Garðabær má ekki staðna Viðar Kristinsson skrifar 15. maí 2026 08:33 Í Garðabæ býr samfélag sem vex hratt. Á síðustu árum hefur íbúum bæjarins fjölgað um tæplega 2.400 manns og ljóst er að á næstu árum mun reyna enn meira á getu sveitarfélagsins til að veita góða þjónustu í takt við þessa þróun. Þegar samfélag breytist svona hratt þurfa stjórnvöld að hugsa stórt, horfa fram á við og laga innviði að nýjum veruleika. Þar tel ég að Garðabær hafi of oft setið eftir. Það er einfaldlega hætta á stöðnun þegar sami flokkurinn hefur setið við völd í nærri 60 ár. Við sjáum þetta víða í skipulagi bæjarins og forgangsröðun verkefna. Urriðaholt – tækifæri sem ekki var nýtt Gott dæmi er ný viðbygging við Urriðaholtsskóla. Þar var ráðist í uppbyggingu íþróttahúss og sundlaugar sem er jákvætt í sjálfu sér. En enn og aftur virðist hafa verið hugsað of lítið fyrir samfélagið í heild. Útkoman er mannvirki sem þjónar fyrst og fremst skólanum en nýtist almenningi aðeins að takmörkuðu leyti. Einn lítill heitur pottur og lítil vaðlaug fyrir ört stækkandi hverfi. Þetta er ekki sú framtíðarsýn sem Garðabær þarf árið 2026. Þarna var raunverulegt tækifæri til að byggja upp samfélagsmiðju fyrir fjölskyldur, eldri borgara og íbúa hverfisins alls. Tækifæri til að skapa aðstöðu sem hefði styrkt nærþjónustu, dregið úr akstri milli bæjarhluta og bætt lífsgæði fólks í daglegu lífi. Í staðinn virðist enn einu sinni hafa verið hugsað út frá lágmarkslausn. Fjölskyldur finna fyrir þessu á hverjum degi Afleiðingarnar þekkja fjölskyldur í Garðabæ vel. Foreldrar keyra á milli hverfa með börn í skóla, íþróttir og sund. Eldri borgarar þurfa að ferðast lengra en nauðsynlegt er til að sækja hreyfingu og félagslíf. Umferðin þyngist og innviðirnir ráða síður við álagið. Samhliða þessu sitja mikilvægar samgöngubætur eftir. Tengingar Urriðaholts við Kauptún og áfram út á stofnvegi hafa dregist alltof lengi og það er löngu orðið tímabært að vinna þau mál af meiri krafti í samstarfi við nágrannasveitarfélög og Vegagerðina. Of oft hefur umræðan snúist um hvernig halda megi umferð frá bænum í stað þess að horfa á höfuðborgarsvæðið sem eina heild þar sem fólk býr, vinnur og ferðast á milli sveitarfélaga á hverjum degi. Ábyrgur rekstur snýst líka um forgangsröðun Traustur rekstur sveitarfélagsins skiptir auðvitað máli. Íbúar eiga að geta treyst því að farið sé vel með skattfé og að ákvarðanir séu teknar af ábyrgð. En ábyrg fjármál snúast líka um forgangsröðun. Í Garðabæ starfa um þúsund manns hjá sveitarfélaginu en þar er til dæmis enginn mannauðsstjóri. Á sama tíma eru starfandi nefndir sem margir upplifa sem lítið virkar og hafa skilað takmörkuðum árangri síðustu ár. Það er eðlilegt að spyrja hvort ekki sé kominn tími til að einfalda stjórnsýsluna og beina meira fjármagni í raunverulega innviði og þjónustu við íbúa. Garðabær þarf meiri framtíðarsýn Garðabær hefur alla burði til að vera leiðandi sveitarfélag þegar kemur að fjölskylduvænu umhverfi, góðum innviðum og sterkri samfélagssýn. En þá þarf líka að hugsa lengra en næsta kjörtímabil. Við þurfum betri tengingar milli hverfa, öruggari göngu- og hjólastíga og raunverulega framtíðarsýn í samgöngumálum. Við þurfum líka að hlúa betur að þeim lífsgæðum sem gera Garðabæ að góðum stað til að búa á grænum svæðum, mannlífi og samfélagsanda. Og við þurfum að hætta að mæla árangur sveitarfélags eingöngu í rekstrarafgangi. Samfélag er líka mælt í því hvernig við hlúum að fólkinu okkar. Garðabær hefur setið eftir í menningarmálum Það sést meðal annars í menningarmálum og félagslegum stuðningi þar sem bærinn stendur víða lakar en sambærileg sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir hraðan vöxt skortir enn raunverulegt menningarhús sem getur sameinað samfélagið, skapað vettvang fyrir listir og viðburði og styrkt bæjarandann. Í öðrum sveitarfélögum eru slíkir staðir orðnir sjálfsagður hluti af samfélaginu. Í Garðabæ hefur þessi uppbygging setið á hakanum alltof lengi. Kjarkur til að hugsa hlutina öðruvísi Eftir nærri 60 ár við völd er eðlilegt að spyrja hvort sami meirihluti hafi einfaldlega misst sjónar á því hvernig samfélagið hefur breyst. Garðabær þarf ferskari sýn, meiri framsýni og skýrari forgangsröðun fyrir fjölskyldur og framtíð bæjarins. Það er kominn tími á breytingar. Höfundur er íbúi í Urriðaholti og skipar 15. sæti á lista Viðreisnar í Garðabæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Viðreisn Garðabær Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Skoðun Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar