ESB-Pakkinn Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar 24. maí 2026 15:00 Komið og skoðið í pakkann með mér, ég er nörd og hef verið að skoða kosti og galla við að ganga í Evrópusambandið. Það þarf nefnilega ekki að segja JÁ í ágúst til að „skoða pakkann“, það kostar okkur tæpa 2 milljarða og kosningarnar sjálfar um 6–700 milljónir að lágmarki, en við getum flakkað vítt og breitt um netið nánast alveg ókeypis. Blessaður kaffibollinn Byrjum á að fá okkur kaffi. Hvað kaffið kostar er ekki spurning um verð eða hvort það sé ódýrara hér eða í öðrum löndum. Þegar við förum til Bjarna Harðar í Bókakaffi á Selfossi og fáum okkur kaffi er það til að njóta þess að sitja á Bókakaffi, ég hef ekki hugmynd um hvað kaffið kostar þar enda skiptir það ekki máli því við erum að njóta, leyfa okkur. Stundum fáum við okkur bakkelsi hjá Almari Bakara í Hveragerði eða á Selfossi þá er kaffið frítt með, enda erum við þá aðallega þar til að kaupa bakkelsið. Þegar við kaupum kaffi í Olís fáum við kaffið á 65 kr því við erum í 4x4, þá vantar okkur orku til að takast á við umferðina og lætin í bænum eða til að hafa með yfir heiðina heim, það er stundum lífsnauðsyn. Hér skal líka hafa í huga að við erum fámenn þjóð lengst úti í hafi, flutningskostnaður er hár og vegna þess hvað við erum „lítil“ þá fáum við ekki eins góða díla og aðrar þjóðir, skiljanlega. Þegar við fórum til Frakklands 2008 var verðlag svipað og hér, fór eftir því í hvaða búðir eða kaffihús þú fórst. Hvað kaffihús í miðbænum rukka fyrir kaffi fer eftir eftirspurn, það er aðallega eftirspurn og upplifun sem hefur áhrif á verðlag ekki hvort þú ert í ESB eða ekki. Svo þessi stormur í kaffibolla landsmanna hvað svo sem hann kostar er úr lausu lofti gripin því verð á kaffi er afstætt. Kaffibolli í Portúgal kostar um 1,50 evrur (216kr), en í Danmörku þarftu að borga um 4 evrur (577kr) sjá Verð á kaffibolla í miðbæ Reykjavíkur er 650 til 1200 (4,51 til 8,32 evrur) samkvæmt Wolt Staða Íslands Samkvæmt Evrópusambandinu er Ísland ekki með stöðu umsóknarríkis, „Í mars 2015 fór ríkisstjórnin fram á að „Ísland skyldi ekki teljast umsóknarríki um aðild að ESB“. Það getið þið séð hér, en samt í skýrslu sem ESB lét gera vegna áhuga núverandi ríkisstjórnarinnar kemur fram að „umsókn Íslands hefur aldrei verið formlega dregin til baka; henni hefur aðeins verið frestað“ Getum við treyst Evrópusambandinu? Ekki geri ég það. Utanríkisstefna ESB Enda þótt Evrópusambandið hafi verið stofnað til að koma á varanlegum friði í Evrópu hefur sambandið verið í farvegi hervæðingar í nokkurn tíma og skrifaði ég grein um áhyggjur mínar af því sem er kallað „hernaðarlegt Schengen“ ( ‘Military Schengen.') ESB og Ísrael ESB hefur staðið með Ísrael þrátt fyrir að Amnesty biðli til ESB um að hætta að styðja Ísrael Þrátt fyrir tillögur um frystingu á samstarfssamningi ESB og Ísraels sem 1.200.786 Evrópubúar undirrituðu, ákváðu utanríkisráðherrar ESB að fresta tillögum um fulla riftun samningsins, en sambandið hefur áður lagt til frystingu á viðskiptatengdum ívilnunum og fjárframlögum. ESB heldur hins vegar áfram að styrkja Ísrael á ýmsum sviðum og sér þess víða stað í skýrslum. ESB veitir Ísrael þannig pólitíska og fjárhagslega aðstoð vegna háþróaðrar efnahagsþróunar Ísraels. Að meðaltali nemur þetta sem til dæmis segir frá hér um 1,8 milljónum evra styrk á ári, til samstarfsverkefna í menntatekerfi og stjórnsýslu. Hernaðarstuðningurinn er hins vegar miklu meiri að vöxtum og fer þar minna fyrir gagnsærri skýrslugerð[ÖJ1] . Utanríkisstefna ESB er ekki okkar Ef við göngum í ESB þá tökum við upp utanríkisstefnu ESB og þar með þátt í þvingunaraðgerðum gegn Evrópubúum sem voga sér að vera ósammála ESB. "Nú er það að gerast að Evrópusambandið er að færa sig upp á skaftið og beita þvingunaraðgerðum inn á við, gagnvart eigin þegnum og einnig þegnum annarra Evrópuríkja. Sviss er þar dæmi um en þekkt er bannfæring Evrópusambandsins á rihöfundinum og greinandanum Jacques Baud, sem gagnrýnt hefur NATÓ og Evrópusambandið í tengslum við Úkraínustríðið, og Svisslendingnum Natalie Yamb sem gagnrýnt hefur Frakka fyrir að reka nýlendustefnu í Afríku. Hún er upphaflega frá Kamarún en með svissneskt ríkisfang" Úr grein eftir Ögmund Jónsson Ég vil ekki í þennan pakka. Ferlið: þetta er Aðildarsamningur það getið þið séð í bæklingi sem ESB gaf út 2011 Látum nördinu lokið að sinni en það er af nógu að taka. Allar síðurnar (linkarnir) geta leitt ykkur út og suður en vonandi aftur heim eða eins og rússneskt máltæki segir „Maður kemst á heimsenda á lyginni en ekki heim aftur“ Þið þurfið ekki að vera sammála mér en höfum það rétt sem við höldum fram og helst linka á viðurkenndar síður til að staðfesta það. Góða skemmtun PAKKINN Viljið þið skoða með okkur í ESB-pakkannSjá hvað þar leynist, þarf ekki jáfarðið úr skónum og takið af ykkur jakkannÞví á netinu margt gagnlegt má sjáSegir þú JÁ við aðlögun hefjumEn segir þú NEI við stolt frá fögnumKannski góðan samning fram merjumÞað ósennilegt samkvæmt öllum gögnumFarið í sumar og sjáið landiðKraftinn í fossum og friðsaman lækinnSveitina, kýrnar og fallega lambiðVið erum rík, sjáðu arf þinn. Ítarefni Alþingis má skoða hér Síða Evrópusambandsins skoða vel Evrópuvefinn höfum við hér Vef Heimssýnar, manni verður ekki um sel. Höfundur er í stjórn Suðurlandsdeildar Til vinstri við ESB, og í Samtökum Hernaðarandstæðinga Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Guðmunda G. Guðmundsdóttir Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira