Af svifryki, strætó og sjálfstæðum krökkum Kristín Helga Schiöth skrifar 14. maí 2026 20:11 Ef Akureyrarbæ ber gæfa til að koma á almennilegu strætókerfi á næstu árum væri hægt að slá margar flugur í einu höggi. Betri strætó hefði í för með sér minna skutl, sjálfstæðari börn, hreinni lungu, minni losun og einfaldari hversdag fyrir fjölda íbúa. Svifryksmengun er umhverfis- og lýðheilsuvá sem ber að taka alvarlega og helgast fyrst og fremst af malbikssliti. Þrif á götum eru nauðsynlegur þáttur í að halda bænum hreinum en þrifin eru bara viðbragð við ástandi – best væri að draga úr slitinu í upphafi, m.a. með að gera vistvænum ferðamátum hærra undir höfði í bænum. Í dag er bílaeign Akureyringa með því mesta sem gerist í Evrópu, fjöldi bíla er meiri en fjöldi bílprófa hér í bæ og algengt er að við hvert heimili séu fleiri en einn bíll. Í annasömum hversdegi þar sem foreldrar vinna úti og börn eru í fjölbreyttum frístundum þarf ansi oft að skjótast, sækja og skutla. Strætó gengur sjaldan og ekki er gaman að lenda í því að þurfa að bíða í klukkutíma eftir næsta vagni, missi maður af. Í dag er leiðarkerfið þannig að oft þarf að taka útsýnistúr í gegnum hálfan bæinn áður en komist er á leiðarenda, þar sem keyrður er hringur. Það hentar helst ferðamönnum sem koma á skemmtiferðaskipunum og nýta sér, eðlilega, þennan ókeypis skoðunartúr sem þeim býðst í boði Akureyringa en hentar heimafólki síður. Talsverð áhersla er lögð á strætókerfið í Umhverfis- og loftslagsstefnu Akureyrarbæjar, sem bæjarstjórn hefur skuldbundið sig til að vinna eftir. Það þarf ekki að koma á óvart, enda eru helstu sóknarfærin til að draga úr losun innan bæjarmarkanna með því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Þar kemur fram að hefja átti notkun á nýju leiðarkerfi árið 2021, sem var síðan frestað til 2022. Nýtt leiðarkerfi átti að innifela aukna tíðni ferða, beinni leiðir og styttri ferðatíma og áhersla á að leiðanetið tengdist miðbæ, skólum, frístundastarfsemi og helstu atvinnukjörnum. Nú er árið 2026 og ekkert að frétta af nýju leiðarkerfi, ekki er ekið inn í nýbyggð hverfi sem fólk er flutt í – og ekki liggur fyrir hvenær eigi að byrja á því. Stórir vinnustaðir eins og TDK eru langt utan leiðarkerfis og hvorki er hægt að taka strætó í Kjarnaskóg eða Hlíðarfjall. Það hefði verið gullið tækifæri að setja sem skilyrði inn í hugmyndakeppnina um skipulag Akureyrarvallar að komið væri fyrir samgöngumiðstöð syðst á reitnum, þar sem landsbyggðastrætó gæti haft bækistöðvar ásamt innanbæjarstrætónum, hopp-hjól og hleðslustöðvar væru til staðar og upp byggðist almennilegur tengipunktur sem hefði jákvæð áhrif á bæjarlífið í kring. Það tækifæri rann bæjarbúum úr greipum og í staðinn fyrir samgöngumiðstöð miðsvæðis rís nú í flýti svokölluð jöfnunarstöð við Glerána, í miklum þrengslum og af litlum metnaði fyrir öflugri almenningssamgöngum. Akureyringar eiga skilið almenningssamgöngur sem eru raunverulegur valkostur við fjöl-bílaeign og útgjöldin sem þeim fylgja. Það er þá líka valdeflandi fyrir krakka að koma sér sjálfir á milli staða og um að gera að auðvelda þeim það. Hér ætti að ganga strætó sem gengur fyrir innlendum orkugjöfum, oftar og víðar og eftir leiðarkerfi sem hentar íbúum. Samfylkingin á Akureyri er tilbúin í það verkefni. Höfundur skipar níunda sæti á lista Samfylkingarinnar á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfylkingin Akureyri Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar