„Allir tilbúnir að hrauna yfir þjálfarann“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. maí 2026 07:00 Hilmar Árni setur ekkert út á sókndjarft upplegg Stjörnunnar en furðar sig á viðbrögðum fólks. Hilmar Árni Halldórsson hefur komið þjálfurum þriðja flokks Stjörnunnar til varna, eftir að myndband af slæmu tapi liðsins fór í dreifingu á samfélagsmiðlum.
Hilmar Árni er fyrrum leikmaður og þjálfari hjá Stjörnunni en starfar í dag sem aðstoðarþjálfari Óskars Hrafns Þorvaldssonar hjá KR. Hilmar þekkir því vel að spila hugrakkan fótbolta og tjáði sig um myndband sem hefur farið víða í færslu á Facebook. Í myndbandinu, sem má sjá hér að neðan, eru mörkin sem þriðji flokkur Stjörnunnar fékk á sig í 7-1 tapi gegn Fjölni dregin saman. Þar má sjá að markmaður Stjörnunnar er yfirleitt mjög illa staðsettur þegar Fjölnismenn skora. Í flestum tilfellum skoruðu Fjölnismenn einfaldlega í autt mark. 3. flokkur Stjörnunnar að vinna með góða taktík pic.twitter.com/H0ilvcI8er— Benedikt Björgvinsson (@benediktbjo) May 20, 2026 Þannig þóttu þjálfarar þriðja flokks Stjörnunnar tefla nokkuð djarft og þeir hafa verið gagnrýndir harðlega. Meðal annars í ummælum við myndbandið hér fyrir neðan en einnig í hlaðvarpsþættinum Þungavigtin, þar sem leikstíll liðsins var kallaður „viðbjóður“. „Má hugsa sjálfstætt?“ spyr Hilmar Árni í færslu á Facebook og veltir fyrir sér hneyksluðum viðbrögðum við myndbandinu. „Allir tilbúnir að hrauna yfir þjálfarann“ „Allir hafa skoðun á fótbolta virðist vera og allir í kringum mig hafa haft skoðun á þessu. Jafnvel þó fólk hafi engar forsendur til að skilja samhengið eru allir tilbúnir að hrauna yfir þjálfarann, félagið, stefnuna og allt sem þetta táknar.“ hélt Hilmar Árni áfram. „Fór óhefðbundnar leiðir að ögra leikmönnum“ „Ég heyri af því að þjálfarasamfélagið keppist um það að níða skóinn af þessum einstakling sem, Guð forði okkur frá því, þorði að gera eitthvað annað en að sparka langt á fljótasta og sterkasta leikmanninn sinn og fór óhefðbundnar leiðir að ögra leikmönnum sínum í þroskaferli þeirra. Þessir sömu þjálfarar ættu að geta auðveldlega sett sig í spor þjálfarans en er í raun svigrúm fyrir það að hugsa öðruvísi?“ spyr Hilmar og segist kaldhæðnislega ekki ætla að synda gegn straumnum. „Ég má ekki afhjúpa mig og synda gegn straumnum. Í samfélagi þar sem enginn stendur fyrir neitt eltumst við bara við útkomuna og útkoman var bara svo hræðileg, 7 mörk í leik hjá börnum. Vonandi þurfa þessir drengir aldrei að takast á við neitt jafn erfitt í þessu lífi.“ „Ýta honum í þá átt eða dæma hann til að verða eins og allir hinir“ Að lokum veltir Hilmar því fyrir sér hvaða skilaboð það sendi til ungra þjálfara þegar lítið er gert úr því sem aðrir þjálfarar reyna að gera. „Nú spyr ég; sá ungi þjálfari í Gróttu eða Breiðablik sem ætlar sér núna að prófa öðruvísi hluti og ögra norminu, er verið að ýta honum í þá átt eða dæma hann til að verða eins og allir hinir sem munu fórna hverju sem er til þess eins að vinna leik hjá börnum sem engu máli skiptir í stóra samhenginu? Síðan eru það auðvitað foreldrarnir sem gæti verið efni í aðra umræðu en ég spyr aftur; Hvar liggur villan, hjá þessum þjálfara sem ákvað að prófa öðruvísi upplegg og tapaði leik eða hjá foreldrum sem hóta að taka barnið sitt út úr félaginu vegna þessara ákvarðana?“ Pistill Hilmars Árna í heild sinni Má hugsa sjálfstætt? Í þessari viku fékk ég send myndbönd úr leik hjá 3. flokki karla í Stjörnunni í knattspyrnu úr mörgum mismunandi áttum. Myndböndin sýndu aggressívar staðsetningar markvarðarins hjá Stjörnuliðinu og mörkin sjö sem Fjölnir skoraði á þá. Öll viðbrögð voru nákvæmlega eins; háð og hneykslan. Ég sat með þessum myndböndum og viðbrögðum í nokkurn tíma og reyndi að átta mig á hvar villan væri. Ég speglaði mig í umhverfi mínu og á endanum fann ég mig knúinn til að deila hugsunum mínum, eitthvað sem ég hef ekki gert áður á þessu formi þó ég hiki sjaldnast við það í persónu. Fyrstu skynsömu viðbrögð við öllu slíku sem við höfum ekki séð oft áður, hvort sem við á um upplegg í knattspyrnu eða afstöðu í stjórnmálum, finnst mér að ætti að vera á þennan hátt: Þetta er öðruvísi, hver ætli sé hugsunin? Nú er ég ekki óháður, ég hlaut þann heiður að þjálfa með þessum manni í fyrra og hugrakkari einstakling er erfitt að finna. Olgeir Sigurgeirsson hefur unnið virkilega öflugt starf með þessum ungu drengjum í Stjörnunni og ögrar þeim daglega sem og rótgrónum viðmiðum okkar um hvernig hlutir ættu að vera. Það er svo auðvitað hægt að taka þá umræðu um hversu langt er hægt að ganga með allar hugmyndir, um hvort drengirnir hafi skoðun á hlutunum og hvort þeim líði vel með þær ákvarðanir sem eru svo teknar því þeir spila svo auðvitað leikinn. Allt þetta skiptir máli og ætti auðvitað að vera samræður milli þjálfara og leikmanna og svo þjálfara og yfirþjálfara, þeirra einstaklinga sem hafa samhengið og skilja hvað liggur að baki. Þá komum við að raunverulegum viðbrögðum samfélagsins. Allir hafa skoðun á fótbolta virðist vera og allir í kringum mig hafa haft skoðun á þessu. Jafnvel þó fólk hafi engar forsendur til að skilja samhengið eru allir tilbúnir að hrauna yfir þjálfarann, félagið, stefnuna og allt sem þetta táknar. Líkt og góður vinur minn sagði: „Ég er búinn að sjá myndbandið en það er auðvitað bara eins og að lesa fyrirsögnina, ég er skilinn eftir með fullt af spurningum en ég hef engin svör.“ Ég heyri af því að þjálfarasamfélagið keppist um það að níða skóinn af þessum einstakling sem, Guð forði okkur frá því, þorði að gera eitthvað annað en að sparka langt á fljótasta og sterkasta leikmanninn sinn og fór óhefðbundnar leiðir að ögra leikmönnum sínum í þroskaferli þeirra. Þessir sömu þjálfarar ættu að geta auðveldlega sett sig í spor þjálfarans en er í raun svigrúm fyrir það að hugsa öðruvísi? Ef allir hlæja að þessu hlýt ég að þurfa að gera það líka, ég má ekki afhjúpa mig og synda gegn straumnum. Í samfélagi þar sem enginn stendur fyrir neitt eltumst við bara við útkomuna og útkoman var bara svo hræðileg, 7 mörk í leik hjá börnum. Vonandi þurfa þessir drengir aldrei að takast á við neitt jafn erfitt í þessu lífi. Síðan heyri ég af því að hlaðvarp sem fjallar um fullorðinsfótbolta hafi tekið þennan yngri flokka leik fyrir og hluti af því sem var sagt þar var m.a. að það ætti að útrýma svona mönnum úr fótbolta, að þetta væri viðbjóður og svo framvegis. Nú spyr ég; sá ungi þjálfari í Gróttu eða Breiðablik sem ætlar sér núna að prófa öðruvísi hluti og ögra norminu, er verið að ýta honum í þá átt eða dæma hann til að verða eins og allir hinir sem munu fórna hverju sem er til þess eins að vinna leik hjá börnum sem engu máli skiptir í stóra samhenginu? Síðan eru það auðvitað foreldrarnir sem gæti verið efni í aðra umræðu en ég spyr aftur; Hvar liggur villan, hjá þessum þjálfara sem ákvað að prófa öðruvísi upplegg og tapaði leik eða hjá foreldrum sem hóta að taka barnið sitt út úr félaginu vegna þessara ákvarðana? Hver er ábyrgðin hjá fjölmiðlum og uppalendum, erum við að búa til einstaklinga sem mega hugsa sjálfstætt?
Stjarnan Íslenski boltinn Fjölnir KR Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Sjá meira