kemst til valda standi til að selja félög og eignir ríkisins að andvirði um 680 milljarða króna. Þar má nefna Landsbankann, RARIK, Landsnet og Isavia. Flestir þekkja einkavæðinguna sem hófst um 1996 og lauk með sölu á hlutafé ríkisins í Landsbankanum og Búnaðarbankanum fyrir samtals um 27 milljarða króna. Sú sala var mjög umdeild enda töldu margir verð lágt og kaupendur tengda þáverandi stjórnarflokkum xD og xB sterkum böndum. Einkavæðingin sú fyrri endaði eins og flestir muna þegar þáverandi forsætisráðherra Geir H Harde endaði fræga ræðu sína á orðunum „Guð blessi Ísland” Lindarhvoll er annað dæmi þar sem gagnrýnendur telja að eignum sem metnar voru á hundruð milljarða króna hafi verið ráðstafað til „réttara“ aðila. Lögmaður Lindarhvoll sem jafnframt var vinur formanns xD, gegndi einnig starfi framkvæmdastjóra sama félags og sat stjórnarfundi. Félag hans Íslög fékk greiddar um 273 milljónir króna frá fjármálaráðuneytinu og Lindarhvol samkvæmt heimildum DV án þess að tímaskýrslur fylgdu reikningum. Sem framkvæmdastjóri þá samþykkti hann reikninga frá sjálfum sér. Ríkisendurskoðun var falið að fara yfir málefni Lindarhvols. Skipta þurfti út ríkisendurskoðanda þar sem hann var bróðir þess sem stjórnaði Lindarhvol. Sigurður Þórðarsson tók við verkefninu. Sigurður skilaði af sér greinagerð en forseti alþingis Birgir Ármannsin hafnaði því að gera hana opinbera en gaf eftir árið 2023 eftir að búið var að leka henni út. Kosningaáherslur xD Samkvæmt STRAX-D kosningaáherslum xD stendur til að selja fyrirtæki í eigu Orkuveitunnar, þar á meðal Ljósleiðarann og Carbfix, ásamt öðrum fyrirtækjum í eigu borgarinnar. Gagnrýnendur hafa sagt að með þessu sé verið að „strippa niður“ Orkuveituna í undirbúningi fyrir mögulega sölu. Sala á hlut Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun Þegar xD var við völd í borginni árið 2006 var 44,5% hlutur borgarinnar í Landsvirkjun seldur fyrir 27 milljarða króna, sem jafngildir um 69,4 milljörðum á núvirði. Verðmæti þessa hlutar í dag hefur verið metið á bilinu 500–800 milljarðar króna. Þá hefðu arðgreiðslur til borgarinnar síðustu fimm ár numið um 50 milljörðum króna. Spurningin sem margir velta fyrir sér er hvort þessi sala hafi verið borgarbúum hagstæð til lengri tíma litið. Orkuveitan og REI-málið Það hefur lengi verið stefna hjá xD að draga úr umsvifum Orkuveitunnar og opna fyrir aukna þátttöku einkaaðila. “REI-málið er dæmi um pólitískt og viðskiptalegt hneyksli sem margir telja að ekki megi gleyma eða endurtaka. Þá var Guðlaugur Þór Þórðarson stjórnarformaður OR og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri. Ætlunin var að færa hluta starfsemi OR í sérstakt félag og færa einkafjárfestum umtalsverð verðmæti í eigu Reykvíkinga.” REI-málið í hnotskurn 1. Áformin um risasamruna Í október 2007 var tilkynnt um samruna REI dótturfélags OR sem hélt utan um erlend verkefni og einkafyrirtækisins Geysir Green Energy (GGE) sem var í eigu fjárfesta tengdum FL Group og Atorku. Við samrunann átti OR að leggja til umtalsvert fjármagn, eignir og rannsóknarleyfi í nýtt sameinað fyrirtæki. OR hefði átt 35% hlut í félaginu en einkafjárfestar 65%. Gagnrýnendur töldu að með þessu væru almannagæði og sérþekking OR afhent einkaaðilum á afar hagstæðum kjörum. 2. Kaupréttarhneykslið og leyndin Málið vakti enn meiri athygli þegar í ljós kom að fáeinum lykilmönnum og forstjóra OR hafði verið heimilað að kaupa hlutabréf í REI á undirverði rétt fyrir samrunann. Gert var ráð fyrir að virði bréfanna myndi margfaldast við samrunann og fyrirhugaða skráningu á hlutabréfamarkað. Jafnframt var gagnrýnt að ákvörðunin hefði verið keyrð í gegnum stjórn OR á miklum hraða og án þess að allir borgarfulltrúar fengju aðgang að nauðsynlegum gögnum. Lokaorð Stundum horfum við í ranga átt og sjáum ekki það sem er beint fyrir framan okkur. Spurningin sem kjósendur þurfa að velta fyrir sér er hvort saga xD gefi tilefni til trausts þegar kemur að meðferð almannaeigna. Höfundur er fyrrverandi framkvæmdastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar