Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap Agnar Már Másson skrifar 18. maí 2026 21:33 Þuríður Lillý Sigurðardóttir í Framsókn og Ragnar Sigurðsson í Sjálfstæðisflokki. Aðsend Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð hafa ákveðið að hefja formlegar meirihlutaviðræður um áframhaldandi samstarf flokkanna á komandi kjörtímabili. Flokkarnir töpuðu báðir verulegu fylgi milli kosninga, en meirihlutinn hélt samt velli.
Greint er frá meirihlutaviðræðum í fréttatilkynningu frá flokkunum. Núverandi meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks, sem var myndaður í mars 2024 eftir að meirihluti Framsóknar og félagshyggjuframboðsins Fjarðalistans sprakk, rétt svo hélt velli í sveitarstjórnarkosningunum þrátt fyrir að báðir flokkarnir töpuðu einum manni hvor frá síðustu kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá fulltrúa í sveitarstjórnarkosningunum um helgina og er því í lykilstöðu en Framsóknarflokkurinn, Miðflokkur og listi Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks fengu tvo fulltrúa hver. ‹ › Í tilkynningu meirihlutaflokkanna segir að samstarfið hafi gengið vel og einkennst af góðu trausti, skýrum markmiðum og sameiginlegri sýn á uppbyggingu sveitarfélagsins. Undanfarin tvö ár hafi verið lögð áhersla á ábyrgari rekstur sveitarfélagsins, aukna fjárhagslega festu, uppbyggingu innviða og öfluga sókn í atvinnu-, íþrótta- og samfélagsmálum. Fulltrúar flokkanna telja mikilvægt að byggja áfram á þeim grunni. Viðræðurnar munu á næstu dögum snúa að sameiginlegri framtíðarsýn, verkefnum komandi kjörtímabils og útfærslu nýs málefnasamnings fyrir sveitarfélagið. Nánari upplýsingar verða veittar þegar framvinda viðræðna liggur betur fyrir. Sveitarfélagið Fjarðabyggð varð til 1998 við sameiningu Neskaupstaðar, Eskifjarðarkaupstaðar og Reyðarfjarðarhrepps á Austurlandi.
Fjarðabyggð Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira