Golf

Gunn­laugur Árni náði stórum á­fanga

Sindri Sverrisson skrifar
Gunnlaugur Árni Sveinsson heldur áfram að gera frábæra hluti í bandaríska háskólagolfinu.
Gunnlaugur Árni Sveinsson heldur áfram að gera frábæra hluti í bandaríska háskólagolfinu. Instagram/@arni_sveinsson

Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson bætti rós í hnappagat sitt í gær þegar hann komst með liði LSU inn á úrslitamót bandaríska háskólagolfsins.

Mótið fer fram í Kaliforníu dagana 29. maí til 3. júní og verður Gunnlaugur Árni nú með á því í fyrsta sinn. Þetta er í annað sinn á síðustu sex árum sem LSU kemst inn á úrslitamótið.

Gunnlaugur Árni hefur verið í lykilhlutverki í liði LSU á tímabilinu og hæst náð upp í 8. sæti á heimslista áhugakylfinga.

Á mótinu sem lauk í Arizona í gær endaði LSU í 3. sæti og komst þannig inn á úrslitamótið. Gunnlaugur hafnaði í 43. sæti í einstaklingskeppninni eftir að hafa leikið afar vel á þriðja og síðasta hring, eða 69 höggum, og var hann samtals á tveimur höggum yfir pari.

Tveir liðsfélaga hans enduðu jafnir í 6. sæti og samtals var lið LSU á -30 höggum, fimm höggum á eftir Oklahoma State en 19 höggum á eftir Arizona sem vann mótið, og sex höggum á undan Duke og Arkansas State.

Á úrslitamótinu spila 30 sterkustu háskólalið Bandaríkjanna um NCAA-meistaratitilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×